bryndísar&kristjánsbörn
bryndís stefáns
gunnar hjálmars
elín smára
árný gísla
sigrún bjarna
hálfdán hálfdáns
eiríkur hrafns
karl hallgríms
örn guðmunds
birna guðmunds
kristinn hermanns
steingrímur guðmunds
páll páls
smári karls
grímur atla
vidófjölskyldan
bókabúðin mín
hljómsveitin reykjavík!

Bloggið er dautt og internetið líka. Ég las það á netinu, á einhverri bloggsíðunni!


























 
Archives
<< current













 
This is where you stick random tidbits of information about yourself.



























Ég er Kriss og ég er Rokk.
 
29 desember 2004  
Ávarp í enda árs!
Jæja, djöfull hefur maður það gott. Maður er kominn með velmögunarsár víðsvegar um líkamann. Það er með herkjum sem ég nenni að bera mig eftir lyklaborðinu, en með puttana útbíaða af hangiketsfitu renni ég mér milli takkana og hripa nokkrar setningar. Það var ólýsanleg stund að lenda hér á flugvellinum á Ísafirði á aðfangadag. Þegar við höfðum spennt á okkur beltin í vélinni á Reykjavíkurflugvelli sagði flugstjórinn að það væri ófært á Ísafjörð, veðrið þar væri alls ekki gott en ætlunin væri að reyna að lenda svo fólk gæti haldið jólin. Af því tilefni var sett aukaeldsneyti sem dygði í klukkustundarhringsól yfir Ísafjarðardjúpi. Ég var hársbreidd frá því að missa vitið þegar við fórum í loftið. Ég reyndi sem ég gat að hugsa um eitthvað annað um borð í vélinni, en hugur manns var óneitanlega við Ísafjarðarflugvöll. Þegar við vorum komin inn við Ögur sagði flugstjórinn að það væri smá glufa og nú ætlaði hann að tefla á tvær hættur og reyna að lenda. Allt var gefið í botn. Að lenda á Ísafjarðarflugvelli var fyrir mér einungis bænheyrn.

Þegar ég lít til baka get ég ekki sagt annað en að árið hafi farið blíðum höndum um mann. Á stundu sem þessari finnur maður tilgang að baki bloggsins, ef einhver er! Það er gott að geta skrollað árið í gegn á bloggsíðunni ( í archives ) og fundið hvað var markverðast. Ég verð nefnilega að viðurkenna það fyrir guði og mönnum að ég er orðinn skratti gleyminn. Ég gleymi öllu steini léttara og man ekkert stundinni lengur. Ég er nú svo heppinn að Bryndís mín man allann fjandann, og ekki ónýtt að hafa hana sér við hlið þegar eitthvað þarf að rifja upp. Vinir mínir vita sem er að ég er hins vegar uppfullur af óþarfa upplýsingum. Get munað bílnúmerið hjá Palla Stull og símanúmerið hjá Selecta í Reykjavík..!

Af því að ég geng að árinu vísu hér á síðunni mun ég setja upp nokkra topplista ársins hjá mér í næsta bloggi. Annars mun ég mæta þessum áramótum með höfuðið hátt, en samt með óttablandinni virðingu. Mér finnst alltaf eins og ég sé að gleyma einhverju. Ég mun hugsa til fjölskyldu minnar og allra vina minna um áramótin, ég var mjög hrærður að heyra frá vinum mínum um jólin þar sem margir hugsuðu til okkar þegar við komum vestur á aðfangadag. Ef það er eitthvað sem maður má gera meira af er að rækta samband sitt við fjölskyldu og vini. Hvað væri maður án þeirra?!

Nú er ég orðinn svo væminn að einhver gæti haldið að ég væri Mugison að blogga...neinei. Djók.

Gleðilegt nýtt ár. Takk fyrir allt sem undan er gengið.

