This is where you stick random tidbits of information about yourself.
Ég er Kriss og ég er Rokk.
27 desember 2003 Komið fagnandi, að skjánum, því ég boða yður nýtt blogg! Það er verst hversu slappur ég er við skrifin, þvílíkar hugmyndir sem poppa uppí hugann daga og nætur, leka svo því miður útum nefið á mér við fyrstu fráöndun. Bókavertíðin var ágæt. Frábært að hugsa til þess hversu margir halda tryggð við bókabúðina okkar, á Laugavegi 18! Hún er nú bara einfaldlega best! Er aldrei auglýst, laus við allan rembing, hún bara stendur styrkum fótum með fólkinu innan borðs! Það er samt ekki laust við blendnar tilfinningar eftir þetta haust, það blundar eitthvað inní mér, eitthvað sem kallar á breytingar...!
Djöfull var gaman á útgáfutónleikunum, sem voru fyrir viku síðan. Ég er ofsalega ánægður með plötuna, eins og margir aðrir greinilega, og er stoltur að hafa tekið þátt í þessu. Ég hlakka til að takast á við nýtt ár og vonast til að rokkið lifi.
Á leiðinni heim til mín, á þorláksmessu, kom uppí huga mér krassandi samsæriskenning, hún hljóðar svo; Robertino er ekki til. Tónlistin á plötunni "Robertino:Það allra besta" er einungis upptaka á Engilbert Humperdink spiluð aðeins hraðar, þannig að söngurinn verður áttund ofar. Myndin á hulstrinu er svo bara fermingarmynd af Óttari Felix Haukssyni. Þar hafið þið það!
Mig langar að geta þess að mér leiðist Ingvar E.Sigurðsson, af hverju í fjandanum leikur hann í öllum íslenskum bíómyndum? Eigum við ekki fleiri leikara? Í ljósi þessa, þverneita ég að sjá myndina Kaldaljós!
Við Bryndís og Bjartur erum á Ísafirði í endurhæfingu og erum að blómstra, í bókstaflegri merkingu. Við biðjum að heilsa öllum og óskum ykkur gleðilegrar hátíðar.
Birkir, takk fyrir sendinguna og kærar kveðjur til fjölskyldunnar. Önnur sending til þín er innan seilingar, en Stóri hvellur náði ekki í jólapakkann um daginn.
Líklegast var þetta næstsíðasta færslan á árinu, því sjá, ég boða yður annað blogg! Þangað til næst...
5:11 e.h. Ekki vera feiminn
17 desember 2003 Svo mörg voru þau... Jú, komið þið sæl. Staðan er nú bara þannig að maður er bara ekkert að fara í tölvuna þegar maður kemur heim. Maður vill helst sinna heimilinu og fjölskyldunni þegar maður kemur úr vinnu. Annars er það nú þannig að við Bryndís erum í hálfgerðu boðhlaupi flesta virka daga, hún fer í vinnu um leið og ég stimpla mig út og við köstum Bjarti á milli.
Það hefur hinsvegar verið nóg um að skrifa, en ég hef ekki notað tækifærið. Hannes Hólmsteinn hélt partí í bókabúðinni, ég var algjörlega á móti því. Ekki útaf því að hann er viðbjóður, ekki af því að bókin hans sé slæm, ekki útaf því að hann seldi RÚV-fíflum laxnessþáttinn á dögunum, þáttinn sem hefði átt að heita Hvar er Hannes! Ahh, ég sé hann, hann er kominn til Moskvu. Nei, bara útaf því að búinn var til einhver skrípaleikur í kringum útgáfuna sem mér fannst óþarfi að taka þátt í, en ég því miður réð ekkert um það.
Ég veit varla hvor stofnunin mér finnst sorglegri; Alþingi Íslendinga eða Spaugstofan! Hvort tveggja rusl sem óþarfi er að eyða orðum í, enda þegar ég fer að spá í það þá dettur mér aldrei í hug að ræða þjóðfélagsmál hér, ég nenni því ekki...
Stóra málið hlýtur að vera Stóri hvellur sem kom í búðir í vikunni (og þakka ég fyrir kveðjur í gestabókinni). Nú er gaman að lifa, og við verðum á fleygiferð við að kynna skífuna á næstu dögum. Meðal annars fögnum við útgáfunni næsta laugardag á Grand Rokk um miðnætti og vonast ég til að sjá sem flesta þar!
Annars bendi ég á síðuna hans Gunnars til að menn glöggvi sig á hvað sé í deiglunni! Ég þarf til dæmis að fara að sofa af því að við erum að spila á Stöð 2 í fyrramálið kl. 08.20 en mætum um kl. 06.00..
Góða nótt.
10:23 e.h. Ekki vera feiminn
10 desember 2003 Jól og menning Nú fara jólin brátt að ganga í garð. Öll tilhlökkun og spenna fer þverrandi með árunum og hátíðin snýst um eitthvað allt annað heldur en áður. Maður er náttúrulega ekki lengur barn. Auðvitað er til margs að hlakka til, nægir þar að nefna marglitu lagkökuna hennar mömmu. Ég get ekki beðið eftir að verða sendur vestur á firði um jólin, mér finnst eins og sé verið að senda mig í afvötnun eða afstressun..já eða afsvínun! Þetta er tíunda árið í röð þar sem ég er að vinna í verslun á jólavertíð, allt aðrar áherslur svífa um í hausnum heldur en vera ber og jólin fara bara algjörlega í þetta, að vera svín. Kaupmenn eru svín og hrína hæst á þessum dögum. Mér finnst þessi jól einkennast af ægilegri markaðssetningu og fjölmiðlar eru ekkert annað en auglýsingar, þá er ég ekki að tala um auglýsingartímana, menn hreyfa vart varirnar nema það sé í boði einhvers. Fréttirnar eru eintómar auglýsingar. Hver dropi dauðkreistur af hverju strái. Þú getur tryggt þér í næstu matvöruverslun 70 mínútna: DVD, VHS, bókina, bolinn, sængurverið, pepsíið, kertastjakann, samlokubrauðið og skóhornið. Ég hef aldrei séð né heyrt annað eins.
Hér koma nokkrar auglýsingar:
Hljómsveitin Dr.Gunni mun kynna sína meintu útgáfu, plötuna Stóra hvell í dægurmálaþættinum Ísland í bítið á Stöð 2 á föstudagsmorguninn um kl.08.30.
Helstu og heitustu rithöfundar vertíðarinnar, s.s. einsog Sjón, Ólafur Gunnarsson, Guðmundur Steingrímsson og u.þ.b. tíu fleiri verða í Bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18 á laugardaginn og munu aðstoða viðskiptavini með að finna bækur, afgreiða og jafnvel pakka bókunum inn ef því er að skipta, milli kl.14-17.00
Hljómsveitin Homebreakers sem spilar nær fráleita blöndu af finnskum tangó og amerískri sveitatónlist, mun flytja nokkur lög sér og öðrum til skemmtunar í Bókabúð Máls og menningar Laugavegi 18 á laugardag undir kl.16.00.
01 desember 2003
- Sæll Kriss! - Já, hæ!
- Jæja, hvað er að frétta? - Jú, bara þetta fína..!
- En hvað svona helst, svona maður út með sprokið! - Já, jújú! Maður er alltaf að vinna, svo er maður óþreyjufullur í biðinni eftir Stóra hvelli. Platan fer nú að koma, líklegast í vikunni. Við vorum nú að spila áðan á Rás 2, sem á afmæli í dag og spilum á föstudaginn í Ísland í býtið. Pabbi á nú líka afmæli í dag og ég hefði frekar vilja spila fyrir hann en ég sendi honum afmæliskveðju í beinni til Ísafjarðar.
- Til lukku með pabba þinn. Hvað er annars að frétta af Stefbjarti? - Bara rosa fínt, hann er frábær. Við fórum í aðgerð um daginn en hann hafði verið með stíflaðan tárakirtil alveg frá fæðingu. Það þurfti að svæfa hann og þræða svo í gegnum þennan örgranna kirtil. Ég var voða kvíðinn, en mamma hans sterk sem kletturinn, ég svaf varla nóttina fyrir aðgerðina. Við mættum kortér fyrir níu um morguninn, hann fór strax inná skurðstofu, og á meðan ég gekk frá skiptitöskunni var þegar búið að svæfa hann og okkur boðið að bíða á biðstofunni á meðan. Við fórum þangað og ég greip fréttablaðið til að dreifa huganum, mér tókst nú varla að klára eina opnu því aðgerðinni var lokið og Stefán vaknaði stuttu síðar eldhress. Við vorum komin útaf stofunni kortér í tíu. Hálftími. Það er meira mál að panta sér pizzu.
- Jæja, frábært. Er ekki allt gott að frétta af Bryndísi?- Jú jú, hún á meira að segja afmæli á fimmtudaginn. Ég er að spá í að bjóða henni út að borða og jafnvel í kvikmyndahús eða eitthvað. Mig vantar bara pössun á meðan.. ert þú að gera eitthvað á fimmtudagskvöldið?
- Ég..? - Já, þú?
- Kriss minn! Ég er nú bara bloggruglið þitt, faktískt séð ertu að tala við sjálfan þig, þú vilt nú varla að ég/þú passi hann Bjart meðan þú/ég ferð út með Bryndísi? - Ha, nei! Þetta er orðið frekar skrýtið og jaðrar við geðveiki!
10:05 e.h. Ekki vera feiminn
24 nóvember 2003 Það er komið að því. Stundin sem allir hafa beðið eftir... ..nýtt blogg. Svo hefur maður ekkert gáfulegt að segja. Mér líður eins og byssu sé miðað á hausinn á mér, þvílík pressa og hvað gerist? Þetta;
Jújú, auðvitað get ég alltaf röflað um eitthvað, ef ég hef frá engu skemmtilegu að segja þá bý ég bara eitthvað til. Voðalega er gaman að sjá hana skinnu núna, aðdáendur fara mikinn og hr.blogger tók einkar vel á móti mér áðan þegar ég loggaði mig inn.
Nú fer álagið á mér í vinnunni að aukast dag frá degi. Fyrir mér eru jól bara brjáluð vertíð og verð ég rosa feginn þegar þeim lýkur. Jólaandi er eitthvað sem ekki er til í minni orðabók. Hinsvegar er hápunktur jólavertíðarinnar, mómentið þegar dekk Fokker 50 vélarinnar strjúkast við flugbrautina í Skutulsfirði á aðfangadag, og að sjálfsögðu ég og mín fjölskylda innanborðs. Á kvöldi þorláksmessu kemur maður heim um miðnætti, eftir söludag á við nokkra mánuði, algjörlega vitstola, fær einn bjór og þá er maður rotaður, með slef niðurá höku. Svo er konan búin að pakka í töskur, vekur mann um morguninn og hendir manni í föt og útí vél, svo vaknar maður 40 mínútum síðar í himnaríki. Endurfæðing.
Við fórum á jólahlaðborð um helgina, borðuðum ógeðslega mikið og ætluðum að rasa út eftir það en það var bara varla hægt, það fór svo mikil orka í allt átið að helst langaði mann að fara að sofa. Annars var þetta hin rólegasta helgi fyrir utan sjokkið sem ég varð fyrir á Bónusvideó hér í nágrenninu. Ég rétt hljóp inn til að taka spólu, voða þunnur og þreyttur, inni mætti ég geysilegum og hvellnum hávaða úr sjónvarpinu, Leoncie var að skemmta, unglingar hlógu Beavis og Butthead hlátri, afgreiðslufólkið veinaði, bresk fjölskylda með tvo krakka voru yfir sig hrifin og æptu líkt og vænisjúk væru, fimm tíu ára stelpur rifust um hvaða spólu þær ættu að taka og einn litill púki, sem leit út eins og Geir Ólafsson, öskraði ítrekað á mömmu sína hvaða nammi hann vildi fá. Fyrir utan þetta shock-treatment þá bar það hæst yfir atburði helgarinnar að ég var næstum búinn að keyra á Jónsa í Sigur Rós. Það hefði verið ömulegt.
Frægikalldagsins:meistari Heiðar Sigurðsson, en hann hitti ég á jólahlaðborði Háteigsskóla. Heiðar er mikill kaupsýslumaður og er einskonar Yoda í mínum augum. Hann var að opna verslun í Síðumúla sem heitir Í sjöunda himni og ég hvet alla þá sem vilja betri nætursvefn að heimsækja hann Heiðar í Síðumúlann.
10:45 e.h. Ekki vera feiminn
16 nóvember 2003 Greindist með Togga í hálsinum! Ekkert drastískt gerðist um helgina. Hún leið hjá tiltölulega áfallalaust. Ég hafði það gott í faðmi konu og barns. Það er kannski helst að ég hafi átt nokkra slæma hálsdaga uppá síðkastið, síðla kvölds og snemma morguns er ég ansi þurr í hálsinum og með ógnvænlega dimma rödd. Það er ekki laust við að ég hljómi eins og Toggi í Singapore Sling, á morgnana og kvöldin. Óþarflega kúl rödd og ekkert endilega við hæfi svona snemma á morgnana, í Bókabúðinni til dæmis. Vonandi losna ég við Toggann bráðlega.
Ég hlakka strax til næstu helgar en þá förum við Bryndís á jólahlaðborð í Jósölum. Bjartur ætlar að gista hjá Bryndísi frænku sinni á meðan. Aðra helgi verða svo mikil útgáfuteiti um allan bæ, bókaútgefendur bjóða til veislu, Edda og JPV á sama tíma. Senn líður svo að útgáfu Stóra Hvells, þá þarf að halda útgáfupartý. Við erum ekki alveg ákveðnir með útgáfutónleikastað, allar hugmyndir vel þegnar. Mest spennandi finnst mér þó útgáfa á nýjum fimmþúsundkalli, ég verð einhvern veginn að troða mér inní það útgáfupartý, jafnvel að fá áritað eintak...
Mánudagur. Vinnuvika framundan. Ef einhver ykkar lesenda er með mánudag í sér og finnur til leiða, þá skora ég á þann að lesa
þetta og leiðinn er úr sögunni. Endurtakist eftir þörfum.
10:29 e.h. Ekki vera feiminn
12 nóvember 2003 Til í stuðið! Jæja, hvað er svo að frétta? Jú, það er allt að gerast, fjörið að bresta á í bókabransanum, og í plötubransanum. Ég fór á bókakynningu útgáfunnar Eddu í morgun og þaðan er margt ágætt að koma. Segi það meira að segja hér að hugsanlega gæti mér dottið í hug að lesa Hallgrím Helgason, þrátt fyrir hans síðustu skrif, Horror Íslands. Hin væntanlega bók hans mun heita Herra Alheimur og er hálfgerð Hollywoodmynd. Aðalhlutverkið leikur Marlon Brando en hann leikur Guð, sem nýlega hefur frétt að á jörðinni sé búið að klóna manneskju og ákveður hann því að eyða öllu lífi þar. Aðrir leikendur eru Woody Allen, Julia Roberts, Anthony Hopkins og Salman Rushdie sem leikur að sjálfsögðu klikkaða vísindamanninn.
