bryndísar&kristjánsbörn
bryndís stefáns
gunnar hjálmars
elín smára
árný gísla
sigrún bjarna
hálfdán hálfdáns
eiríkur hrafns
karl hallgríms
örn guðmunds
birna guðmunds
kristinn hermanns
steingrímur guðmunds
páll páls
smári karls
grímur atla
vidófjölskyldan
bókabúðin mín
hljómsveitin reykjavík!

Bloggið er dautt og internetið líka. Ég las það á netinu, á einhverri bloggsíðunni!


























 
Archives
<< current













 
This is where you stick random tidbits of information about yourself.



























Ég er Kriss og ég er Rokk.
 
31 mars 2003  
..mér leiðist slabb. Mér leiðist Akureyri. Mér leiðist Davíð Oddsson. Mér leiðast háværar framkvæmdir í miðbæ Reykjavíkur.

12:27 e.h. Ekki vera feiminn

29 mars 2003  
Góðan dag,
eftir að mér tókst að komast inní frosinn fjölskyldubílinn, gátum við byrjað daginn á ungbarnasundi í árbæ. Það var fínt, svo hefur dagurinn liðið hjá án þess að ég hafi endilega tekið eftir honum. Ég borðaði jú harðfisk og öskraði á tvo lítið uppalda krakka sem sprengdu sprengjur í garðinum. Umhverfið er stöðugt að minna mig á stríðið ömulega í Írak, höggbor við hliðina á vinnunni minnir á hríðskotabyssur og tveir dvergar berjast við snjóinn með sprengingum í garðinum. Lífið er náttúrulega ömulegt.
En í kvöld mun ég borða kjúkling með fjölskyldunni; hinum fallega sjö mánaða syni og sætu konu minni. Lífið er náttúrulega dásamlegt...

5:49 e.h. Ekki vera feiminn

27 mars 2003  
Komið þið sæl!
Ég býð ykkur hjartanlega velkomin á síðu mína, hún er tilkomin af þeirri einföldu ástæðu að ég fann ákveðið gat á markaði blogg-heima og ætla ég mér að fylla uppí það...
kriss

5:29 e.h. Ekki vera feiminn

 
This page is powered by Blogger.