10:37 e.h. Ekki vera feiminn

19 desember 2004  
Jól og menning!
Nú fer að síga á seinni hlutann í jólahasarnum. Leikar farnir að æsast svo um munar. Fullt af höfundum að afgreiða hjá okkur um helgina; Jóhanna Kristjóns, Kristín Marja, Einar Már, Bragi Ólafs, Margrét Lóa, Auður Ólafs, Kristín Ómars, Sigurgeir Sigurjóns og Unnur Jökuls...æ, hvað er ég að þylja þetta upp. Þetta er svo sem ekki frásögur færandi, og ég var að skoða ársgamlar dagbókafærslur og þá var nákvæmlega sama uppá teningnum. Mest hafði ég þó gaman af einhverri kergju sem upp hófst innan Eddu-höfunda á laugardaginn. Ónefndir höfundar vældu sáran í mér yfir að Ólafur Jóhann hafi verið auglýstur með heilsíðu en þau ekki. Voða gaman að upplifa gömul sár milli Vöku og Máls og menningar. Af öðrum ólöstuðum verð ég að hæla Kristínu Ómarsdóttur, hún kom til okkar um 14.30 á sunnudeginum, vann hörðum höndum sleitulaust til 17.30 og ruddi frá sér vinnunni. Algjör snillingur.

Maður reynir að bera sig vel þrátt fyrir að vera að sprella í sjónvarpinu öll kvöld. Viðskiptavinir sækja á mig harðar en áður, og margir mjög sniðugir,"..áttu bókina með Kate Moss, hehehe!", "hey þú, ég ætla að fá gatara". Frábært og bara skemmtilegt. Nema sú staðreynd að hætt hafi verið við að auglýsa okkar búð í þessum auglýsingum. Það hefur tekið af mér gleðina. Maður reynir sitt allra besta til að ná sölu og auglýsir Pennann-Eymundsson á meðan. Kaldhæðni.

Þeir sem sáu Kastljósið síðasta miðvikudag gætu hafa séð mig bregða fyrir, þ.e.a.s. ef þið hafið ekki blikkað augum á meðan. Þetta voru hinar margumtöluðu fimmtán sekúndur af frægð, eins og honum Kalla Hallgríms verður svo tíðrætt um á gestablogginu. Þá kunna margir að spyrja; hver er Kalli Hallgríms? Jú, hans fimmtán sekúndur voru....jahhh, í skagnesku hljómsveitinni Abbababb, eða....tjahh í söngkeppni framhaldsskólana 1994. Nei, hann er einn af þeim fáu ágætu sem koma frá Bolungarvík. Það má nú ekki segja svona, en þeir skekkja vissulega myndina af Bolvíkingum þeir Kalli og Kristján Jónsson sem er nú með þeim hressari...!

Ég þakka þeim sem hlýddu,
góðar stundir!

11:43 e.h. Ekki vera feiminn

12 desember 2004  
Jólatangó, hehe næstum eins og yo la tengo!
Hæ,
jæja jólin bara að koma! Enn og aftur! Ég er rosalega lélegur jólakall, ég kann ekki á þau. Ég hneykslast yfir öllu jólatali fólks frá haustbyrjun og finnst allt of mikil orka og tími ársins snúast um jólin. Svo koma þau allt í einu... klukkan að slá sex á aðfangadagskveldi og ég að gleyma öllu. Ég er best geymdur í bókabúðinni, næ að halda einbeitingu að vinnunni, fókuseraður stend ég vaktina og veit um hvað lífið snýst! Ég stimpla mig inn í svarta myrkri árla morguns og labba svo heim í næsta myrkri. Bryndís sér um allt hitt og ekkert gleymist.
Ég á engu að síður árvisst, eitt af mínum uppáhalds augnablikum rétt fyrir hádegi aðfangadags; eftir að hafa staðið af mér mánaðarlangt bókaflóðið í ægilegum hasar, kem ég aðframkominn heim til mín, fæ mér rauðvínsglas með Bryndísi, sofna og slefa í koddann, vakna og mér er nánast hent í einhverja larfa og hent útí flugvél sem flýgur til Ísafjarðar. Að lenda á Ísafirði um hádegisbil 24.desember er unaðslegt, hjartað fer að starfa eðlilega og ég vakna úr rotinu. Ég breytist úr ófreskjukenndum verslunarmanninum í hinn mjúka fjölskyldumann. Og ég mæti glaður í Hnífsdalskapellu kl.18.00!