Ánægður með DV-liðið, spennandi að sjá hvernig menn ná að spila saman. Svei mér þá ef maður gefur DV-inu ekki tækifæri aftur. Horfði á Ísland í dag áðan, djísus hvað mér finnst umsjónarmennirnir glataðir. Jóhanna kynnti "Rikshow" til sögunnar og sagði eitthvað fleira glatað, um daginn fílaði hún sig geðveikt intellectual og vitnaði í bók eftir D.J. Salinger, en ekki J.D.Salinger. Það er samt næstum þannig að þau séu skárri en eftirbátar þeirra á morgunvaktinni. Svo var þarna fyndnasti maður Íslands 2003, kræst! Ég er búinn að sjá hann nokkrum sinnum í fjölmiðlum uppá síðkastið, Gísli Pétur Hinriksson. Ef hann er það fyndnasta í dag þá er ekkert að gerast. Hann var geðveikt að rembast, og reyndi að líkjast Jóni Gnarr með engum árangri. Spaugstofan, einu mennirnir sem eru að gera eitthvað.
Ætli maður fari ekki inn í herbergi að lesa, Da Vinci lykillinn, mæli með henni. Þetta er búið að vera skrýtið kvöld og byrjaði svolítið ógnvænlega, fyrst hringdi kona og spurði um Salvöru, Bryndís svaraði því til að engin Salvör byggi hér. Síminn hringir aftur eftir klukkustund og spurt er um Guðmundu, ég sagði manninum að vanda valið á tökkunum ef hann væri ekki með þá feitustu putta sem sögur færu af. Um mitt kvöld er svo hringt á dyrabjölluna, ég fer til dyra og úti standa kona og strákur og spyrja um Steinunni. Fyrir utan þetta voru tvö umslög í bréfalúgunni sem ekki voru til okkar, við vorum reyndar fegin því þetta voru klárlega morðhótanir sem áttu að rata til þekkts athafnakokks sem ekki býr í húsinu. Við erum svona vinsælasta "vitlausa númer" og vinsælasta "húsavilltin" í bænum í dag.
Ég skora á alla sem þetta lesa að koma á Grand Rokk annað kvöld en þar ætlum við í Dr.Gunna að rokka útí eitt með 200.000 naglbítum. Kl. 22.00, 500,- kr. inn! Missið svo ekki af tveimur liðsmönnum Dr.Gunna í viðtali um kl. 09.00 í fyrramálið í þætti þeirra Sigurjóns Kjartanssonar og Gunnars Hjálmarssonar, Zombí...
Einnig væri gaman að sjá sem flesta í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18 á föstudag kl. 17.30 en þá ætlar sönggyðjan Eivör Pálsdóttir að flytja nokkur lög með hljómsveit sinni.
09 nóvember 2003 Helgi Kriss og co. Þá er þessari löngu helgi senn að ljúka. Mér finnst ég vera búinn að vera ægilega lengi frá vinnu en ég var lítið sem ekkert við á föstudeginum. Þá, um hádegisbil, hitti ég foreldra mína sem höfðu komu keyrandi frá Ísafirði daginn áður og saman ásamt systrum mínum ókum við til Njarðvíkur þar sem Haukur Ingason, bróðir mömmu, var jarðsunginn. Haukur lést í síðustu viku, 73 ára. Haukur var ákaflega indæll maður og vel liðinn af öllum sem til hans þekktu, hann var víst voða mikið í félagsstörfum á yngri árum, í leiklist á skólaárum sínum og hóf snemma að hafa verslunarstörf að atvinnu, hvað hann vann við lunga sinnar ævi. Hljómar allt ótrúlega kunnuglega í mínum eyrum. Margir segja að ég sé lifandi eftirmynd hans, þ.e. í útliti!
Smári Karlsson kom svo í heimsókn til mín á föstudagkvöldið og áttum við saman gagnkynhneigða stund, að hans ósk...ekki það að ég hafi beðið um eitthvað annað.
Laugardagur er þvottadagur. Og fjölskyldan þreif heimilið og fór svo í bað. Eftir það, sápustrokin og tandurhrein, litum við við hjá bændunum á Lambastað neðri en þeir voru nýbúnir að hræra í vöfflur og þeyta rjóma og nutum við veitinganna til ýtrasta. Frá Lambastað efri, heimili yfirbóndans, mátti greina miklar drunur og í þann mund sem við lögðum af stað aftur heim á leið, gnæfði hávaðinn yfir allt svo ekki heyrðist hvort bíllinn væri kominn í gang. The Overfarmer var að hlusta á Who sem er ekki hlustvænlegt öðruvísi en hátt.
Sunnudagurinn fór rólega af stað. Þeir koma nú sjaldnast með offorsi og eru oft helst til tíðindalitlir. Við Bjartur fórum í göngutúr eftir Einræðisherran, Bryndís fór að skúra og svo að sauma. Mér leiðist sunnudagar, maður bíður eftir að vinnuvika byrji. Sunnudagar eru eins og frímínútur, maður veit aldrei hvað maður á að gera, stendur bara eins og fáviti og bíður eftir að hringt sé inn. Annars kom Gunnar með Stóra hvell fullmixaðan og nær tilbúinn til mín í morgun. Hljómar rosalega vel. Þetta er frábær plata og verður gaman að sjá hvernig fólk mun fíla hana. Þetta er allt annað en óspennandi popp.
05 nóvember 2003 Er ég kunnuglegur..! Það var svo merkilegt að þegar ég var á rölti í dönsku smáralindinni, Fisketorvet, þá mætti ég náunga sem horfði voða mikið á mig og sagði svo "blessaður"! Mér var brugðið og átti í miklum erfiðleikum með að þekkja hann, mér var gjörsamlega fyrirmunað að þekkja hinn snoðklippta, vel þykka mann með gleraugu og í KR-peysu. Ég spurði þá vandræðalega, "...á ég að þekkja þig"? "Nei, ég bara kannast við þig" sagði gaurinn. Klassískt með íslendinga í útlöndum, allir voða hressir og heilsast en þekkjast alls ekki þegar heim er komið. Feiti KR-ingurinn þekkti mig ekki baun, hann bara kannaðist svo við mig og það sem meira er, hann krafðist þess að ég ræki lífshlaup mitt svo hann gæti fengið einhverja tengingu!
Hvernig er það, er ég svona kunnuglegur gaur? Er ég karakter sem verður aldrei neitt frægur en fólk mun kannast eitthvað við mig. Ég lendi í þessu ítrekað. Síðasta vetur fórum við með vinum okkar, Sigga og Berglindi, til Vestmannaeyja og hittum þar foreldra þeirra, mamma hans Sigga kannaðist rosalega við mig. Fólk er alltaf að heilsa mér útá götu, og þá kemur maður sér í algjöra klemmu á þessu litla landi; hversu vel þekkir maður fólkið sem maður heilsar? Það er einn kaupmaður á Laugaveginum sem heilsar mér alltaf og spjallar, gefum okkur að ég myndi gleyma stígvéli hjá honum og hann ætlaði að kalla á eftir mér, hvað myndi gaurinn segja; Hei, þarna....manni? Ég er ekki endilega ánægður með þetta og þetta er ekki eitthvað til að gorta sig af. Ég hlýt að vera svona einstaklega ófrumlegur í útliti eða sérlega minnistæður með eindæmum...
04 nóvember 2003 Í Danmörku. Við Bryndís vorum búin að ákveða að eyða einum degi í verslanabrölt og klára það svo það yrði frá, fimmtudagurinn var það heillin og við flúðum úr geigvænlegum kulda á Strikinu inn í verslunarmiðstöðina Fisketorvet sem er skammt undan lestarstöðinni. Þar var hlýtt og við náðum að kaupa heilmikið þar, einfaldlega vegna þess að þar eru allar búðir sem maður vill heimsækja. Til dæmis H & M (þ.e. Hannes og Mörður) en þar keypti ég ansi hlýja úlpu (grunlaus um tískuna í dag) ásamt mörgu öðru.
Föstudagurinn, líkt og miðvikudagurinn fór í næsheit, en á föstudeginum flökkuðum við aðeins um borgina. Byrjuðum á því að fara uppí Sívala turn og þaðan ákváðum við hvert skyldi stefna. Við fórum víða en minnistæðast er göngutúrinn okkar um Kristjaníu, þar sem hver rassían eftir annarri er framkvæmd að lögreglunni þessa dagana. Það er geysilega merkilegt að labba þarna um og sérstakt að fara aðeins út fyrir hið helsta túristasvæði og sjá híbýli fólks, fólksins sem er ekki útúrreykt alla daga og kemur óorði á alla aðra íbúa. Helstu vonbrigði dagsins voru á kínverskum veitingastað í miðbænum seinn um kvöldið, þar voru þeir helst til of litlir og matgrannir, þessir dönsku kínverjar!
Á laugardeginum skildu leiðir, Bryndís fór til Möggu vinkonu sinnar í Óðinsvéum en ég fór með vinum mínum í bókabúðum Skandinavíu, með rútu til suðvestur Sjálands og átti þar fína ráðstefnudaga. Ég held ég fari ekki að tíunda það sem fór þar fram en ég kem upprifinn til baka og tilbúinn að halda uppi heiðri starfi bóksalans. Það er mikill munur á þessu starfsgildi annars staðar á Norðurlöndum en hér. Vissuð þið til dæmis að rúm 60% starfsfólks í bókabúðum Danmerkur eru faglærðir bóksalar með tveggja ára nám að baki? Tveggja ára samningsbundið iðnnám líkt og með t.a.m. hárskerann hér!
11:30 e.h. Ekki vera feiminn
03 nóvember 2003 Einn, tveir og byrja.. Jæja, víst að fólk útí heimi er fari að kvarta yfir fréttaleysi. Þá verð ég að fara taka mig á. Jú, ég var í Danmörku og kom aftur, og ég hef einfaldlega ekki átt tímaaflögu fyrren nú til að setjast við skriftir. Bryndís mín kom heim á sunnudeginum fyrir viku en þá átti Stefán að koma frá Ísafirði en það var ófært. Hann kom daginn eftir og síðan kom ég eftir miðnætti þetta kvöld. Ég var búinn einhverju áður að ráðgera galdradagskrá þetta þriðjudagskvöld í samvinnu við galdramenn á Ströndum. Það var frábært. Næsta kvöld fór í hljómsveitaræfingu en ég hafði fengið SMS frá Gumma um leið og ég lenti á Leifsstöð um að við værum að spila á Nasa á fimmtudagskvöld. Það var og. Við spiluðum á frekar slöppum tónleikum, Nasa alltof stór fyrir okkur Maus og Kimono þetta kvöld. Á föstudagskvöldið var hinsvegar Máls og menningar-partí á Grand Rokk, mikið drukkið og haft gaman. Klukkan 23.30 steig svo á svið hljómsveitin Miðnes, sem margir lesendur þessarar síðu kannast kannski við! Ég sat við hlustir og fékk í lok, að gjöf áritað eintak af nýjustu plötunni þeirra sem heitir alein. Þetta var hið áheyrilegasta popp og ýmislegt á plötunni aldeilis fantagott. Helgin fór í vinnu (selja Harry Potter og Arnald), afmæli og heimsóknir og svoleiðis, borða og horfa sjónvarpið og ..... ég gat bara ekki bloggað!
Úff, þegar líður svo langur tími á milli skrifa þá verða skrifin bara leiðinlegri, hálfkláraðar setningar og tilkynningaskylda. Ég hef frá miklu að segja, t.d. frá Danmerkurferðinni, en nú er þetta svo snöggsoðið orðið hjá mér svo ég ætla bara að hætta í þetta skiptið. Ég blogga bara strax aftur á morgun. Enda er ég upptekinn nú við prófarkarlestur fyrir plötuna okkar... sem er við það að verða tilbúin!
20 október 2003 På onsdag skal vi rejse til köbenhavn og måske få store fadöl og smörrebröd og blive pissefuld...måske! (ég veit ekki með smörrebrauðið) Mánudagur. Ég var hjá sálfræðingi um daginn, hann hjálpar mér að takast á við mánudaga. Hann lagði upp að það besta við t.d. þennan mánudag væri að það er rosalega langt í næsta mánudag. En allt snýst þetta nefnilega um hugsun, líðan og hegðun. H.L.H...! Maður hefur val um hvernig manni líður. Maður ræður því hvort maður komi andvarpandi eða valhoppandi í vinnuna á mánudögum.
Airwaves búið. Ég sá SKE í þjóðleikhúskjallaranum, það var alltílagi. Troðfullur kjallarinn af gáfumönnum með fingur á höku. Ég smellpassaði þarna inn. Á laugardaginn sá ég svo Mínus á Gauknum og síðar Eighties Matchbox B-Line disaster. Mínus voru í fantastuði og var þetta í fyrsta skipti sem ég sé Mínus læf, en mig hefur dreymt það gerast. Eighties Matchbox voru snarklikkaðir og ég var að fíla þá geðveikt en hávaðinn var aðeins of brútal. Svo vorum við strákarnir í Dr.Gunna líka að spila á Grand á fimmtudag, það gekk voða vel og ég sá í dag að Árni Matt hjá Morgunblaðinu gaf okkur frábæra dóma fyrir konsertinn. Þið getið annars lesið um
giggið hjá Gunna.
Við erum að fara til Kaupmannahafnar. Eigum að mæta í rútuna um 5.30 næstu nótt. Þetta verður ágætt, við Bryndís fáum smá kvolitítæm saman og svo fer ég á ráðstefnu bóksala í Skandinavíu. Hún verður haldin í Karrebæksminde, í suðvesturátt frá miðborg Köben.
Frægikalldagsins: Stefán Bjartur Kristjánsson, það var bara tímaspursmál hvenær röðin kæmi að honum. Kappinn atarna er byrjaður að labba óstuddur eins og herforingi (eins og fullur herforingi), en hann fór vestur í hreina loftið í morgun og verður í viku eða þartil á sunnudag. Við erum strax byrjuð að sakna hans óheyrilega og leyfi ég mér að efast um að við eigum eftir að sofa mikið í nótt. Bjartur minn, ef þú ert að lesa þetta; " við elskum þig"....
11:15 e.h. Ekki vera feiminn
13 október 2003 Hæ, hvað segiru? (hafið þið ekki heyrt þegar Magga Vilhjálms segir þetta í Og vodafone auglýsingunni? Ógeðslega væmið og sleasy!)
Jæja, ha, hvað er að frétta? Jú, bara þetta venjulega. Vinna og borða og sofa og svona.. Bryndís er að skúra á mánudags- og miðvikudagskvöldum og tímabundið smá um helgar. Við erum að undirbúa okkur fyrir Danmerkurferðina í næstu viku. Við förum annan miðvikudag, Bjartur fer vestur í hreina loftið, til ammna og afna sinna í kjarrholti og túngötu, núna á mánudaginn (Sigga, þú lætur mig vita ef það er eitthvað vitlaust í textanum). Það verða nú viðbrigði. Annars ætlum við Bryndís bara að chilla í Köben, kíkja á íslendingaslóðir, strákana í Fjölni, Nonna Sig og Ingibjörgu, og jafnvel á bókasafnið til Árna Magg.
