Við Stefán héldum uppá afmælisdaginn minn saman í dag. Við fórum í bakaríið og keyptum brauð og kökur. Stelpurnar okkar voru inni í svefnherbergi að hvíla sig á meðan á myndatökunni stóð en svo óheppilega vill til að Bryndís er lasin í dag. Það er því ljóst að plön dagsins munu eitthvað riðlast. Stefán og litla systir hans vöknuðu bæði um kl.07.00 (sem er akkúrat sá tími sem ég kom í heiminn fyrir 32 árum) í morgun og voru alls ekki á því að fara sofa aftur. Stefán vaknar alltaf mjög snemma um helgar þegar hann þarf ekki að vakna, aðallega útaf spenningi yfir barnatímanum sem hann endist svo ekki lengi yfir og fær að skipta yfir í DVD safnið sitt. Ekki minnkaði svo spenningurinn þegar ég tók uppá því að kaupa Cocoa Puffs fyrir Stefán um daginn eftir að Birkir bróðir fræddi okkur á því að Cocoa Puffs væri ekki til í Danmörku og keypti hann því pakka fyrir börnin sín hér á landi. Hann fær því kakókúlurnar aðeins um helgar sem verður til þess að Stefán vaknar enn fyrr en ella.
Ég keypti myndavél á dögunum en gamla myndavélin okkar brást á ögurstundu nefnilega uppá fæðingardeild. Fyrsta myndin af stúlkunni var því tekin á símann minn. Annars er ég rosalega ánægður með þessar myndir úr símanum en ég hef nú skreytt þessa síðu með þeim myndum um allnokkra hríð, t.d. allar þær myndir sem við strákarnir í bandinu eigum úr útlandaferðum okkar voru teknar á símann minn. Því ákvað ég að kaupa litla og netta vél sem væri þrusugóð. Mér fannst viðeigandi að taka þá mynd af vélinni með símanum mínum, þarna er hún
Canon Ixus 70 og af því að ég átti ekki eldspýtustokk þá stillti ég henni upp við hliðina á tónhlöðunni minni (iPod=þekkt stærð). Lesendur síðunnar mega því eiga von á meiri gæðum í myndum hér á síðunni. Þarna má sjá mig sjálfan speglast í spilaranum, fín afmælismynd!
Í morgun komu þeir
Gummi og
Jón Þór við hjá okkur áður en þeir héldu til
Þingvalla. Þar ætluðu þeir að sigla og hafa gaman í faðmi fjölskyldunnar um helgina. Þeir drengir ásamt tveimur vinum þeirra festu kaup í þessa fagra fleyi. Um daginn hittum við Stefán ónefndan aðila og stóðum við á spjalli þar sem annar ónefndur aðili barst í tal. Viðmælandi minn sagði um þá manneskju að hún ætti náttúrulega bágt. Stefán greip þá fram í og sagði ,, Jón Þór á líka bát...!" Lag
Benna Hemm Hemm Ég á bát, ég á árar hefur einhvern loðið við okkar hóp um nokkra hríð og loks getur Jón Þór sungið það af hjartans list. Stefán Bjartur kann þetta lag afturábak og áfram og ég tók það uppá símann minn fyrir nokkrum mánuðum síðan. Ég sendi svo honum Benna lagið og hann var svo hrifinn að hann fékk hjá mér leyfi um að setja lagið í flutningi Stefáns í svokallað
Podcast. Ég veit ekki hvernig aðgengið er að þessu, ég kann ekkert á þetta podcast. Maður er orðinn svo gamall.