Homebreakers spiluðu tangó í brunarústunum í JL-húsinu í gærkvöldi. Vorum pöntuð af Myndlistarskólanum í Reykjavík. Við stóðum okkur vel. Myndlistarmenn eru skrýtnir. Til að mynda Daði Gubjörnsson sem er víst gallharður sjálfstæðismaður. Það heyrði ég þegar ég kom inn og innan við hálftíma var hann byrjaður að bulla í Valda með Sjálfstæðisflokkinn. Hálftíma síðar heyrðust hugmyndir frá Daða um að breyti nafni skólans í Lífsstílsskóla Reykjavíkur. Hvað er það!

Ein af kennurum skólans kom til mín og þakkaði fyrir tangóinn og þakkaði mér einnig fyrir síðast. Ég vissi ekkert hvað konan var að tala um og ég spurði hvenær það hafi verið.
- manstu ekki, ég var að kenna þér í Hnífsdal í 8 ára bekk?
Mér leið eins og smákrakka þegar ég sagði; "Elsa! Hæ, já og takk kærlega fyrir síðast"! Magnað að hún skuli muna eftir mér. Ég held að Elsa sé klárlega frægikarldagsins.

3:22 e.h. Ekki vera feiminn

09 desember 2004  
PPPP á Súfistanum í kvöld!
Í kvöld munu nokkrir af okkar ástsælustu rithöfundum gera sig að fífli á kaffihúsinu Súfistanum í Máli og menningu við Laugaveg. En þá keppa þau Sigmundur Ernir, Birna Anna, Huldar Breiðfjörð, Þorsteinn Guðmundsson, Auður Jónsdóttir og Sindri Freysson í Popppunktsspilinu góða. Stríðið hefst kl.20.00 og um að gera að koma snemma því víst er að færri komast að en vilja.
Sérstakir gestir kvöldsins verða meistararnir í Baggalúti og ætti engum að bregða þó þeir skyldu bresta í söng.
Dómari og spyrill er heimsmeistarinn og höfundur prumpulagsins; Dr.Gunni!

10:30 f.h. Ekki vera feiminn

04 desember 2004  
Fullir dagar!
Það er svo mikið að gerast þessa daga, það er alls staðar full dagskrá og ef maður ætlar að reyna að koma því í prent verður maður fyrir það fyrsta að ráða sér ritara.
Bryndís mín á afmæli í dag, og í gær hitti ég Þránd Thoroddsen...magnað?!

4:49 e.h. Ekki vera feiminn

20 nóvember 2004  
..ekkert mál!
Seldi sál mína á dögunum og lék í þremur sjónvarpsauglýsingum. Tek að mér að sprella fyrir vænar fúlgur og frama... Þó ekki hika við að tala við fagmann ef um flóknari verkefni er um að ræða!

1:33 e.h. Ekki vera feiminn

14 nóvember 2004  
Rokk og ró!
Það er sunnudagsmorgunn, líkt og skáldið sagði. Mér finnst sunnudagar leiðinlegir en mánudagar frábærir.. eða ágætir. Við höfum átt rólegar stundir hér í Barmahlíðinni síðustu daga og helgin leið hjá án nokkurrar áreynslu ef svo mætti segja. Veikindi hafa einkennt heimilislífið síðustu vikuna, Briss hefur verið mjög kvefuð og slöpp og Stefbjartur fengið mikinn hita sökum kvefpestar einnig. En þetta er allt að koma vonandi. Birkir bróðir minn sem býr á Suður-Jótlandi lýsti áhyggjum yfir líferni mínu á dögunum. Hann, sem er traustur lesandi síðunnar, vildi meina að öll mín skrif snerust um veru mína úti á galeiðunni. Þú þarft ekki að hafa áhyggjur, við litla fjölskyldan sátum í sófanum í stofunni og horfðum á helgina svífa hjá. Ekki sást vín á nokkrum manni.