Airwaves hefst á miðvikudaginn. Við spilum á Grand Rokk kl. 00.00 á fimmtudagskvöldið. Gaman væri að sjá sem flesta, en alls ekki alla!
Ég horfði á Eddu-verðlaunin á föstudaginn, hundleiðinlegt. Nema það var fyndið að sjá close-up-ið á Steina, sem alltíeinu var orðinn lífsförunautur Ómars Ragnarssonar. Ég get ekki einu sinni ímyndað mér þá tvo í sama partýi. Ég er einn af þeim sem ekki fór á Nóa Albínóa í bíó, en ég tók upp Edduverðlaunaútsendinguna og er búinn að klippa saman Nóabrotin sem þar voru sýnd. Í grófum dráttum þá eru þetta efnistök myndarinnar: Nói býr í Bolungarvík. Þar er leiðinlegt svo hann hárreitir sig og verður alveg hárlaus. Pabbi hans heldur sig vera Elvis. Það er alltaf blóð í matinn heima hjá honum. Píanóið er falskt. Hann á ekki vekjara en mamma hans vekur hann með haglabyssu. Hann fer í banka með þennan sama vekjara en er rekinn út. Hann reynir að komast úr þessu skítapleisi með því að grafa holu. Hann reynir að fá sjoppustelpuna til að flýja með sér en hún er alltaf að vinna, svo að Greipur fer bara með honum.
07 október 2003 Eldgamla ýsa, ástkæra fýsa. Það var naumast rokið þegar ég hjólaði úr vinnunni í dag, fólk var rosalega mikið að flýta sér og mér fannst ég greina skelfingarsvip á mörgum. Það var eins og allir væru að forða sér, ég hugsaði með mér hvort Heimsendir væri í nánd, hvort allt væri að fjúka til andskotans. Ég vaknaði þegar konan mín lagði rjúkandi soðna ýsu og kartöflur á borðstofuborðið. Gamla góða ýsan! Trúin flytur fjöll en ýsan flytur fólk aftur í hversdagsleikann.
Við Bryndís erum á leið til Kaupmannahafnar, förum eftir tvær vikur. Bjartur ætlar á meðan í hreina loftið fyrir vestan. Við ætlum bara að gera eitthvað skemmtilegt en síðan fer ég á þriggja daga námskeið á vegum VR og Pennans ásamt Benna verslunarstjóra Eymundssonar í Kringlunni. Ég þekki hann ekki neitt. Námskeiðið er í klukkustundarfjarlægð frá centrumi Köben, verst er þó að námskeiðið skuli bara ekki vera á Jótlandi, en þar býr bróðir minn ásamt fjölskyldu, það hefði verið gaman að hitta hann en það verður bara næst, og styttist í það.
Hljómsveitin Dr.Gunni mun spila á Airwaves næsta fimmtudag, þann 16.okt, kl.00.00, á Grand Rokk. Þið getið kynnst bandinu lítillega með því að fara á icelandairwaves.com og skoðað artists og smellt á Dr.Gunna, ég get það nú ekki sjálfur hér heima, gamalt windows?, annars hefði ég linkað á þetta. Svo fer nú óðum að styttast í Stóra hvell.
01 október 2003 Komið þið sæl og verið velkomin að skjánum. Jú, það var ekki að ástæðulausu sem ég minntist á sérkennilegt fólk í miðbænum. Nokkuð hefur borið á því að nokkrir geðsjúklingar venji komu sína í BMM á Laugaveginum, og ekki nóg með það heldur límst á einstaka starfsmenn. Ég hef nú reyndar sjálfur verið frekar heppinn með það og helsta dæmið er það að fullorðin kona frá Stokkseyri hefur ítrekað hringt síðustu tvö árin og spurt um mig, af því að ég var einhvern tímann voða næs (með virka þjónustulund) og gerði þau mistök að segja til nafns. Eitt sinn hringdi hún daglega í tvær vikur og spurði mig um um viðtalsbók Jónasar Jónassonar útvarpsmanns, hvernig hún væri, hvað hún kostaði, hún væri að spá í að gefa hana í afmælisgjöf! Svo vildi svo óheppilega til að ég var alltaf í kaffi þegar hún hringdi eftir það.
Við Bryndís stóra systir mín vinnum einmitt bæði í miðri flórunni og er ég viss um að hún lumi líka á hressandi sögum, en hún á einmitt við eitt keis að stríða. Eldri kona kom fyrir löngu síðan á Lóuhreiður og heilsaði henni viðkunnanlega og sagðist akkúrat vera að vestan eins og hún, bað svo fyrir kveðju vestur til mömmu og pabba. þessi kona kallar Bryndísi alltaf Möggu og er Bryndís komin í þann vítahring að geta ekki spurt hver hún sé, í ótta við að móðga hana, og hvað þá heldur að segjast heita Bryndís. Konan kom á dögunum þegar Bryndís var ekki við vinnu og spurði eigandann um Möggu að vestan og þvertók fyrir að hún ætti við einhverja Bryndísi..!
Bjartur er þessa dagana mikið að flýta sér að þroskast og er byrjaður að labba, þ.e.a.s. hann hefur tekið sín fyrstu skref en er ekki alveg tilbúinn til að sýna öllum. Þetta er eins með lesturinn, hann kann að lesa en bara ekki upphátt. Hin ógnarduglega húsmóðir á heimilinu er byrjuð að skúra rannsóknarstofu niðrí bæ, þrjú kvöld í viku og förum við strákarnir þá saman yfir helstu atriði þess að vera karlmaður; horfum á fótbolta, hlustum á Cash og skoðum bíla. Ekki get ég beðið Fjalar um að kenna Stefáni um bíla, frekar allt annað.
Til hamingju með afmælið Sunna mín, biðjum að heilsa stóru og litlu Sleggjunni.
Frægikalldaxins: Pálmi Gestsson leikari, en hann hringdi í búðina á dögunum og bað um "Kristján vestfirðing", ég kom í símann og kom þá uppúr dúrnum að hann bráðvantaði bók sem mér tókst að sjálfsögðu á endanum að redda og sýndi ég af mér góðan þokka, hæfni í þjónustu, mikla sölutækni og afburðalétt geð... þrátt fyrir að Pálmi sé frá Bolungarvík!
10:50 e.h. Ekki vera feiminn
Meðal efnis í kvöldblogginu; - miðbæjargeðsjúklingar sem límast
- nýjustu afrek s.bjarts
- sunnu guðmundsdóttur verður óskað til hamingju með daginn
- og fleira sem kemur á óvart.
29 september 2003 FOOOOOCKK! Ótrúlegt hve tíminn líður hratt
Þetta set ég nú bara hér til að minna fólk á að ég er alls ekki latasti bloggari í heimi.
Það er stundum einhvern veginn þannig að maður hefur ekki frá neinu merkilegu að segja. Ég er að vinna, fer á ýmis námskeið og fyrirlestra, borða á Lóuhreiðri, fer heim eftir kl.18.00, horfi kannski á sjónvarpið og svo að sofa. Ég veit þetta kemur ykkur á óvart en svona er þetta, ég er bara venjuleg manneskja og upplifi lifrakæfugráa hversdagsleikann eins og þið hin. En hver segir að hann þurfi að vera leiðinlegur? Maður einfaldlega lækkar fjörstuðulinn um nokkur t-stig (þ.e. travolt) og getur þess vegna haft gaman af lestri ómerkilegra bóka, hlustað á froðutónlist, horft á ódýrt sjónvarpsefni og þess vegna dansað línudans og skellihlegið yfir öllu saman.
Mér datt í hug á dögunum að plögga smærri bókaútgefendum í búðinni okkar og hringdi í tvo vestfirska forleggjara; Strandagaldur á Hólmavík og Vestfirska forlagið á Hrafnseyri. Ég bauð þeim í smá samstarf og ætla þeir að kynna bækur sínar í búðinni nú í október. Hallgrímur hjá Vestfirska forlaginu var ansi hrifinn af þessu frumkvæði og sagðist láta markaðsfulltrúann sinn hringja í mig í hið fyrsta. Og hver haldið þið að það sé??? Enginn annar en HEEEMMMIII GUUUNNN! Þvílík öskrandi snilld! Hemmi hringdi, við tjöttuðum heillengi, hann kallaði mig elskuna sína og við ætlum að hittast seinna. Hemmi er frábær, svo er hann með leyninúmer 692- ..eitthvað!
Seinna sama kvöld var ég að horfa á Popp tíví, og þar gerði Sveppi sér lítið fyrir og gerði sogblett á Hemma. Hann saug úr honum virðinguna. Mér var ekki skemmt. Sama hversu ég skrúfaði niður um mörg travolt.
23 september 2003 Kæra dagbók! Haustið er komið og kuldaboli líka. Hvert fer kuldaboli á sumrin? Um daginn þurftum við að byrja á því að skafa af bílnum áður en við lögðum af stað í vinnu. Bíllinn var alþakinn laufblöðum. Um helgina heyrði ég í Birki bróður mínum, símleiðis frá Danmörku, þar var 25 stiga hiti og sól, skömmu síðar heyrði ég í mömmu á Ísafirði, þar voru helstu fjallvegir í grennd ófærir og snjóað hafði töluvert í byggð. En hér í Reykjavík er voðalega sjaldan eitthvað veður. Bara bölvað hálfkák. Kannski vegna mengunar nær hvorki blíðviðri né óveður hingað og úr verður rigningarpiss eða þokkalegt gluggaveður...
Þau gleðitíðindi bárust okkur í gær að Dagbjartur Óli Gunnarsson væri kominn í heiminn, það gerðist ca. kl. 08.16 og var hann 16 merkur og 53.5 cm. Þetta er stórkostlegt og viðbúið að hljómsveitin Dr.Gunni hægi á sér í pönkinu og spili einungis ballöður. Platan sem átti að heita Stóri hvellur, mun eiga að heita Lífið er yndislegt!
Það versta við þessi skrif er það að ef maður hittir vini sína þá hefur maður ekkert að segja, allar fréttir þegar lesnar, ég er eins og opin bók. Svo veit ég náttúrulega ekkert hvað er að gerast hjá öllum hinum.
Ég er með tvö símanúmer í símanum mínum sem hafa ekkert nafn og ég þori ekki að hringja í þau. Sá sem getur veitt mér upplýsingar um þessi númer, vinsamlegast látið mig vita!
896-7801 893-4810 Jæja, ég ætla að fara að klappa konunni og bið að heilsa..
18 september 2003 Jæja, það var mikið að eitthvað gerist hérna. Djísus, hversu merkilegt það fyrirbæri sem bloggið er! Fólk getur orðið háð lestrinum, og skrifunum og sömuleiðis getur bloggleti orðið að nagandi samviskubiti. Mér leið illa síðustu vikuna þegar ég labbaði framhjá tölvunni minni, hún horfði á mig með hvolpasvip og spurði hvort ég ætlaði ekkert að fara að blogga.
Það hafði nú líka áhrif hversu lélegur ég var um daginn að kalla Svövu Rún Dennadóttur, Svövu Rán. Ég var miður mín. Svona get ég verið fatlaður, verð stundum klaufi með nöfn, kynnti Sjöfn, konu Jóns Ólafssonar í Nýdönsk, fyrir Bryndísi og kynnti hana sem Sif.. eða var það öfugt! En blessun hvílir þó yfir mér því ég man öll bílnúmer og símanúmer!! Jón Ólafsson á Ford Escort station og númerið er JT 359. Frábært, finnst ykkur ekki!
Í göngu minni á Lóuhreiður á dögunum, fór ég að hugsa hvort viðskeytið " - Íslands" sem seinna nafn í heiti fyrirtækja einhverskonar, væri yfirleitt heppilegt. Til dæmis var Hljómsveit Íslands leiðinleg, Höfundur Íslands frekar slöpp bók, Bílasala Íslands glötuð, Ríkisstjórn Íslands viðbjóður, svo er Leikfélag Íslands farið á hausinn. Það er nú kannski Sinfóníuhljómsveit Íslands sem heldur haus en það er nú af öðrum ástæðum.
Í fréttablaðinu í dag voru á sömu opnunni tvö ansi sláandi og sorgleg fréttaskot. Hið fyrra fjallaði um ofurparið Birgittu og Hanna sem eru barasta hætt saman. Talað er um fréttina sem mikið reiðarslag fyrir aðdáendur. Bryndís mín er að kenna 11 ára bekk í Háteigsskóla og sagði krakkana hafa sýnt mikla stillingu.. þrátt fyrir tíðindin! Er ekki Valur í Buttercup á lausu. Hin fréttin var enn sorglegri; þar var mynd af mánaðargömlu ungbarni á SUS-þingi. Þarna var klárlega um yngsta SUS-arann á þinginu að ræða og voru foreldrarnir að rifna úr stolti, harðákveðin að ala upp sjálfstæðismann. ".. mig langaði svo mikið í mynd af barninu með Davíð Oddssyni." sagði mamman og nefndi nafnið "Davíð" sem líklegt á nýbakaða og nýskráða sjálfstæðismanninn.
Er þetta ekki einmitt reginmunurinn á Sjálfstæðismönnum og öðru eðlilegu fólki. Börnunum er ekki boðið uppá val, ekki sjálfstæðar hugsanir, ekkert frelsi...fussumsvei!
12:00 f.h. Ekki vera feiminn
09 september 2003 Þjóðfélagsrannsóknir.is Ég var gerður að subjecti í dag í rannsóknarverkefni á vegum listaháskólans. Nemandi í vöruhönnun, Páll Einarsson að nafni, hitti mig í hádeginu og fékk að fylgjast með matarvenjum mínum. Við fórum á Lóuhreiður að sjálfsögðu og þar fékk ég dýrindis kjúklingarétt með cous-cous og salati, mjög gott en alls ekki dæmigert fyrir matseðil staðarins. Palli var að fullu í að documentera, tók myndir og skráði hverja hreyfingu, síðan fékk ég mér kaffi en hann te. Að lokum var hann sáttur og ég saddur. Niðurstöður verkefnisins verða ekki ljósar fyrren seinna í haust og er ég að vonast til að þær verði gagnvirkar. Ég hef svo mikla trú á snilli Páls Einarssonar að ég efast ekki um annað en hann finni upp seddupilluna, svo borðar maður hana og barbípilluna á eftir...
Annars ræddum við Páll um svokallaðar neyslugildrur þjóðfélagsins sem eru komnar útí öfgar. Ef maður kaupir sér síma í dag fær hann ákveðna inneign, út að borða og bíómiða. Fyrst fer hann út að borða, nótan er happdrættismiði sem fer í pott og í vinning er utanlandsferð, svo fer hann í bíó og kaupir að sjálfsögðu popp og kók. Aftan á bíómiðanum er 50% afsláttur á American style, hann slysast þangað inn og er svo heppilega hundraðasti gestur dagsins og fær blíðlegar móttökur frá Hunt´s kallinum (fullorðinn maður klæddur í stóra tusku-tómatssósuflösku) og í vinning fær hann ársbirgðir af "ekki bara tómatssósu". Vitaskuld vinnur hann utanlandsferðina, til Indlands (þetta var indversk mynd sem var í bíó), kynnist innfæddri konu, á með henni góðar stundir og í eirðarleysi fallega kvöldstund kroppar hann óvart í rauða punktinn sem konan er með á enninu milli augnanna. Viti menn, var punkturinn ekki bara skafmiði og maðurinn vinnur fullþroskaðan fíl. Allt þetta útaf einum helvítis farsíma...
