bryndísar&kristjánsbörn
bryndís stefáns
gunnar hjálmars
elín smára
árný gísla
sigrún bjarna
hálfdán hálfdáns
eiríkur hrafns
karl hallgríms
örn guðmunds
birna guðmunds
kristinn hermanns
steingrímur guðmunds
páll páls
smári karls
grímur atla
vidófjölskyldan
bókabúðin mín
hljómsveitin reykjavík!

Bloggið er dautt og internetið líka. Ég las það á netinu, á einhverri bloggsíðunni!


























 
Archives
<< current













 
This is where you stick random tidbits of information about yourself.



























Ég er Kriss og ég er Rokk.
 
28 febrúar 2006  
Hér kemur eitthvað nýrra en annað!

Stefán Bjartur fór sem rótari með hljómsveit pabba síns til Ísafjarðar síðustu helgi.

Það var óendanlega gaman að koma vestur á Ísafjörð síðasta helgi. Þangað höfðum við ekki komið síðan í ágúst á síðasta ári. Ég ákvað að taka Stefbjart með mér í handfarangur og um leið hafði Bryndís færi á að nýta friðinn á heimilinu í að leggjast í kennslubækurnar. Hvað hún gerði svo um helgina hef ég ekki hugmynd um en um leið og helstu skemmtistaðir setja myndasöfn helgarinnar á vefsíður sínar kemst hið sanna í ljós.
Ekki gafst mikill tími í að gera það sem manni langaði til eða vildi gera fyrir vestan. Ég hefði til dæmis vilja eyða meiri tíma á öðrum stöðum en í Krúsinni, hvar ég eyddi of miklum tíma. En sá tími fór svo sem ekki til spillis. Það var ferlega heimilislegt þar, sérstaklega þar sem ekki hafa verið keyptar nýjar plötur frá því ég flutti suður seint á síðustu öld. Þannig gat maður dillað sér við dynjandi rytma Dr. Alban og My Sharona. Fátt kom manni á óvart. Þar hitti ég m.a. Eirík Norðdahl sem var á heimavelli og gat hann þess vegna alltaf sagt um hvaða lag yrði næst fyrir valinu hjá plötuspilaranum í búrinu.


Þetta verður lögheimili foreldra minna frá og með komandi sumri.

Ég náði engu að síður í dvöl minni að fá kjötsúpu og bjór heima hjá mömmu og pabba, kíkja í heimsókn til Kaju systur sem býr í glæsilegu húsi beint á móti æskustöðvum okkar í Hnífsdal, labba um ganga Menntaskólans og rifja upp góða og glataða tíma, spila á tónleikum, kíkja í nýju íbúðina hjá Elísu og Palla og fá rjómabollur um leið. Á laugardeginum kíktum við á húsbílinn hjá pabba og mömmu. Hann er sérlega glæsilegur og rúmgóður. Ég get ekki beðið eftir að sitja inní eldhúsinu, eða í borðstofunni, já eða bara úti undir markísunni með bjór í annari og harðfisk í hinni. Stefán var sérlega ánægður og vildi hvergi fara. Ég þurfti nánast að rífa hann úr bílnum.

Tónleikarnir voru annars fínir. Krakkarnir í Menntaskólanum voru voða næs. Góðir krakkar þarna á Ísafirði. Hljómsveitirnar Weapons, Noise, Ég, Reykjavík og Dr.Spock skemmtu. Ég sá galgopana í Mér... eða í Égi, þeir voru mjög fínir og strákarnir í Dr.Spock voru drulluþéttir og löðrandi sveittir. Annars stóðum við í hljómsveitinni Reykjavík! klárlega uppúr líkt og fréttaritari Bæjarins besta komst að orði hér. Við kollegarnir Óttarr Proppé, annar forsöngvara Dr. Spock rifjuðum upp saman komu hljómsveitarinnar HAM í MÍ árið 1992. Þá var ég menningarviti Nemendafélagsstjórnar sem að öðru leyti var skipuð stelpum og Sigga Sam í Írafári. Þau hin þekktu HAM ekki neitt og grunlaus samþykktu komu þeirra. Eftir að þau sáu heimildarmynd um þá voru þau afar skelkuð og kölluðu mig á teppið.