En það þýðir ekki að sitja og drolla og horfa á lífið líða hjá! Ekki gerir Mark E.Smith það! Við í hljómsveit Dr.Gunna munum skemmta pönkþyrstum lýðnum á tónleikum hljómsveitarinnar The Fall nú á næsta miðvikudag. Ég skora á alla unnendur rokktónlistar að mæta.

Hann er kominn aftur. Frá framleiðanda Fyrripartdaxins, Mjúkinskinnu og alls hins helvítis kjaftæðisins á þessari síðu, kemur....FRÆGIKALLDAXINS.

Frægikalldaxins: Þorsteinn Joð, kom í búðina til mín fyrir helgi. Hann var heillengi að rabba við mig um músík, var einstaklega ánægður með Stóra hvell á sínum tíma. Hann fékk leyfi hjá mér til að filma í búðinni, hann er að búa til sjónvarpsmynd um þýðendur og þuli. Vonandi verður stór hluti myndarinnar um Þránd Thoroddsen. Það yrði áhugavert. Ég þekki mann sem hélt sig vera Þránd um hríð þegar hann var í skóla.

3:12 e.h. Ekki vera feiminn

31 október 2004  
Rokk í Reykjavík - lau.
Við kvöldverðaborðið, þar sem ég var að gæða mér á kræsingunum (laugardagskjúklingi og frönskum kartöflum), fann ég einkennilega til í maganum. Þar var hnútur sem orsakaðist af svengd, spennu og kvíða. Framundan gat ekki verið annað en skemmtilegt kvöld en ég er þeim einstöku hæfileikum gæddur að ég get málað skrattann á vegginn við hverskonar aðstæður. Við í Reykjavík! vorum settir inn í dagskrá Airwaves þetta kvöld á Grand Rokk, og þvertek ég fyrir að það hafi orsakað magahnútinn, ég hef nefnilega nokkrum sinnum spilað þar áður. Málið var einfaldlega þannig að The Shins voru á dagskrá seinna þetta kvöld á Gauknum. Það hlyti eitthvað að fara úrskeiðis. Einhver myndi leggja stein í götu mína. Það yrði uppselt, eða Gauknum yrði lokað þetta kvöld vegna slæmra brunavarna, eða The Shins borðað slæman hákarl og væru allir á sjúkrahúsi. Þetta hugsaði ég meðan ég var að troða í mig kjúklingnum fína sem Briss bar á borð. Heilbrigt?

Klæddur í hvíta skyrtu og með svart bindi, pantaði ég mér tvöfaldan gin og tónik á Grand Rokk og málið var dautt. Ég var kominn í stuð. Nilfiskliðar voru að hrista unglingamakka sína þegar við mættum og þeir voru nokkuð hressir. Mér finnst þeir jafnvel skemmtilegri en Foo Fighters. Við vorum næstir á svið, vorum vel upplagðir, með gott fólk í salnum og áttum prýðilegt gigg. Við vorum ánægðir sjálfir, og fengum gott fídbakk. Óvenjugott úr óvæntum áttum! Eftir að við höfðum pakkað saman og þakkað fyrir okkur, lá leiðin á Gaukinn. Það var ekki laust við að maður hafi fengið móral við að skilja Atómstöðina eftir á Grandinu, leikandi fyrir tómu húsi...Nei, ég er að grínast. Móral hahaha.

Fyrir utan Gaukinn rann það upp fyrir mér enn og aftur skínandi skært að ég þarf að fara troða þessum endalausu óþarfa áhyggjum mínum uppí óæðri endann. Siggi Hólm Gauksvert var á leiðinni inn eldhúsmegin og dró okkur með. Ég var kominn inn. Vinyl voru að geifla sig uppá sviði, ég hef einhvern veginn aldrei náð þeim. Þeir eru ekkert endilega lélegir. En er þeim alvara. Singapore Sling voru næstir. Enginn vill leika við Henrik af því að hann er svo leiðinlegur, nema Einar Sónik, allir hinir eru hættir. Henrik og Einar rökuðu saman í band og héldu uppi sínum heiðri, mér sýndist að þeir hafi farið í Nonnabúð til að fá session leikarana. Allir með rétta lúkkið og sólgleraugu. Þetta rann ágætlega í gegn, nýja platan þeirra er drulluflott. Svo komu Stills en þá þekki ég ekki nógu vel. Þeir eru ábyggilega mjög fínir. Ég fór á barinn. Ég var tilbúinn.