Við heimsóttum Denna og fjölskyldu um síðustu helgi, en hann á einmitt stafræna myndavél og tók nokkrar frábærar myndir af Bjarti og Svövu Rán. Þær eru hér. Ég þori ekki fyrir mitt litla líf að kaupa mér stafræna myndavél.
9:37 e.h. Ekki vera feiminn
08 september 2003 Tíðindalaust á austurvígstöðvunum.. Ósköp venjulegur dagur í bókabúðinni. Haruki Murakami kom og keypti ferðakort af Íslandi, hann var voða hress og var á leiðinni út á land. Hann ætlar að koma og árita á morgun í búðinni kl.19.00. Ég sagðist hlakka til að hitta hann á morgun og sagði á ensku ".. drive carefully"! Mig langaði til að vara hann við umferðinni og hann ætti sérstaklega að varast nýútskrifuðum unglingum á Hyundai-bifreiðum, en ég vildi ekki hræða hann. Það væri ömulegt mál ef hann ætti svo ekki afturkvæmt. Hvað er ég að hugsa. Síðdegis komu svo menn frá Danmarksradio og fengu hjá mér leyfi til að taka viðtal við Mikael Niemi (Rokkað í Vittula) í búðinni. Þeir tóku líka stutt viðtal við mig um vinsældir Niemi hér á landi og vildu fá mig til að tala við Niemi þegar hann kæmi í búðina. Hann kom að sjálfsögðu of seint og ég gat ekki beðið lengur, lagði af stað heim úr vinnu en mætti honum í dyragættinni. Hann getur jú alveg hagað sér eins og rokkstjarna en hann gleymir því að ég er líka rokkstjarna..
Murakami, á morgun kl.19,00!!
07 september 2003 Ég hugsa í tólf mínútur á dag! Á hverjum degi í hádeginu labba ég úr vinnu á Laugavegi 18 og að Lóuhreiðri sem er að Laugavegi 59. Þetta er um 6 mínútna labb. Í þessum göngutúr mínum, fram og tilbaka, u.þ.b. 12 mínútur, þá hugsa ég! Fyrir utan þessar tólf mínútur hugsa ég ekki neitt. Afgreiði fólk með bækur, fer heim að borða, horfi á sjónvarpið, vaska upp og svo að sofa.
Í miðri síðustu viku labbaði ég af stað á Lóu, féll í trans og byrjaði að hugsa um tilveru mína þessa dagana. Ég kom frá Ísafirði fyrir fimm árum síðan þar sem allir þekkja alla og flutti strax beint í miðbæinn, 101 Reykjavík. Nú hef ég verið að vinna hátt á þriðja ár í Bókabúð Máls og menningar, þangað sem þverskurður þjóðarinnar kemur og drekkur í sig menningu og þar sem hjarta miðborgarinnar slær sem hæst. Þótt höfuðborgin sé stærri en Ísafjörður og innihaldi töluvert fleiri íbúa, þá sé ég engan mun á tilverunni hér en þar. Ég labba sömu vegalengdir, sé alltaf sama fólkið dag eftir dag og himininn er ekkert stærri en yfir vestfjörðum.
Þar sem maður rekst á sama fólkið út á götu oft í viku, þá fer maður ósjálfrátt að heilsa því. Heimurinn verður of lítill. Ég er að labba á Lóuhreiður, mæti ég Sigurði Pálssyni rithöfundi sem heilsar og segir "Ca-va?", ég segi "ca-va bien", labba síðan framhjá JP-tattústofunni og vinka Fjölni, sem er bara í nærbol, heilsa svo Guðsteini Eyjólfssyni, stoppa aðeins hjá Óla Bödda í Levi´s og Reynari í Brimi, kemur þá ekki Addi trommari í HAM á hjóli og ég kalla á hann "blessaður". Er ég labba upp stigann á Lóuhreiður mæti ég Brunamálastjóra og ég segi hiklaust "góðan dag"! Er ég kem síðan á Lóuhreiður sé ég Heiðu, sem er geðveik og er ógæfu- og útigangskona, ég kinka kolli og sest síðan hjá Hallgrími Helgasyni.
Í tilveru sem þessari hrannast vandamálin upp. Hversu vel þekkir maður fólk? Á maður að heilsa eða ekki? Verður viðkomandi sár ef maður heilsar ekki? Sér viðkomandi að maður reynir að forðast augnsamband? Gerir maður sjálfan sig að algjöru fífli með að vera heilsa bláókunnugu fólki úti á götu? Þetta er erfitt.
Mér hefur oft dottið það ráð í hug að labba bara Hverfisgötuna aftur í vinnuna en ég gleymi því ætíð jafnóðum og stoppa hjá henni Eygló í Hversdagshöllinni og kaupi mér rauðan Ópal.. sykurlausan. Best væri að hafa lélega sjón og heilsa bara í þeim tilfellum er hinn aðilinn heilsar á undan. Auk þess hef ég alltaf haldið að gleraugu færi mér vel, en ég þarf ekki á þeim að halda.
03 september 2003 Miðvikudagur. Miðlægur dagur. Miðstýringardagur. Miðlungsdagur. Miðviðunardagur.
Nú fer skólatörninni senn að ljúka, hún er búin að vera algjört fokk. Annars eru skólakrakkarnir almennt verulega góðir kúnnar, í það heila. Túristarnir eru enn að þvælast um borgina, ég sé þá alla morgna þegar ég fer hjólandi í vinnuna og svo aftur á leiðinni heim. Ég hjóla alltaf framhjá Hallgrímskirkju og vafalaust er ég inná öllum ljósmyndum túristanna af kirkjunni þetta sumarið. Ég verð svona fenómenon í framtíðinni þegar rýnar skoða í gömul myndasöfn af kirkjunni.
Merkilegt er þegar maður er að afgreiða útlendingana og býður þeim poka; " Would you like a plastic bag?", þá segja þeir; "Yes, because it´s raining outside". Ég þarf nú enga ástæðu fyrir helvítis pokanum..!
Annars er að hefjast bókmenntahátíð í Reykjavík á sunnudaginn. Fullt af erlendum höfundum sem eru spennandi; Yann Martel (story of pi), Mikael Niemi (rokkað í vittula), Haruki Murakami (norwegian wood), Henning Mankell (sænski arnaldur) og fleiri. Eftir að hafa lesið Rokkað í Vittula sem kom síðustu jól á íslensku, þá væri ég alveg til í að hitta Niemi og Finlandia í einhverju partýi. Ég myndi syngja með honum finnskan tangó. Það yrði ansi hressandi.
Annars er nýjasta æðið á heimilinu Borðtennis. Bryndís keypti heimaborðtennissett um daginn og skora ég á hvern sem þorir að kikja í kaffi og borðtennis.
10:41 e.h. Ekki vera feiminn
01 september 2003 Komið þið sæl. Nú er haustið komið, minn tími er kominn, haustlitirnir. Ég verð að fara útí búð og kaupa mér ný föt í haustlitunum. Sinnepsgul, rústrauð, fjólublá. Ég veit ekki hvort ég get klætt þessa síðu í haustliti, ég er alveg sáttur við þessa liti en ef ég prófa nýja þá er um lítt fögur og stöðluð lúkk að ræða. Ég á eftir að læra þetta allt saman.
Bjartur orðinn eins árs og aldrei verið hressari. Ég á mjög fátækt safn af stafrænum myndum af honum en hér er ein. Planið var að kaupa nýjan farsíma en ég óskaplega erfitt með að gera upp hug minn, nú langar mig til dæmis að hann sé með myndavél, allavega er ég ekki á leiðinni að kaupa stafræna myndavél, aðallega vegna þess að ég er hræðilegur myndasmiður.
Síðustu misseri höfum við Bryndís verið að pirrast yfir kirkjuklukkum í nágrenninu sem klingja alla sunnudagsmorgna. Af hverju þarf að hringja þeim í 30-40 mínútur? Þekkið þið einhvern sem fyrir það fyrsta dettur í hug að drífa sig þegar heyrist í klukkunum? En þekkið þið þá einhvern sem ákveður þá að fara en er 30-40 mínútur að taka sig til? Þetta er einum of mikið af því góða. Sama má segja um helv. þjófavörn í bílum, af hverju þurfa alltaf að koma öll hugsanleg hljóðdæmi þegar kerfið fer af stað? Eins gott að það sé ekki þannig með farsíma að allar tegundir hringinga ómuðu þegar hringt væri..!
Til hamingju með daginn, Ottó Þórðarson!! Bévítans KR-loddarinn þinn, ég myndi buffa þig ef þú hefðir ekki lögin með þér.
Brandaridagsins: Hafið þið heyrt um lesblinda djöfladýrkandann? - Hann seldi sál sína til Sanitas!!
28 ágúst 2003 Neinei, brestur ekki á með bloggi! Er maður að bregðast væntingum eða hvað? Það er nú aldeilis ekki þannig að ég hafi ekki um neitt að skrifa, það er bara alltof mikið að gerast svo maður kemst ekki yfir allt saman. Mikið hefur verið um afmæli síðustu daga, en eins og sagði frá á dögunum eiga næstum allir sem ég þekki afmæli í ágúst. Berglind hans Palla hélt uppá afmæli sitt með því að starta badmintonmótaröðinni "Fagraholt open" í garðinum í Bollagötu, hinn samkyn- og bókhneigði Fjalar Ólafsson fagnaði tímamótum í gær með blendnu brosi á vör. Popppunktur á bráðum eins árs afmæli og mun af því tilefni hefja aðra þáttaröð, sjálfur fékk ég að spreyta mig um daginn í tilraunakeyrslu á þættinum. Það var rosaskemmtilegt, léttari spurningar, flottara sett, góð keyrsla og vel smurð, en ég tapaði nú samt.
Það er nú samt ekki neitt annað sem kemst að hjá mér í dag en þessi litli kappi;
Stefán Bjartur er eins árs í dag og hér er Topp 10 í samantekt liðins árs:
* Stefán byrjaði á því að fara sínar eigin leiðir, allt frá því hann kom í heiminn, hann vildi frekar nota neyðarútganginn.
* Stefán fékk að hlusta á Mutations með Beck uppá fæðingardeild, meðan hans var beðið. Platan er heldur róleg og var Stefán lengi á leiðinni, næst hef ég Midnite vultures meðferðis. Nokkurra mánaða gamall sýndi hann tilburði við að fíla Skítamóral, umsvifalaust var farið útí aðgerðir.
* Hann var eitthvað feiminn við brjóst mömmu sinnar og vildi frekar að uppí hann yrði stungið putta með grannri slöngu hvaðan sem brjóstamjólkinni var stýrt ofan í hann.
* Hann var lengi frameftir hárlaus aftan á hnakkanum. Og síðar líktist hann Steingrími J.Sigfússyni, á tímabili.
* Fyrstu brosin voru sérlega eftirminnileg ekki síst í ljósi þess að þau voru tilkomin af magaónæði og fylgdu oftar en ekki vindgangi.
* Hann var skírður í Hnífsdalskapellu, hvaðan sem öll mín trú og sannleikur er sprottinn. Athöfninni stýrði sr. Stína Gísladóttir af festu. Hún var í hempu með áletruninni IHS. Það er ekki langt síðan að ég hélt því fram að þetta væri JHS og merkti Jakob Hjálmarsson sóknarprestur.
* Við vorum lengi sannfærð um að við ættum von á stúlkubarni, allir vinir okkar töluðu alltaf um "hann", svo gekk vel að sættast á um strákanafn en ekki stelpunafn. Stelpunafnið sem við vorum svo komin niðrá varð síðan óþægilega fyrirferðarmikið í vinsælum sjónvarpsþætti um þetta leiti. Það verður þá síður ófrumlegt næst..þegar stelpan kemur.
* Um sex mánaða aldur varð gerð tilraun til að gefa honum mat, eitthvað annað en mjólk. Stöppuð varð kartafla, blönduð við smjör og honum boðið í teskeið. þá birtist fyrsti fyrirlitningarsvipurinn og jafnvel fyrsta orðið, sem var; "Hvaaa..!". Honum hefur ekki verið boðið uppá þetta aftur.
* Það leynir sér ekki þegar Stefán er að kúka, andlitsgeiflurnar minna á meistara Megas í góðum fíling.
* Stefán er kominn með mikið hár og þvílíkar krullur. Hann heillar alla uppúr skónum, m.a. ókunnuga en verst er að jafnaldrar hans eru margir dauðskelkaðir við hann og hefur hann grætt mörg ungabörnin.
6:09 e.h. Ekki vera feiminn
20 ágúst 2003 Ég meina það.. ! Nú er dagur að kveldi kominn, óvenjulegur dagur. Stefán Bjartur var sendur heim frá dagmömmunni með meinta ælupest, rétt á eftir var ég sjálfur sendur heim með meint kvef. Mamma hans Stefáns sem er hin meinta konan mín hjúkraði okkur fram eftir degi, með mikilli alúð. Skondið orð; "dagmamma". Það eru engir dagpabbar í boði einungis helgarpabbar. "Helgarpabbi óskar eftir dagmömmu" væri fyndin fyrirsögn í smáauglýsingum DV. Auðvitað er Bryndís konan mín, þó við séum ekki gift. Það er eitthvað kjánalegt við það að kalla hana kærustu, og svo er mjög óformlegt að kalla hana sambýliskonu.
Ég horfði á landsleik íslendinga og færeyinga í dag og hugsaði með mér að ef ég væri landsliðsþjálfari þá myndi ég hugsanlega mæta með þjóðsönginn á fyrstu æfingu. Hvernig er þetta annars með þjóðsönginn, kann hann einhver. Okkar kynslóð og yngri halda án efa að þetta sé KSÍ lagið og engum dettur í hug að það sé einhver texti við það. Þjóðsöngurinn hefur almennt ekki heyrst síðasta áratuginn nema í lúðraútsetningu fyrir landsleiki eða í dagskrárlok RÚV á sunnudagskvöldum. Mér finnst þetta vera metnaðarmál, það þarf að upphefja íslenska þjóðsönginn, kenna hann í skólum og syngja hann í byrjun vinnudags, hvort sem það yrði "Ó, guðs vors lands" eða einhver annar..."Ísland er land þitt" eða "Undir bláhimni" eða eitthvað.
Gaman að fá gesti á Mjúkinskinnu, ég vona að hommanum á Nesi sé fullnægt með sögunni í síðasta bloggi en hvað er með þessar 40 gráður? Ertu eitthvað að snúast? Sæl Lufsan mín, tvímælalaust er hægt að fá verri lög á heilann en þetta, t.d. eitthvað með Á móti sól, Herði Torfa, Linkin park eða Phil Collins (in the eighties), en hver er sagan bakvið lagið.