En tónleikarnir urðu að veruleika, frábærir tónleikar að mati þeirra 40 einstaklinga sem mættu. Ég var svo til nýkominn með bílpróf þetta haust þegar ég náði í þá á völlinn. Það er mér í fersku minni þegar ég stóð fyrir framan þá Óttarr og Sigurjón sem stóðu fyrir utan flugstöðvarbygginguna í reyk, þegar Óttarr horfði upp til fjalla og sagði við Sigurjón,
,, ..nú veit ég hvaðan þú hefur þessa bölvuðu hæð þína"! Ég þurfti að svo að beita öllum ráðum til að finna hljómsveitarmeðlimi daginn eftir tónleikana og skila þeim útí vél. Á síðustu stundu fékk ég vísbendingu, keyrði heim til Ásthildar Cesil og sópaði þeim saman inní bíl og útá flugvöll.

9:47 e.h. Ekki vera feiminn

09 febrúar 2006  
,,Segðu halló við ömmurnar og afana á Ísafirði"!


Þegar Stefán Bjartur var nýstiginn úr baðinu í kvöld þá sá ég myndavélina í hillu á ganginum, ég greip hana og sagði Stefáni að segja halló við ömmurnar og afana á Ísafirði. Þá kom nákvæmlega þessi svipur. Hann var nú ekkert ánægður með þetta, að segja halló við einhverja myndavél. Hann minnist oft á það að hann sé á leiðinni til Ísafjarðar, í morgun þegar við feðgar löbbuðum í leikskólann þá tilkynnti hann mér að hann væri að fara í flugvél á leið til Ísafjarðar, von bráðar. Það verður seint sagt að Stefán sé að tapa rótunum.
En, afar og ömmur! Stefán biður að heilsa!!!

Annars er ég sjálfur á leið norður á Ísafjörð í boði Menntaskólans. Ég var beðinn um að koma og stilla til friðar...nei, ég er að grínast. Okkur í hljómsveitinni Reykjavík! var boðið að taka þátt í rokksúpu á Sólrisuhátíð, ásamt Ampop, Ég og Dr.Spock og fleirum. Það er frábært. Ég veit hinsvegar ekki hvernig ég á að segja Stefáni frá því svo hann verði ekki leiður yfir að fá ekki að koma með. Ég þarf að fara að kenna honum að róta, gera upp snúrur, pakka saman trommunum og segja honum sannleikann um dærektbox og Sjúr-mæka. Þá get ég tekið hann með.

Mikið var það gleðilegt að heyra að Venni skyldi endurheimta flotta Rickenbacker gítarinn sinn eftir 6 -7 ár. Ég sá einmitt brot af Eurovision keppninni þar sem Magni á móti sól klæddist þessum sama gítar. Ég sagði Bryndísi einmitt að þessi gítar væri alveg eins og gítarinn hans Venna. Ég held að þetta sé sá eini þeirrar tegundar hér á landi. Alveg eins og Lennon notaði. Þessu hljóðfæri var stolið þegar við Geirfuglar vorum að spila á balli í Þjóðleikhúskjallaranum, Stebbi hafði haft hann að láni. Það var ótrúlega gremjulegt fyrir okkur alla þegar honum var stolið. Ekkert hafði spurst til hans þangað til núna. Fátt er svo með öllu illt að ekki boði eitthvað gott! Lagið er alls ekki skemmtilegt, Magni ekki skemmtilegur söngvari en gítarinn kom í leitirnar. Þetta las ég á síðunni hans Denna, ég á nú eftir að heyra þetta frá Venna sjálfum.

Jæja, pabbi! Þú varst að biðja um eitthvert líf hér á síðunni, þetta er allavega eitthvað...!

9:42 e.h. Ekki vera feiminn

 
This page is powered by Blogger.