Á síðastliðnum vormánuðum hafði Haukur Magnússon gítarleikari, plötuútgefandi og starfsmaður í Bókabúð Máls og menningar spurt mig endrum og eins hvort ég hefði heyrt í hljómsveitinni the Shins. Ég þekkti þá ekki vitund og hafði ekki mikinn áhuga. Það var ekki að hjálpa til að bandið skyldi heita "the ...eitthvað". Mig minnir að Haukur hafi sagt "..this music got your name on it!". Haukur gaf mér síðan báða diskana þeirra og hef ég varla hlustað á annað síðan. Mér hafði tekist að troða mér í gegnum mannmergðina og var kominn vel inní sal Gauksins með bjór í hendi og Shins voru væntanlegir. Þá uppgötvaði ég að ég þurfti að pissa. Klassískt. Það var ekki séns að ég færi að spilla gleðinni, ég ákvað bara að pissa í buxurnar og fíla Shins, svo yrði ég laminn eftirá og hent pissublautum út í kuldann. The Shins voru frábærlega skemmtilegir. Mér finnst þetta ótrúlegt band, spilar popp og ballöður og nýtur þvílíkrar hylli. Það var stórmerkilegt og skemmtilegt að upplifa aðra eins stemningu í salnum. Gestir höfðu aldeilis unnið heimavinnu sína. Að einhver skuli detta mig í hug við að hlusta á the Shins getur varla verið slæmt. Takk fyrir Shins, Haukur!

Það var við hæfi að enda þessa Airwaves-helgi á Rokk-sirkus á Grand Rokk um kl. 03.00! Þar var samankomin einkennilegasta blanda af fólki sem flest átti það sameiginlegt að koma frá Ísafjörður rock city! Hljómsveitin Nine elevens voru síðastir á dagskrá og voru búnir að ráða nokkra aðstoðarmenn, sprengisérfræðing, hljóðsérfræðing úr Súgandafirði og meðal annars mig sjálfan en ég gegndi hlutverki "drum tech-s". Þetta var frábær konsert hjá drengjunum og öll sprengjulæti og konfettitrix náðu að klúðrast. Þetta var eins og Spinal Tap á góðum degi. Leikurinn reis hæst þegar Tussi (Bergvin Þráinsson) öskraði milli laga; "Ísó, ísó, ísó.."! Þetta var ekki dónaleg dagskrá þetta kvöld. Það var töluvert álag en mikil gleði. Rétt áður en Nine elevens liðar stigu á svið mundi ég eftir því að ég þurfti að pissa (í síðustu málsgrein). Eftir að Nine elevens hafði svo lokið sér af, vaknaði ég úr kick ass rock-roti og fattaði að ég var í fráhnepptri skyrtunni og með bindið um ennið. Það var kominn tími á mig og konan mín beið mín á öðrum skemmtistað, þar sem hún var stödd í fatahönnuðapartýi. Það var ágætt að setjast og trappa sig niður með einn bjór eftir allt rokkið um helgina. Ég gæti ekki hafa tekið aðra eins U-beygju, því ég endaði rokkið á Rex. Það er ekkert rokk í Rex.

Væntanlegt: Frægikarldaxins! Vegna fjölda áskorana!


1:31 e.h. Ekki vera feiminn

25 október 2004  
Rokk í Reykjavík - fös.
Nú er þetta allt saman yfirstaðið og bransadaunninn að minnka yfir miðbænum. Þetta var stórskemmtileg helgi, tók Airwaves rúnt á föstudeginum og laugardeginum fyrir utan að hafa spilað á laugardeginum.