" ..þó að hún sé feit þá er hún ofsa mikið krútt, með rauða slaufu á skottinu.
Má ég ekki hafa hana hjá mér, má ég gefa henni ost, herra Jón?" Getum við sett Lalla í málið!
Ég hef séð á ýmsum síðum svona allskonar kannanir, ég þarf að fara að læra svoleiðis trix. Ég myndi hugsanlega spyrja hvort einhverjum finnist fyndnar færeysku auglýsingarnar frá Dominos?
10:17 e.h. Ekki vera feiminn
18 ágúst 2003 Sögur úr bókabransanum (Gísli Hjartar, láttu þetta vera!)! Já, komið þið sæl og hjartanlega velkomin að skjánum. Það er nú allt gott að frétta af mér, svoleiðis, voða mikið að gera í vinnunni enda vertíð. Haustskólavertíðin. Við í bókabúðinni bjóðum þessa dagana uppá ólögleg samráð í samstarfi við bókaútgefendur, framhaldsskólanemar koma með veski pirraðra foreldra sinna og kaupa rándýrar bækur sem mætti halda að væru búnar til úr panda-skinni. Merkilegt hvað kennslubækur geta verið dýrari en aðrar þótt þær séu ekki endilega bundnar inn, ég hélt að þetta væri sami pappírinn?
Okkur gengur sérlega vel, við höfum fengið slatta af aukafólki, mestmegnis þó litlar sætar stelpur með spangir en nú fyrir helgi gladdist þó guminn ég, því ráðinn var til vinnu sem mótvægi við stelpurnar, nefnilega álftfirskur sjómaður að nafni Steini Sleggja. Sjálfur er ég hæstánægður með þetta, sennilega er þetta þó of mjúkt starf fyrir hann að staðaldri en þetta er skorputörn í þetta skiptið og hefur hann unnið vel, rutt frá sér verkefnum og hefur þegar sett svip sinn á búðina og hrist uppí fólki, vílar m.a. ekki fyrir sér að segja þeim djarfar sögur af sjónum sem vilja heyra, eða öllu heldur verða fyrir!!
Til vitnis um afrek hans í BMM þessa dagana fer hér á eftir stutt saga sem mikið hefur verið sóst eftir í bloggútfærslu:
Ég bað Steina að ráðast á stórt bretti af skólabókum sem kom inná gólf frá Blaðadreifingu og þurfti að ganga frá strax og verðmerkja, og sagði ég honum að taka jafnvel með sér tvær litlar stelpur í þetta. Sjálfur þurfti ég að fara uppá skrifstofu og hringja símtöl. Steini var ekki að tvínóna við hlutina og greip með sér tvær stelpur úr búðinni og færði þeim verðmerkibyssur. Ég hringdi eftir nokkrar mínútur og spurði hvort hann væri kominn af stað og sagði hann þá að hann hafi fundið tvær litlar sem til samans væru jafngamlar honum og ég hló. Steini flengdi þær áfram í verðmerkingunum og þær hlýddu en voru þó eitthvað að kvarta lítillega, " Hvenær verðum við búnar?", " Ég þarf að vera komin á annan stað kl.16.30", Steini sagði þeim einfaldlega að því minna orðagjálfur, því fyrr yrðu þær búnar!!
Eftir liðlega fimmtíu mínútur kom verkstjórinn Steini ásamt stúlkunum tveimur uppá skrifstofu og sagði að upp væri komið vandamál.
"Hafið þið séð þessar stúlkur áður?" spurði Steini, en ég og Elsa verslunarstjóri könnuðumst ekki alveg við þær og Elsa spurði hvað þær hétu.
"Silja og Sandra" svöruðu þær.
"Eruð þið að vinna hér?" spurði þá Elsa og setti upp skrýtinn svip.
"Nei, við erum bara að hjálpa honum" sagði þá Sandra og benti á Sleggjuna. Kom þá uppúr krafsinu að stelpurnar voru einungis saklausir viðskiptavinir niðrí búð þegar Sleggjan kom aðsvífandi og í einni hendingu hrifsaði þær í sitthvora lúkuna og kom þeim til verka.
Við hefðum kannski viljað þakka þeim fyrir eða jafnvel leysa þær út með gjöfum en hlátursrokurnar í okkur uppá skrifstofu hræddu litlu greyin svo þær flúðu undan í flæmingi og til þeirra hefur síðan ekki spurst. Þær gerðu náttúrulega ekkert rangt, voru bara duglegar. Ef ég væri fjórtán ára stelpa myndi ég varla óhlýðnast Steina Sleggju. Þess má geta að lokum að snillingurinn Steini er að leita sér að vinnu og ef þetta er ekki draumastarfsmaðurinn þá veit ég ekki hver það er! Steini er laus eftir nokkrar vikur, áhugasamir geta komið í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, spurt eftir Steina eða talað við mig...!
Frægikarldaxins:..er loks kominn á kreik. Ég sá Georg Ólafsson labbandi útá götu í dag. Hann vinnur hjá Samkeppnisstofnun og er ótrúlega breskur í útliti. Hann er í raun mjög líkur Stephen Fry. "Ég mæli með því Georg minn að þú hringir í Stephen og biður hann að koma og aðstoða þig, þú veldur þessu sannarlega ekki einn!"
9:53 e.h. Ekki vera feiminn
12 ágúst 2003 Ég vil fá meira pönk.. Jæja, mikil ósköp er geðveikt að gera í vinnunni. Allir eru að fara yfir um úr stressi og hver og einn starfsmaður hleypur um í eirðarleysi vitandi af nýju yfirmönnunum horfandi á okkur úr smásjá. Við erum eins og lítil lífsýni á glerplötu (..eða petrínskál? Petrískál..nei, hvað heitir þetta).
Skonrokk að byrja í næstu viku. Ekki það að ég eigi eftir að taka mikið eftir því, ég hlusta nánast aldrei á útvarp. Mummi Mótor að dissa Gunna og Sigurjón í dag í fréttablaðinu en Mummi er víst með svipaðan playlista og þeir Skonrokkmenn verða með, sem er alvöru og gamalt rokk. Ég vona fyrir þeirra hendi að Skonrokkið endi ekki í hinni hræðilegu Norðurljósa-síu sem gerir allt steingelt, froðukennt og með of mikinn diskant, þá endar það þannig eins og með allt þar innanhúss; ekkert nema sykurvellunegrapopp eða hárlaust pungarokk.
Denni ætlar sér að hressa uppá síðuna sína innan skamms með einhverri nýbreytni og vitnar þar í Frægakalldaxins hér á þessari síðu en sá skemmtilegi dagskrárliður er búinn að vera í fríi í sumar. Baggalútur er kominn úr fríi svo Frægikallinn hlýtur að fara að birtast. Denni er hinsvegar með afmælisbarn dagsins en nú í ágúst eiga næstum allir afmæli; Stefán Bjartur, Mamma, Maja, Kiddý, Gummi, Björney, Bjarnveig, Erna Sigrún, Ásdís, Bragi, Fjalar, Íris Ragnars og fleiri og fleiri.
Ég fékk stórundarlegt lag á heilann í dag, hér kemur textabrot;
"Ég á litla mús, hún heitir Heiða
ég var að greiða henni í dag
herra Jón."
11 ágúst 2003 Hei, vissuru að köttur hefur níu líf, níu! Hér er ég kominn aftur í góðu stuði. Djöfull er gaman í vinnunni. Starfsfólk í öðrum Pennaverslunum hafa komið til okkar í heimsókn og hellt úr botnlausum brunnum visku sinnar. Þetta er allt besta fólk en eitt sló mig verulega, þau eru öll alveg eins. Þau eru öll einhvern veginn sömu týpurnar, það er voða mikið fát á þeim, talsmátinn æði sérkennilegur, það gæti jafnvel hugsast að einhver minnimáttarkennd sé að hrjá þau.
Þau segja alltaf "basically, ég meina þú veist.." í annarri hverri setningu, vita allt um Alistair Crowley, hafa eflaust séð alla þættina um Buffy, the vampire slayer og einn þeirra leiddi okkur í allan sannleik um það að gullfiskar hefðu mjög takmarkað minni, hálfgert gullfiskaminni!!
Jájá, ég veit það er örugglega einhver frá Pennanum að blogga í þessum töluðu orðum um vitleysingana í Máli og menningu.. við bara vitum betur. ( Þessar staðhæfingar að ofan eiga að sjálfsögðu ekki við Heiðar, kærasta Birnu. Hann er frábær ).
Hvað er þetta annars með gullfiskaminni? Það koma alltaf upp öðru hverju svona fróðleiksklisjur, eitthvað sem festist milli tanna á fólki og sérhver rembist við að slá um sig með hinum mikla vísdóm. Enn er fólk að minnast á þetta og nú síðast heyrði ég ekki betur en að Biggímaus væri að slá um sig í laginu Life in a fisbowl, "..aftur, aftur og aftur. Dettur mér þá allt í einu í hug snillingana á Baggalúti sem sögðu okkur söguna af manninum sem ákvað að hætta að gefa "five" meðan það væri ennþá kúl!!
Ég keypti hjá Eysteini ævisögu Keith Moon nú á dögunum. Hún kom út ´98 og ég man að Lísa Páls á Rás 2 spurði mig fyrir jólin ´00 hvaða bók mig langaði í og þá nefndi ég þessa. Loksins hef ég eignast hana. Allt frá því að Óli hótelstjóri á Ísafirði sagði mér truflaðar sögur af þessum geðsjúka trommara Who, þá hef ég ávallt haft mikinn áhuga fyrir honum, þó maður komist sannarlega ekki með tærnar þar sem hann hafði hælana. Nú þarf ég að eignast meira með Who, ég á skammarlega lítið með þeim en lengi var ég ósáttur með Roger Daltrey. Nú hefur það lagast. Þess má geta til gamans að söngvari hljómsveitarinnar Ókindar er skratti líkur Keith Moon!
Stefán Bjartur hefur loksins eignast dagmömmu. Sú býr í Bólstaðarhlíð og heitir Símonía, en er kölluð Kolla. Það er rökrétt. Hann byrjar næsta mánudag en þá vantar tíu daga uppá að hann verði eins árs.
Mikið langar mig í hamborgara á Vitabarnum, ég fæ aldrei neinn til að fara með mér. Kannski ég hringi í Bibba sem er á hamborgaratúr...
08 ágúst 2003
... klukkan er orðin tólf og hér með tikynnist að rétt í þessu seldi ég sál mína hæstbjóðanda. Sá sem hreppti hnossið mig að þessu sinni er geðugur og virðulegur karl á sextugsaldri sem heitir Gunnar Dungal. Ég veit ekki hvort ég snúi aftur, bið ykkur vel að lifa!
- kriss b.m.m. eymundsson
12:13 f.h. Ekki vera feiminn
05 ágúst 2003 Barnið á að sofna! Fimmti ágúst. Sumarið er búið. Leiðinleg vinna framundan, vörutalning, eigendaskipti. Eilíft svartnætti tekið við..neinei, hvaða rugl, mér líkar vel við ágúst. Gaypride-ganga næstu helgi, maður kíkir nú í bæinn eftir vinnu. Lambastaðabændur búnir að fara til skraddarans og láta sauma á sig. Menningarnótt aðra helgi, frábær dagskrá í BMM og svo eru víst einhverjir tónleikar á Ingólfstorgi á vegum Rásar 2 og Smekkleysu, eftir því sem ég kemst næst. Gæti verið að hljómsveitin Dr.Gunni spili??
Við fórum í dag á útsölu í Heimilistækjum og freistuðum þess að finna sjónvarpstæki sem félli að okkar smekk. Við vorum búin að ákveða að fá okkur svart tæki, en nei, Jimmy Panasonic, Paul Philips og Michael Sony höfðu ólögleg samráð með sér um það að öll sjónvörp ættu að vera grá á lit þetta árið. Djö.. kjaftæði. En þá kom S. Björn Blöndal til skjalanna og bjargaði okkur snyrtilega fyrir horn svo við fórum glöð heim með svart 28" Philips á 48.000 kall. Ótrúlega snyrtilegur maður hann S. Björn!
Sjónvarpið er mjög fínt og skýr í því myndin, dagskráin mætti reyndar vera betri. Það greip mig óstjórnleg löngun í að horfa á Simpsons en ekki varð mér að þeirri ósk, ég á enga Simpsons og mig langar ekki að fá mér Stöð 2. Fór og henti kassanum utan af tækinu í Sorpu í kvöld, varð þá fyrir því að gamall karlfauskur á jeppa með kerru, bakkaði á mig. Það sást varla neitt á bílnum mínum en mig langaði rosalega að hrinda karlinum í gáminn sem stóð "Bylgjupappi", en ég sem betur fer andaði djúpt að mér og taldi uppá tíu. Það mættu fleiri taka uppá þeim sið!
S. Bjartur er að flýta sér rosalega að gleypa heiminn. Hann hefur engan tíma til að borða né sofa og helst má ekki skipta á honum um bleiu. Það er þrekraun að koma honum í háttinn, allar ráðleggingar vel þegnar á kristjan@bmm.is!
Það er fullt af fólki sem á afmæli í dag. Fyrst má fræga nefna stúlkubarnið sem fæddist í morgun, sem er frumburður Riinu (Homebreakers) og Ara Eldon (Bless), Kjartan Thor frændi minn í Toftlund á Jótlandi, Lárus Bjarni barnsfaðir systur minnar, Rósa Ingólfs, Sveppi og Neil Armstrong tunglfari (eða ekki tunglfari..?). Persónulega hef ég aldrei haldið uppá Neil Armstrong, miklu frekar Buzz Aldrin sem var annar til að stíga fæti á tunglið. Ég held alltaf miklu frekar með þeim sem eru svona í "öðru sæti". Til dæmis Halla en ekki Ladda, Andy í Wham en ekki George, Dúmbó en ekki Steina, hinum gaurnum í Milli Vanilli og svo fr....!
11:49 e.h. Ekki vera feiminn
04 ágúst 2003 The Indoorpuke 2003! Þvílík öskrandi hamingja var á Innipúkanum á laugardaginn. Hátt á sjötta hundrað manns voru þarna saman komin og skemmtu sér allir stórkostlega. Aðstandendur, hljómsveitir og gestir voru gríðarsáttir að lokum. Ég sá nú ekki alla dagskrána en ekkert fór alveg framhjá mér. Allir stóðu sig rosalega vel og verð ég þá sérstaklega að nefna meistara Mugison sem átti tvímælalaust rokkstjörnutakta kvöldsins, Trabant voru einfaldlega frábærir og Rúnk-verjar voru traustir og áttu meirihluta salsins á sínu bandi. Hljómsveitin Dr.Gunni var líka geðveik.
Margar og miklar hugmyndir um Innipúkann 2004 hafa þegar komið fram; hugmynd var uppi um að halda púkann þá í Vestmannaeyjum á föstudeginum, í Reykjavík á laugardeginum og á Akureyri á sunnudeginum. Einnig eru miklar líkur á því að púkinn verði næst haldinn í Laugardalshöllinni, vöruhóteli Eimskipa, já eða Reiðhöllinni! Eitt er þó víst; Innipúkinn verður að ári. Fylgist með..!
01 ágúst 2003 Með forvarnir í fyrirrúmi! Fólk er að taka Innipúkanum fagnandi. Menn er einfaldlega að sjá það gríðarmikla forvarnarstarf sem við erum að vinna með þessari hátíð; við snarminnkum slysatíðni helgarinnar, nauðgunum og öðru viðbjóðslegu ofbeldi, fækkum kvefpestatilfellum eftir helgina og sterkustu efni hátíðarinnar verður Thule! Það verður enginn helvítis brekkusöngur, en það verða stagedive og headbang í lagi..
Við í hljómsveitinni Dr.Gunna ásamt Rúnki munum spila í plötubúðinni 12 Tónum á morgun, föstudag, um kl. 17.00, þar munum við gefa tóninn fyrir Púkann. Allir velkomnir, léttar veitingar! Þar er forsalan í fullu swingi og er ansi líklegt að miðarnir klárist þar á morgun. Og að sjálfsögðu kaupa sér allir hinn stórkostlega Innipúkabol!
Við tékkuðum á álagningarseðlunum okkar á netinu í gær og ákváðum í taumlausri gleði að fagna innilega með því að kaupa tvö ostborgaratilboð á American style. Það var ágætt meðan á því stóð en í dag fóru undarlegir hlutir að gerast í maganum og þurfti ég að hlaupa af hljómsveitaræfingu beint heim á klósettið til að gera mína hluti. Ég er skárri núna og stefni á að þurfa ekki að taka klósetthlé á Innipúkanum. Það magnaðasta við þetta allt saman er að Bryndís konan mín, sem hefur minni úr ryðfríu stáli, sagði mér að þann 31. júlí í fyrra, á nákvæmlega sama tíma, fékk ég síðast magakveisu. Finnst ykkur þetta ekki geggjað. Bryndís er að fara yfir matseðil júlímánaðar 2002 og ég læt ykkur vita hvað það var þá sem olli kveisunni. Ef maður ætlar að tileinka sér heilbrigt mataræði og fara eftir öllum þessum áróðri, þá þyrfti maður að drekka þrjá lítra af vatni á dag, eina matskeið lýsi, tvö mjólkurglös, bryðja allskonar heilsutvennur, eitt egg, sjö tómata, hálfa gúrku, banana, tvö epli og dassa af hreinum appelsínusafa.
Fjalar, velkomnir heim! Þú kannski drífur þig í 12 tóna á morgun og færð þér smá pönk í kroppinn..þú tekur kannski með þér úlpu!
Ég fann hér frábæra síðu sem ég linka hér á einungis fyrir Bryndísi stóru systur, hún er svo mikill fan!!
12:06 f.h. Ekki vera feiminn
30 júlí 2003 Í deiglunni! Það verður ansi forvitnilegt að vita hvað gamla Spitting image-brúðan hann Björn Bjarnason gerir í þeirri beiðni vesmannaeyinga að fá Árna Johnsen heim. Eins og þeir sögðu frá á RÚV þá fékk smáglæpamaðurinn Lalli Johns ekki að fara á frumsýningu myndar um sig á sínum tíma en það er spurning hvort það skipti máli að vera Johns eða Johnsen! Ég skil ekki annars hvað vestmannaeyingar eru að spá, rosalega eru þeir fátækir ef Árni er svona ómissandi, svo eru þeir ekki mikið að spá í gjörðum Árna, allavega eru þeir ansi fljótir að gleyma. En þetta er mikil lenska hér á landi á, eins og Gunnar komst svo vel að orði um í bloggi þann 23.07 síðastliðinn. Af hverju fá vestmannaeyingar ekki bara Ásgeir Sigurvins?
Minni að sjálfsögðu á innipúkann en forsalan gengur fram úr öllum vonum og ég vona að fólk sem ætlar sér virkilega, drífi sig útí 12 Tóna sem fyrst.
Ég fór á fund Pennans á mánudag, allt lítur voða vel út. Búðirnar munu heita BMM eins og áður og það eina sem mun breytast í fyrstu er önnur kennitala, nýtt kassakerfi í búðirnar og nýtt tölvukerfi. En svo verða án efa breytingar eftir nokkra mánuði, fólki verður sagt upp, ráðin vélmenni á kassana, úrval bóka verður stórlega minnkað og einungis seldar bækur á Topp 10 listanum. Svo líður ekki á löngu þar til Penninn verður allsráðandi á markaðnum og ræður öllum verðum, svo innan skamms mun fyrirtækið eiga ólögleg samráð við bókaútgefendur og fer þá aftur uppá borð hjá Samkeppnisstofnun.. og ætli að þá sé ekki best að drífa sig burt ef ég ætla mér til dæmis í framtíðinni að verða forseti!
12:02 e.h. Ekki vera feiminn
28 júlí 2003 Innipúkinn er málið, annað er viðbjóður! Þá fer að líða að verslunarmannahelgi. Það er leiðinlegt hvað mér finnst alltaf sumarið búið eftir þá helgi. Reyndar er ágústmánuður í sérstöku uppáhaldi hjá mér, birtan og litirnir, og dimmt um nætur, mér líður sérstaklega vel í ágúst. Ætli að ég sé ekki haust? Stefán Bjartur á afmæli í ágúst, eftir réttan mánuð. Stefán Már á hinsvegar afmæli í dag!
Ég hef aldrei farið á útihátíð, svo að kalla. Ég fór á Bjarkalund með mömmu og pabba í kringum 1990, Stjórnin var að spila, en 2001 fór ég með Geirfuglum á Eldborg var þar í tvo klukkutíma. Það var viðbjóður (ég hef enn ekki fengið greitt fyrir giggið frá Geirfuglum). Ég fór hinsvegar á innihátíðina Innipúkann í fyrra og það sem var nú gaman, jeminn eini! Það má með sanni segja að sú hátíð hafi tekist vel og að sjálfsögðu verður framhald á því í ár. Ég setti auglýsingarborðann hér að ofan, ykkur til upplýsingar og vona að allir sem þetta lesa mæti. Minni sérstaklega á forsöluna sem er komin á fullswing og þar er hagstæðari kjör í boði.
Mig langar lítið á þessar útihátíðir, mér finnst þær lítt kræsilegar í ár. Eyjahátíð er mjög lítið spennandi, það er ekki nema Almamamalmahey sem heillar, Björgvin á kontrýströnd, hann er nú hrútleiðinlegur og Galtalækur er fyrir þá sem fíla spaugstofuna. Almennt er einungis boðið uppá drullu, ofbeldi, illan húmor og votviðri...!
25 júlí 2003 Rockologic map of Iceland! Rosaleg viðbrigði verða það þegar ég er búinn í fríi. Mér finnst eins og ég hafi átt mikið af fríum uppá síðustu misseri, reyndar á ég enn inni 2-3 vikur í barneignarfríi en ég klára það kannski seinna í haust eða þegar Bryndís byrjar að vinna í lok ágúst. Nú, þegar/ef ég byrja aftur í vinnunni þá verð ég starfsmaður Pennans en eins og allir vita þá keypti Penninn Bókabúðir Máls og menningar á dögunum. Samkeppnisstofnun fannst það allt í lagi, þeir hafa örugglega um aðra vafasamari hnöppum að hneppa þessa dagana. Í vetur hef ég unnið í bókabúðinni í þrjú ár og verð þá búinn að hafa a.m.k þrjá yfirmenn og þrjá eigendur, ég ætti nú að vera vanur þessu en útá landi fá nemendur aldrei að hafa sama kennarann í meira en eina önn. Nú er bara spurningin hvað búðirnar eiga að heita; Mál og penninn? Mál og penning? The bookstores formerly known as Mál og menning? Penninn Mál og menning? PMM í stað BMM? eða kannski Og menning?
Eftir sjoppuferð okkar Bibba í gær á BSÍ, ákváðum við að hefja gerð á rokkfræðikorti af Íslandi. Hvaða tegundir tónlistar hafa einkennt vissa landshluta? Þetta höfum við kortlagt í grófum dráttum eins og hér sést:
Á Ísafirði ríkti mikil menning á tímabili og var mjög framsækin plötubúð þar starfrækt og gáfu menn sérfræðingum að sunnan ekkert eftir í framsækinni tónlist, á sama tíma í Bolungarvík keyrðu menn útí búð á gljáfægðum Toyotum og keyptu nýjustu Pottþétt, sunnar á vestfjörðum hlustaði fólk á Iron Maiden og Judas Priest en svo opnuðu göngin. Undir Snæfellsjökli ómar spirítúalmúsik og ambient, í Borgarnesi flatt og ófrumlegt popp og í sjálfri höfuðborginni keppast menn um að hlusta á "réttustu" tónlistina. Froðupopp hefur lekið yfir allt suðurlandsundirlendið svo hár íbúa hefur aflitast, á Vík í Mýrdal er basic g-c-d lög vinsælust og á austurlandi er mikil hefð fyrir jasstónlist. Enginn veit af hverju. Á Langanesi hlusta menn varla á tónlist, reyndar býr þar trommari Tveggja dónalegra hausta en þeir spila einmitt varlatónlist, yfir Húsavík liggur ríkjandi pönkbylgja á meðan Akureyringar vilja heyra eitthvað íslenskt. Skagfirðingar syngja einungis sjálfir og Kántrýbæingar hlusta á samnefnda músik, á Blönduósi er hratt drum and bass vinsælt en fólkið á Hvammstanga hlustar á e-z listening og heldur sönsum. Á Hólmavík og á ströndum er mikil og djúp lo-fi lægð og fer vaxandi. Ekki hafa rannsóknir á Kili verið árangursríkar en þar þykir enn reimt!
12:26 e.h. Ekki vera feiminn
22 júlí 2003 Stóri hvellur, til hvers varst þú? Rosalega var hressandi að byrja aftur í hljómsveit, þ.e.a.s. eftir langt frí og margar hljóðversstundir fórum við loks í æfingarhúsnæðið í gær og í dag. Platan okkar, sem lengi átti að heita Flatus lifir en þótti ekki nógu spennandi þar sem m.a. orðið "flatus" merkir eitthvað í átt við prump, á nú að heita Stóri hvellur og á platan eftir að verða upphafið á einhverju stórkostlegu. Hún mun innihalda 15 lög, flest mjög hröð, tvö í rólegri kantinum og eitt lag sem heyrst hefur í auglýsingu en var tekið upp aftur og mun heyrast fullunnið á X-inu og á fleiri útvarpsstöðvum nú í vikunni. Fjögur lög af þessum 15 eru líklegast glötuð, fyrir utan trommu og bassa, en björgunaraðgerðir eru í framkvæmd hjá Bibba producer, sem var að panta hjá sér varahlut á e-bay.
Ég er í óðaönn, þótt ég sé í fríi, að undirbúa dagskrá á menningarnótt í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi 18. Dagskráin er næstum tilbúin og þar verða rithöfundar sem verða hve heitastir um komandi jól ásamt tónlistarmönnum sem eru að gera góða hluti. Helst ber að nefna Guðmund Steingrímsson (SKE), Eirík Örn Norðdahl (sem er að þýða Stupid white men yfir á íslensku), Harry Potter ( eða einhver annar sem les fyrir hann) og svo að sjálfsögðu verður flutningur laga af plötunni Söngur riddarans sem mér hefur verið svo tíðrætt um og verið svo gjarn á að segja fólki hversu frábær sú plata er!! Í gær dró svo til tíðinda þegar aðstoðarmaður eiganda Pennans, Gunnars Dungal, hafði samband við mig heim og spurði um hugsanlegan kostnað á dagskránni, því jú, vissulega er Penninn orðinn eigandi á BMM, ég gerði grófa kostnaðaráætlun og sendi og verð líklegast rekinn eftir það. Allar ábendingar um laus störf eru vel þegnar.
Ég gleymdi að segja frá því að þann 06.júlí, birti ég getraun um eftirfarandi textabrot; "in a cellar among the mouses..", en þetta brot kom uppí hugann þegar mús komst innum glugga hjá okkur í annað skipti á stuttum tíma, brotið er úr lagi eftir Formaica, sem gerði ekki ýkja margt merkilegt annað en að taka upp án þess að gefa út. Ég man ekki hvað lagið heitir. Kannski ef Venni er að lesa þetta gæti hann frætt okkur um það á Mjúkinskinnu!
Rótaridagsins: Þorsteinn Br. Jónínuson, Steini er rótari Dr.Gunna en til þessa höfum við alltaf spilað á mjög óheppilegum tímum, ef hann er ekki úti að sjó að veiða rækjusamlokur eða skjóta fugla þá er hann að eignast eða skíra börn. Hann er samt mjög hraustur rótari, barngóður og glettinn.
11:52 e.h. Ekki vera feiminn
21 júlí 2003 Tja sei sei!! Jæja, við erum í sumarfríi og að sjálfsögðu höngum við ekki heima, og síður inni að blogga. Það er ekki fyrren núna þegar maður kemur til Reykjavíkur að maður getur hangið inni, því jú, hér er alltaf rigning.
Djöfull var gaman að ferðast um vestfirði. Sólin lék við hvern sinn fingur og allt var svo óhemjulega fallegt, m.a.s. var fólkið á Bíldó, Tálknó og Patró fjarska fagurt í þessari blíðu. Firðirnir voru óhemju norskir þennan dag, þá sérstaklega Trostansfjörður. Að horfa á Snæfellsjökul frá brúnum Látrabjargs var unaður og ströndin á Rauðasandi er sem betur fer, enn vel falin perla. Við vorum á þessum slóðum síðasta fimmtudag og vorum um 13 klst. á ferðinni. Vestfirðir=Bestfirðir. Þaðan lá leiðin í dalina, beint á Eiríksstaði í Haukadal, þaðan kemur Leifur heppni en hann var ekki heima. Einhversstaðar úti!
Helginni eyddum við svo í faðmi vina okkar, því skipulagt hafði verið hópútilega uppí Þverárhlíð í Borgarfirði. Helgin var æðisleg og hitinn varð okkur nærri að yfirliði. Það var lítið um fyllerísbömmera að þessu sinni, enda hópurinn loks orðinn fullorðinn og börnin okkar farin að koma með í þessa árlegu útilegu. Björgúlfur og Hálfdán Pálssynir voru í góðu stuði er þeir stripluðust niður að vatni í sílaveiðar, Stefán Bjartur skreið um allt í Hawaii-skyrtunni sinni og hræddi önnur börn með geysilegum hárvexti sínum, Birna Júlía Þorsteinsdóttir tók þessu öllu með stóískri ró og ekki var Dufþakur Gunnarsson að æsa sig mikið yfir hlutunum. Þrátt fyrir sólarvörn 25, tókst mér að brenna á undarlegustu stöðum. Svo sem eins og í Varmalandi!!! Þetta var geðveikt mikill fimmaurabrandari, langt síðan ég hef bloggað.