Það var ansi kalt á föstudeginum en maður lét sig hafa það að flakka örlítið á milli. Eftir hressa bjóræfingu hjá Reykjavík! lá leiðin niður á Nasa, þar sem við rétt náðum í skottið í elektrógrúvífönkípönkinu hjá Dáðadrengjum. Þeir voru eiturhressir og mikil synd að hafa misst af þeim, fyrir utan að lúkka vel þá eru þeir helvíti skemmtilegir. Frá Nasa lá leiðin í Þjóðleikhúskjallarann til að sjá Skakkamanage, þangað hlupum við sem fætur toguðu og mættum alltof snemma svo að hlegið var að okkur. Á meðan við biðum hoppuðum við nokkrir yfir á Grand Rokk og sáum Skáta sem voru ágætlega skemmtilegir, spiluðu pönkað indírokk en ég var meira upptekinn að horfa á crowdið á staðnum. Ég þekkti ekki eina sál. Ég sem þekki nær alla grandgesti með nafni. Skakkamanage var í þann mund að hefja leik þegar við komum aftur í Þjóðleikhúskjallarann, þau spila stereolabbandisætafroðuindípopp og gera það bara nokkuð vel. Svavar er mjög skemmtilegur músíkant og geðuður piltur. Við hlupum frá lóðalyftandi trúbadúrnum Sigga Ármanni og sussandi vinum hans, beint niður á Gaukinn til Sigga Hólm, þar sem Yourcodenameis:Milo spiluðu líttspennandienhressandigaurarokk. Eftir það stigu Mínus-liðar á sviðið og þarf ekki að fjölyrða um rokkið sem sullaðist af þeim. Þeir kunna þetta. Það var svo ekki leiðinlegt að enda kvöldið á Nasa þar sem bresku æringjarnir í Hot chip skemmtu. Mikið rosalega eru þeir skemmtilegir. Þeir lúkkuðu reyndar eins og vel heppnaður Fóstbræðrasketch, með úfinn Jón Gnarr berum að ofan á gítar og Gussa með kúabjöllu og bassatóna í hálsi. Tónlistin var bæði bullandi fjör og grenjandi einlægni. Frábært. Ég náði svo að forða mér áður en Jagúar hóf leik, þoli þá ekki... nei, ég segi það ekki. Þeir eru bara svo góðir spilarar, ekki nógu gaman að fylgjast með og verða bara soldið flatir. Ingi bassaleikari er samt mjög kúl. Ég labbaði beinustu leið heim eftir þetta enda að fara að vinna daginn eftir í Bókabúð Íslands.

Ég geri laugardeginum skil litlu seinna.

8:46 e.h. Ekki vera feiminn

19 október 2004  
..til háborinnar fyrirmyndar!
Ísfirska nýbylgjulestin að baki. Stórkostlegt fest. 100% success. Allir sem komu nálægt þessu stóðu sig með stakri prýði, stemningin var frábær hjá áhorfendum jafnt og öllum þeim sem komu fram. Það er ekki séns að taka út einhvern einn eða fleiri sem voru skemmtilegir uppá sviði, það áttu allir geysigott kvöld. Annars komst ég annarsvegar að því að hljómsveitin Unaðsdalur er frábær, og svo aftur að Jón Þór smali er snillingur. Þetta var allt saman til háborinnar fyrirmyndar.

Nú er Icelandic Airwaves að bresta á. Það er sitthvað af íslensku böndunum sem manni langar að sjá; t.d. trabant, mugison, skakkamanage, nine elevens og dáðadrengi. Hefði lagt mig í lima við að sjá hljómsveitina Rass, en giggið þeirra datt út. Helvítis rassgat. Svo er það hljómsveitin Shins á laugardag sem ég ætla ekki fyrir nokkra muni að missa af.

9:06 e.h. Ekki vera feiminn

12 október 2004  
Ef Keflavík er Liverpool Íslands, þá er Ísafjörður að sjálfsögðu fokkings Hull!
Síðasta blogg var frá 19. september..djöfull hefur mikið gerst síðan! Ég veit ekki hvort/hvar er hægt að byrja? Þetta yrði svo langt blogg! Hvað segið þið ef ég greini frá í stuttum setningum, svo gætuð þið bara hringt í mig ef þið finnið eitthvað áhugavert!