Ég byrja ekki að vinna fyrren 5. ágúst, þangað til munum við í hljómsveit Dr.Gunna leggja krafta okkar í tónlistarhátíðina Innipúkann 2003, sem haldin verður laugardaginn 2.ágúst í Iðnó. Dagskráin verður stórkostleg; Dr.Gunni, Rúnk, Botnleðja, Trabant, Egill Sæbjörnsson, Mugison, Curver og fleiri og fleiri. Ég skora á alla að mæta. Fyrir utan rokkið þyrstir mig í einhverja útivist, t.d. fjallgöngu ef viðrar vel, síðan langar mig eitthvert austur fyrir fjall, Kirkjubæjarklaustur?! En við förum og heimsækjum Mömmu og pabba sem verða í sumarbústaði í Svignaskarði næstu helgi.
Fyrirmynddagsins: Jón Þór Þorleifsson, smali og kvikmyndagerðarmaður sem um helgina sýndi fáséða takta í klósettgrænum Don Cano íþróttagalla. Fylgist með Jóni í Hjartslætti á Skjá einum, á fimmtudögum.
16 júlí 2003 Komið þið sæl, um leið og ég læt hér vita af mér, að ég sé á lífi, þá vil ég þakka lesendum þolinmæðina.
Ég er jafnframt staddur á Ísafirði, hef farið víða með spúsu minni og SBjarti. Á slóðir Gísla Súrs, klifrað uppí Naustahvilft, farið mikinn með golfkylfu á Skeiði, í sund á Þingeyri, tjaldútilegu í Reykjanesi og fl. Við munum halda áfram að sleikja sólina hér fram á fimmtudag en þá brunum við á Látrabjarg og svo í Sælingsdal. Á föstudag skal farið um Snæfellsnes og síðan uppí Borgarfjörð, nánar tiltekið í Þverárhlíð.
Ég hef engan tíma til að vera sniðugur núna, sem er skömm eins og ég get verið fyndinn. Heyrumst...
12:30 f.h. Ekki vera feiminn
07 júlí 2003 ".. in a cellar among the mouses.." ( getraundaxins; kannast einhver við þetta textabrot?)
Nú er ég kominn í sumarfrí og ætti faktískt séð að geta skrifað hér heilu ritgerðirnar en eitthvað verður það að bíða, því við erum að leggja af stað vestur á firði í fyrramálið og er ég eins og stendur, gjörsamlega úrvinda. Og þess vegna koma hér fáein fáránleg stikkorð, alvegúrsamhengi sem lýsa eiga helginni sem leið: Nachos, pallaolía, rigning, Next, sólgleraugu, Select, Sigrún María, kjúklingur, heimatilbúinn ís, Kiddý&Tóti, mús, meindýraeyðir, sótthreinsun, gallabuxur, Ásland, kjúklingasalat, Lambastaðabraut, Bergþórugata, 24, ostakaka, ferðatöskur, stikkorðablogg, postandpublish, signout....
12:48 f.h. Ekki vera feiminn
02 júlí 2003 Jæja...? Jæja, maður er bara voða hress, tveir dagar eftir af vinnuvikunni svo tekur við mánaðarfrí. Við ætlum að fara vestur þar sem lognið hreyfist ekki, mætum svo á ættarmót í Reykjanesi aðra helgi. Skyldmenni Bryndísar ætla að hittast en sömuleiðis verður þarna önnur ætt, þeirra Hermannsbarna í Ögri, sem þýðir að Guðmundur Birgir verður þarna meðal vor. Faðir Guðmundar, Hermannsson Dóri er þekktur fyrir miklar ræður sem gætu hugsanlega yfirgnæft allt nesið, en á síðasta ættarmóti hélt hann mikinn fyrirlestur um Whitney Houston og þær aðdróttanir sem hún mátti þola, þegar hún var sökuð um eiturlyfjaneyslu.
Seinni hluta frísins verður varið hér á suðvesturhorninu en ekki er mikið planað. Helst langar mig eitthvað austur á leið, undir jökul, en ég hef varla farið austar en á Stokkseyri!
Ég og kollegi minn Óttarr Ólafur Proppé vorum í viðtali við Morgunblaðið, þar sem talað var um bókhneigð landsmanna, vísindaskáldsögur og kiljubyltinguna. Viðtalið verður í fylgiblaði laugardagsins og fylgir mynd af okkur með...kannski plakat?
01 júlí 2003 Ég er aldrei í fókus! Þetta er glæsileg mynd hér að neðan. Spáið í það ef ég væri almennt ekki í fókus, ætli fólk nennti eitthvað að tala við mig?
Við erum annars í óða önn að bæta oná Flatusinn skrauti í formi klapps, perks (fagmælska, merkir slagverk) og bakradda. Þetta er allt voða gaman og hljómar allt saman undurvel, eins og okkur hefur verið svo tíðrætt um.
Við fjölskyldan erum annars að fara í sumarfrí eftir helgi og ætlum að ferðast eitthvað um perluna vestfirði, líta á galdrabrennur, öll úreldu frystihúsin, horfa á handtökur lögreglu á eiturlyfjasölum og mætum svo öllum fólksflóttanum á leið til Reykjavíkur...!
Ég verð í mánaðarfríi og hlakka voða mikið til, byrja að vinna aftur eftir verlunarmannahelgi. En hver veit hvort Innipúkinn ríði ekki jafnvel á vaðið um þá helgi, líkt og í fyrra?!
11:50 e.h. Ekki vera feiminn
Snilldartaktar hjá skáldinu á Haga sem kennt er við Braga.
Ef þessi mynd skyldi birtast, þá er þetta ég að hrista tambúrínu í Stúdíó Tíma í gærkvöld.
11:47 f.h. Ekki vera feiminn
29 júní 2003 Fyrriparturdagsins:..ratar beinustu leið í hin næmu brageyru Þorsteins Braga, skáldsins knáa við Hjarðarhaga;
Af sleggjunni er margt að segja en engu skal logið um Þorstein Braga,
ríðandi kom hann Jónínusonur á vit hinna sælu Sunnu-daga
menn kváðu og slógu á lær´
Nýtt og ferskt blogg í boði Blogger og blogg-guðfeðra minna! Jæja, djöfull er gaman. Ég og blogger orðnir vinir aftur, fjöldi fólks höfðu áhyggjur að ég væri orðinn eitt spurningamerki. Eftir að hafa lesið mig í gegnum leiðbeiningar í meilum og sms-kveðjum blogg-guðfeðra minna, þeirra Denna, Fjalars og Jómba, þá er ég loks skrifandi á ný. Og hvað geri ég? Jú, ég held áfram með mitt tilgangslausa raus. Ekki nenni ég að skrafa um pólitík eða hluti sem skipta máli, ég læt Grím um það, og ekki fæ ég einhverja fansí bloggsímamyndavél eins og Gunni, þannig að bloggið mitt verður ekki jafnt myndrænt og hans.
Síðustu dagar hafa verið ansi tilfinningaþrungnir og minningarnar streymt að mér um leið og ég leit til baka í kjölfar afmælis míns, sumir hlógu með mér, aðrir grétu og enn fleiri fengu gamalkunna verki. En nú er þetta allt að baki og ég horfi til framtíðar með nefið uppí loft.
Ég sá í nýjasta tölublaði Wire dóm um safnplötuna Lobster and fame sem innihelddur m.a. fyrstu afurð hljómsveitarinnar Dr.Gunna.
" Gunnar L. Hjalmarsson stands out as a top songwriter. His 1995 "First aid", performed by Unun, hymns the joys of mouth to mouth resuscitation, while his more recent incarnation, Dr.Gunni, is in the Lou Reed ballpark."
Við verðum greinilega að senda þeim Wire-mönnum plötuna þegar hún verður tilbúin, stöffið sem er þar er þeim mun betra en "cut and paste-stirða" útgáfan á the most important man in the world. Á Flatusnum verða einungis hittarar.
Jæja, við ætlum að kíkja í kaffi til Sunnu, Steina og Birnu Júlíu, þar ætla ég að gera test á skáldsleggjunni og henda í hann limrum svo sendi ég á hann botni í kvöld í góðu leveli.
Palli á afmæli í dag, til hamingju með daginn Palli minn! Og síðan eru 27 ár í dag síðan kærastan mín kúkaði fyrst í kopp.
4:17 e.h. Ekki vera feiminn
28 júní 2003 2.hluti Ég man þegar ég notaði matarhléin í frystihúsinu til að hlusta á Roxette. Ég man þegar Smári Ólafs vinur minn var alltaf skrefi á undan mér í að uppgötva tónlist. Ég man þegar Jóni Geir var alltaf hent í ruslið. Ég man þegar ég fékk bláar strípur á hárgreiðslustofu á Jótlandi. Ég man þegar vodkapelinn sprakk í innanávasanum hjá Unnari. Ég man þegar Gummi var ekki dimmraddaður hommi. Ég man er ég loks hóf göngu mína í Menntaskólann á Ísafirði var hann skírður F.V.Í og lógóið var myndað af fljúgandi mávum. Ég man að ég og Gummi sátum í herberginu hans, lásum Metal hammer og heyrðum Smells like teen spirit í fyrsta skipti hjá Andreu Jóns á Rás Tvö. Ég man þegar mér fannst virkilega flott að vera í vesti..? Ég man þegar Jesús hringdi á hótelherbergið í Portúgal, vakti okkur og kynnti sig sem fararstjóra. Ég man þegar ég hitti engil á Heathrow-flugvelli og hann sagði mér að hoppa uppí grænu rútuna sem kæmi næst. Ég man þegar ég næstum blindaðist af því að drekka varlatilbúinn spíra. Ég man þegar Sleggjan var rúmlega einn og hálfur. Ég man þegar við í Funklistanum vorum í framboði fengum við morðhótanir í síma. Ég man þegar ég fékk ekki að útskrifast frá M.Í. og Anna heitin Hermanns var brjáluð. Ég man hvað mamma var ánægð þegar ég sagðist vera kominn með kærustu. Ég man þegar ég og Geirfuglar vorum lamdir í sumarbústaði 13 við Blöndu. Ég man eftir Pegasus. Eg man þegar Stefán Bjartur kom í heiminn í gegnum neyðarútgang...
25 júní 2003 Kriss; hvert örstutt spor! Ég man hversu gaman ég hafði af því að vera á typpinu. Ég man þegar systur mínar klæddu mig í kjóla. Ég man ég sætti mig illa við að jólatré héti ekki "náná". Ég man ég var ljóshærður með Oasis-klippingu. Ég man þegar Birkir bróðir reif nærbuxurnar mínar. Ég man þegar ég borðaði yfir mig af Mixi og Marsi. Ég man að Bjarnveig átti hjól með gegnheilum plastfelgum. Ég man þegar ég var alls ekki viss um að Súðavík væri á Íslandi. Ég man að afi minn Helgi Björnsson átti alltaf bláan Opal. Ég man hve spennandi mér þótti að banka og vekja Mæju systir. Ég man þegar Jói Baddi átti ekkert Playmo svo ég gaf honum allt mitt. Ég man þegar allir voru skotnir í Önnu og Ellu. Ég man þegar kallað var á eftir mér " Kristján feiti skírður uppúr hveiti". Ég man eftir Villingunum og draugahúsinu á VHS. Ég man þegar Júlli Deddu barði í mig Arsenaldýrkun. Ég man eftir Dalla Bakvið Stýrið (DBS). Ég man eftir Högna og Svanna. Ég man eftir; "Róbert minn, komdu að borða". Ég man að við Smári lömdum Braga í bakið af því að Júlli lamdi okkur. Ég man þegar Björg Baldurs var með munninn á sér víraðan saman. Ég man eftir Didda dverg og Sigurjóni sífulla. Ég man ég ætlaði án efa að fá mér Ford Taunus einsog Dúddi Magg og Hési leigubílstjóri. Ég man þegar ég þurfti að fá tannréttingargóm og gleymdi honum í Botnskála á leiðinni heim. Ég man ég var rótari í hljómsveitinni Lottó, sem síðar varð Gógó. Ég man þegar ég varð unglingur og flutti í kaupstað (þ.e. Ísafjörð).
(þetta var fyrri hluti pistilsins; glefsur úr gamalli nútíð. Það er ekki bara Þórarinn Eldjárn sem man hluti)
24 júní 2003 Kæru vinir, þakka ykkur ofsamlega fyrir ljúfar kveðjur og kossa á afmælisdegi mínum í gær, bæði var mér vinkað úti á götu og hér í MM, stafrænar kveðjur bæði sms og hér á Mjúkinskinnu og síðan heimsóknir. Ég er bæði hristur og hrærður og á fá orð á tímum sem þessum. Á slíkum tímamótum er tilvalið að líta tilbaka og rýna í gömul spor....sem ég mun gera í kvöld í sérstökum pistli: Kriss; hvert örstutt spor!
Einn gestanna á Skinnu hafði setið við tölvuna frá 2. júní og sendi loks í gær, eftir mikla íhugun, kveðjuna; "Haltu kjafti maður". Góður.
10:33 f.h. Ekki vera feiminn
23 júní 2003
Á tímabili stóð til að hljómsveitin Homebreakers myndu spila í kvöld á Jónsmessugleði í Hellisgerði, en ekkert verður úr því í þetta skiptið. Sveitin mun þess í stað leika af fingrum fram einhverja næstu daga undir beru lofti. Nánar auglýst síðar.
22 júní 2003 Hagyrðingablogg 2003 Jæja, á mig hafa dunið vísubotnar hér á Mjúkinskinnu svo ég er uppveðraður mjög. Uppúr krafsinu kom jú að herskáldið Hulda úr Þingholtum var í heimsókn á vestfjörðum og dvaldi á óvefrænum bletti en loks lá hún ekki á liði sínu og hreytti fram tveimur dýrindis botnum.
Nú bíð ég þess í ofvæni að Kristinn Hermannsson geri stykkin sín, þá fer að komast skrið á hlutina og ekkert annað að gera heldur en að halda fyrsta vef-hagyrðingamótið. Ég er búinn að tala við Ómar Ragnarsson til að halda utan um þetta og er að spá í að fá Agnesi Bragadóttur til að taka tímann og svoleiðis, það liggur beinast við. Veit einhver meilið hjá Hákoni Aðalsteins? Þetta er annars stórskemmtilegt að fá svona feedback á síðuna með þessu móti og setur lesendur í ákveðna pressu og fá þeir aukna ábyrgð um leið svo ég fái nú ekki allar skammirnar ef ekki er bloggað nóg. Allir lesendur munu fá að spreyta sig, en einn þeirra hreytti í aðra miklum sleggjudómum hér á Skinnu og er nú í undirbúningi mikill kvæðabálkur fyrir hann til að ráða fram úr og það verður engin dverghending, heldur vikivaki!
Helgin var ósköp notaleg, Harry Potter-sjúklingar fengu lyfin sín á föstudag. Dr. Óttar Proppé kollegi minn fór hreinlega á kostum er hann útdeildi bókinni og Potterþyrsta fólkið horfði stórum aðdáunaraugum á hann líkt og hann væri sjálfur jólasveinninn. Sem er nú ekki fjarri lagi! Birna Málmfríður útskrifaðist úr hjúkrunarfræðum á laugardag og erum við vinir hennar afskaplega stolt af hennar áfanga. Í dag fórum við Stefán Bjartur á röltið í bæinn og hittum marga, þó aðallega róna sem reyndu að sníkja pening. Er einhver með pening á sér í dag, er það ekki úrelt? Maður getur ekki betlað í dag nema maður sé með posa! Við hittum síðan Bjarnveigu, Sunnu og Birnu Júlíu og enduðum svo í kaffi hjá Birnu.
Frægikarldagsins: Sigþrúður Gunnarsdóttir, ritstjóri barnabóka hjá Máli og menningu og konan hans Jóns Yngva. Við hittumst í apótekinu í dag sem er svosem ekki í frásögur færandi nema hvað að ég var að kaupa sótthreinsispritt..sem er nú varla merkilegt og óþarfi að blogga um.. En Sigga er voða skemmtileg og hress og er dóttir Silju Aðalsteins.
17 júní 2003 Botninn er norður í Skutulsfirði. Jæja, hvað er að gerast hérna. Maður er bara voðalega mjúkur eitthvað, veggfóðrandi síðuna með myndum af SBK. Það er þó engin ástæða að afsaka hluti, það virðist vera vaxandi blogglægð yfir landinu, gengur á með lénum(éljum).. Ég er að hlusta á nýju Radioheadplötuna, Palli gaf hana á heimilið áðan um leið og hann kenndi nokkur trix í HTML-inu. Radiohead hljómar ágætlega, mér fannst Kid A ágæt en hef ekkert hlustað á Amnesiac..eitthvað. Voru þeir ekki að lofa rokki á þessari nýju eftir of mikið rafbrölt, að margra dómi. Þetta er nú meiri súpergrúppan. Ef ég væri raftónlistarmaður héti ég MS-DOS!
Fyrriparturdaxins; ekki bólar á síðasta botni, þannig að ég geri næstu tilraun og beini tveimur línum vestur á firði til Kristins Hermannssonar blaðamanns og fyrrum bæjarfulltrúa Ísafjarðarbæjar:
"Þúsund travolta skemmtun er nær
þegar á svæðið mætir hann Stinni Hemm,
14 júní 2003 "Grannar, allir þurfa góða granna". Nú höfum við Bryndís búið hér í Barmahlíð í slétt ár og líkað vel. Við erum búin að koma okkur vel fyrir, finna hentugustu leiðir til og frá heimilinu, rækta garðinn og hvaðeina. Hvað getur hugsanlega klikkað? Jú, nefnilega nágrannarnir! Fyrir ofan okkur bjó ansi hresst fólk í fyrstu, berjandi kongatrommur og með fínt stuð, þau fluttu til Danmerkur. Þá komu hér þrír helgarpabbar, fyrstu kynni okkar af þeim voru þau að einn þeirra ákvað að fara í bað en var svo búinn að gleyma því þegar karið var orðið fullt. Við fengum baðvatnið svo niður til okkar meðfram veggjum, svo gangurinn fylltist af vatni. Þeir voru ávallt með mikið stuð og mikil var sú blessun að þeir hlustuðu lítið sem ekkert á tónlist, og voru ekki fyrir það að hækka. Örsjaldan mátti heyra lítið hnegg frá Celine Dion.
Nú um mánaðarmótin flutti svo hér inn kjarnafjölskylda sem lítur nokkuð eðlilega út, við biðum spennt eftir fyrstu kynnum þar til í gær, því jú, viti menn, unglingurinn á heimilinu fór í sturtu án þess að hafa þartilgert hengi fyrir bununni, sem að sjálfsögðu náði að rata niður til okkar í einhverjum mæli. Eitthvað þarf að þétta þarna uppi meðfram ofninum víst, en fyrstu kynni okkar af nágrönnum halda áfram að vera helst til vætusöm.
Ég og Gummi fórum á opnun Smekkleysusýningarinnar á föstudaginn, sýningin var svosem skemmtileg en það var ekki ýkja margt sem var rosaáhugavert, mest eru þetta blaðaúrklippur, helst voru það gömul tónleikaplaköt af tónleikum sem maður missti af, búandi á Ísafirði, og nokkrar hressandi myndir af Gunnari. Þarna var náttúrulega öll klíkan samankomin og spilaði Einar Örn músík af bráttútkomnum diski. Einar hefur því miður engu gleymt. Að lokinni sýningu fórum við á Bar 11 og fengum okkur einn kaldan og lenti ég í hrókasamræðum við Krumma í Mínus. Krummi kallaði mig Bigga og ég held hann hafi haldið mig vera Bigga í Maus og er hann ekki sá fyrsti, nefnilega talaði KK lengi við mig mjög viðkunnanlega fyrir nokkru síðan og mér brá mjög þegar hann spurðist frétta af pabba mínum! Ég held að þetta sé hárið. Hvor okkar á þá að breyta hárinu? Er ég ekki eldri! Ég labbaði mig heim af Bar 11 rétt áður en liðsmönnum Mínuss þyrsti í slagsmál, ég nenni aldrei neinu svoleiðis.
Kæra Thorlacius, ég náði nú með einhverju fikti að eyða þinni mjúkinskinnukveðju, en hún var bara svo mikið rugl og greinilegt að þú þurftir á fríi að halda.
Frægikarldagsins: Trausti Júlíusson, en hann er starfsmaður Pennans, blaðamaður á DV og liðsmaður hljómsveitarinnar Blóðtakts. Hann var á Smekkleysusýningunni og bar sig nokkuð vel.
12 júní 2003 Hér er hann Stefán Bjartur á Austurvelli mjög hugsi, enda að skoða sýningu Bertrand "Earth from the air".
12:58 e.h. Ekki vera feiminn
11 júní 2003 KISS eða fótbolti, fótbolti eða KISS. Það er spurningin. Nú er maður örþreyttur eftir ferðalagið vestur á firði. Stefán er sofnaður, enda allan daginn glímt við þjóðveginn. Svo er það bara vinnan, djöfull hlakka ég til.
Þetta voru samt góðir dagar á bernskuslóðum. Veðurblíðan lak niður brattar hlíðarnar. Og ekki var nú mengunin eins og hér í Reykjavík. Við gerðum margt skemmtilegt; við fengum snerti af golf-bakteríunni, chilluðum á Valseyri rétt eins og Gísli, Vésteinn og strákarnir þegar þeir voru að flippa fyrr á öldum og gengust síðan í fóstbræðralag, kíktum á Café Langa-Manga og fengum bragðlaust froðukaffi en hittum Rúnu og Mugison, heimsóttum Ottó og Sibbu en villtumst um leið í afmæli til Ívars sonar þeirra, sólbað í Hnífsdal og göngutúr á höfninni.
Það poppaði upp í huga mér þegar ég var staddur í afmælinu hjá Ívari Þór, að ég tel að ákveðinn vendipunktur ævi minnar hafi átt sér stað í níuára-afmæli vinar míns, Smára Ólafssonar, þegar hann fékk nýjan fótbolta að gjöf (fótbolti var aðalmálið) og vinylplötu, Destroyer með KISS. Upphófst mikil togstreita í afmælinu sem endaði með því að allir fóru út í fótbolta, nema ég og Smári. Við vorum eftir og hlustuðum á KISS.
Hvar væri ég í dag hefði ég farið út í fótbolta. Ekki hér! Nei, ég væri hundleiðinlegur, með strípur, sólbrúnn og með tóbak í vörinni.
Ég er mjög ánægður með hagmælskuna hér á síðunni en ég ætla að bíða eftir útistandandi botni áður en ég kem með fleiri..Fyrripartadagsins!
Frægikarldagsins: Það voru geðveikt frægar hljómsveitir á Ísafirði um helgina, Jónsi og Co. Í svörtum fötum, Íris og krakkarnir í Ber og Raggi Sól og strákarnir í Sign. Það er skemmst frá því að segja að ég var ekkert var við þetta fólk...sem betur fer. En ég átti hinsvegar qualitytime með Smára Karlssyni, þar sem við sátum saman í þægilegum sófa og hann klappaði mér á hnakkann.
9:55 e.h. Ekki vera feiminn
08 júní 2003 Póstkort frá Ísafirði! Kæru vinir, það var eigi ástæða til að örvænta. Vissulega er ég í fríi, og vissulega er ég á Ísafirði en þar er internetið líka!! Jú, við Bryndís og Bjartur lögðum af stað kl.16.00 á fimmtudag til Ísafjarðar. Við tókum því mátulega rólega á leiðinni, stoppuðum í Borgarnesi, í Hrútafirði (þar sem hugtakið "hrútleiðinlegt" á uppruna sinn), á Hólmavík og loks tvisvar í djúpinu svokölluðu. Djúpvegir eru í yfirhalningu svo við megum vænta alvöru vega á leiðinni vestur á firði í framtíðinni. Á miðvikudaginn var ástandið hinsvegar svo slæmt á vegum, m.a. í skötufirði, að allur kúkur hristist úr S.Bjarti. Stefán Bjartur er á samningi hjá Libero.
Fyrir þá sem ekki vita er Ísafjörður að mestu eyri, sem liggur rétt fyrir utan Hnífsdal. Hér ríkir mikil menning. Hér er pósthús, tælenskur veitingastaður, hárskerar sem spila djass, kúlulaga hús og tvær skóbúðir. Önnur selur skó á vinstri fót og hin á hægri...djók. Hér skemmti hljómsveitin Maus innfæddum í gærkveld og gerðu stormandi lukku. Menn töluðu um að lagið þeirra, "ég ímeila þig", væri líklegast Ísbjarnarblús okkar kynslóðar. Sinclair Spectrum kynslóðarinnar. Denni, nú þekkir þú dálítið til Bubba, hvað finnst þér um þessa fullyrðingu? Á morgun mun frænka mín, Helena Dögg komast í fullorðinna manna tölu og ætla ég mér að vera viðstaddur það allt saman, síðan mun ég heimsækja slóðir Gísla Súrssonar í Dýrafirði og loks ætla ég að heimsækja Lögreguvarðstjórann hér í bæ, félaga Ottó Þórðarson. Ég mun lofa ykkur að fylgjast með!
Barnið og bókahomminn heimsóttu Skinnu, gott hjá þeim. Fær barnið bara að fikta í tölvu eins og ekkert sé. Fjalar, Stefán biður að örugglega að heilsa þér!
Frægikalldaxins: Hermann V.Jósefsson, sonur hröbbuogjobba. Venni er stundum óþægilega mikill snillingur og er alls ekkert hrekkjusvín...lengur, þó svo ég hafi kallað hann það hér einhvern daginn. Hann er í hljómsveitinni Unaðsdal og vinnur við að teikna dót í tölvu hjá 3X Stáli, milli þess sem hann les þetta blogg.
Fyrripartur dagsins.. beini ég til félagsráðgjafans í Þingholtum.
Hitt hef ég her Huldu Guðmundsdóttur
þar sem hommar og hækjur kæta allra lund
12:23 f.h. Ekki vera feiminn
03 júní 2003 Blogg handa hungruðum heimi! Krakkar mínir komið þið sæl.. og þið sem hélduð að ég væri dauður hahahaha. Neinei, bara voða mikið að gera. Bragi sá loks að sér og kom með þennan fína botn, takk Bragi, og nú losast um allan bloggsultinn. Þakka líka Fjalari og þeim Jammi og Jæju fyrir viðleitnina. Gaman að segja frá þvi að brátt verða lesendur um tvöþúsund talsins, geðveikt, ég sem hélt ég þekkti ekki svona marga. Djöfull er ég ríkur.
Eftir vinnu á fimmtudag kíkti ég á strákana í Stúdíó Rusl, hjá Bibba, en þar var Gummi nýbúinn að galdra glymjandi gítaróma við lagið Stóri hvellur, og miðar þeim vel með gítarana. Mér er farið að lítast vel á plötuna, Bibbi lagði hart að okkur að hraða á lögum og hella extra kraft í þetta, ekki skrýtið þar sem hann var nýkominn úr Mínus-sessioninu. Rokk og ról. Á föstudaginn var ég hinsvegar ásamt Homebreakers að skemmta í hófi starfsfólks Tónlistarskólans í Hafnarfirði, í Kornhlöðunni og varð það sérstaklega vel heppnað þrátt fyrir óléttu, handleggsbrot, barkabólgu og almenns stresss meðlima, eftir skemmtunina lá leið okkar niðrí kjallara Celtic cross til að sjá snillingana í Bardukha, með Hjörleif Valsson í fararbroddi. Það var líkt og maður væri mættur í einhverja rottuholu í Rúmeníu, austurevrópskur polki og tannlausir hippar, sem reyndust vera meðlimir Incredible string band. Frábær stemning, Bardukha frábær og að öllum líkindum spilum við Homebreakers ásamt þeim 23. júní í Hellisgerði á afmæli Hafnarfjarðar.
Á laugardaginn bauð BMM starfsmönnum í grill á horni Stýrimannastígs og Ránargötu. Það var mjög gaman, nema hversu pissfullur ég varð. En þetta fór vel því það var ein stúlka sem sá um alla skandala, slefa og hella á fólk. Ég held hún heiti Erna, hvað annað! Sunnudagurinn var yndislegur, við fórum í bæinn eins og reyndar allir aðrir og vorum úti allan daginn eða til 21.00, enduðum með því að grilla út á palli með De Vidos fjölskyldunni. Væntanlegar eru ljósmyndir frá þessum degi, þær verða birtar síðar.
Þó svo að helgin hafi verið góð og sólin hafi skinið skært á landsmenn, settu fréttir föstudagsins, um dóm mannanna sem réðust á Magnús Frey (22 ára) í Hafnarstræti á síðasta ári, svo hann lést, töluverðan skugga á þjóðina. Hvernig getur leikmaður skilið hið íslenska réttarkerfi á svona dögum. Af hverju fá menn sem fremja hrottalegasta glæp sem maður getur ímyndað sér, tveggja og þriggja ára dóm. Tveir menn ráðast á bláókunnugan mann, berja til óbóta á förnum vegi og murka úr honum lífið m.a. með spörkum í höfuð og brjóstkassa. Er þetta ekki hinn fullkomni glæpur? Morð af ásetningi? Hvað er þetta annað en ásetningur. Á meðan eru menn sem virða ekki eignarrétt, falsa málverk, smygla eiturlyfjum eða svíkja undan skatti meiri dóm. Þetta er ógeðslegt.
Frægikarldagsins: Gyllinæð, hljómsveitin sem bræddi hjörtu landsmanna í þættinum Pétri og Páli hér um árið. Ég hitti þá um helgina og þeir voru endalaust kurteisir og lofuðu mér að fara drífa í frekari tónsmíðum.
Fyrriparturdagsins! Mér finnst þessi dagskrárliður vera skemmtilegur hér á síðunni og gerir þetta blogg gagnvirkt, sem er skemmtilegt. Ég beini fyrripartinum að Steingrími Rúnari, sem er lagerstjóri hjá Símanum, þannig að ef ykkur vantar pening þá talið þið við hann;
Gott er að hitta Krullupinnann káta
kokhraustur slær gígjuna með bubbalegri ást