* Elísa og Palli áttu litla dís á dögunum, við hittum hana um daginn, hún er ferlega hress. Tékkiði á henni hér!
* Homebreakers fóru vestur og spiluðu finnskan tangó í Edinborgarhúsinu. Það var rosalega gaman. Það voru ekki margir sem mættu en þeir sem mættu, mættu mjög vel.
* Keyrði frá Ísafirði til Reykjavíkur og Sveinn Blöndal fékk far. Við áttum ca. 500 km. langt spjall sem var gefandi.
* Vera Stefáns Bjarts í pestabælinu Sólhlíð er farin að setja strik í reikninginn, hann kom heim með Hlaupabólu.. eða Óó eins og hann segir.
* Fór í æði hressandi sveitarferð með vinnunni síðasta laugardag; kom við að Gljúfrasteini sem var magnað, fór á sauðamessu og hitti Hvanndalsbræður sem voru einfaldlega frábærir, kíkti á Snorrastofu, á Baulu og enduðum í bústaði Grunnvíkinga.

Annars er mál málanna; Ísfirska nýbylgjan, ísafjörður rock city. Mikil orka hefur verið kostuð til og virkilega góð vinna unnin, og ef ÞÚ mætir ekki til að sjá afraksturinn..þá, þá, þá...verð ég að minnsta kosti frekar sár. Eða allavega svekktur. Í það minnsta leiður...!!
http://www.folk.is/reykjavikreykjavik/?pb=sidur&id=813908







9:03 e.h. Ekki vera feiminn

19 september 2004  
Ísfirðingapestin ógurlega!
..og ég er frá Hnífsdal!
Þetta var frekar slöpp helgi. Öllu heldur var ég slappur, lá fársjúkur með hitavellu í sólarhring. Ég var einmitt nýbúinn að lesa um hitavelluna hans Gunnars þegar ég lagðist sjálfur. Ætli að pestin geti borist í gegnum internetið, í gegnum símaleiðslurnar. Góð samsæriskenning. Því betri tenging, því harkalegri pest. Aðfararnótt laugardags, um það leyti þegar hitinn var að blossa upp, dreymdi mig að mér væri óbærilega kalt og heyrði þá í útvarpinu að upp væri komin sérstök ísfirðingakuldapest, ég reyndi að hringja í vini mína, enginn svaraði og ákvað ég þá að hringja í Ólaf Ragnar og komast að því hvort hann væri ekki að grípa í taumana. Ég vaknaði svo með farsímann minn í höndunum og vissi ekkert hvað ég væri að gera. Það hafði þá stoppað mig í draumnum að ég veit ekki númerið hjá kallinum. Ég var kominn með 39°.

Ég er búinn að horfa ótæpilega mikið á sjónvarp, m.a. enska boltann. Ekki er ég að fíla þessa ensku þuli, frekar vil ég viskuna frá einhverjum íslenskum sparkfræðingum, það er þá hægt að hlæja af þeim. Helst myndi ég vilja Loga Ólafsson, hann getur verið einstaklega orðheppinn. Ég var einmitt að horfa á leik sem hann lýsti þegar blökkumaður með litað hár kom inná og þá sagði Logi; ,,..nei hættu nú, rauðhærður svertingi". Um helgina horfði ég líka á Kill Bill 2 og Dogma, tvær frábærar myndir. Þær gerðu dvöl mína inni við ögn bærilegri.

Við bíðum í ofvæni eftir að Elísa fæði barn. Það stefnir allt í að það sé að bresta á.
Mig langar á BlondeRedhead, kannski ég fari...?!

3:36 e.h. Ekki vera feiminn

12 september 2004  
Frábært Ramax og fljúgandi rottur
Góð helgi að fjara út. Áttum dágott laugardagskvöld með Nonna og Bunna, borðuðum "Ramax" og spiluðum "Tíu". Í dag fórum við Stefán í bæinn, löbbuðum niður að tjörn og gáfum rottunum brauð. Allir sem voru að reyna að gefa öndunum brauð, öskruðu á mávana og reyndu að sparka þeim frá svo hægt væri að dekra við þessar fáu endur sem eftir eru með ilmandi heimilisbrauði! Ég var að velta fyrir mér hverskonar úrkynjun væri að eiga sér stað í fuglasamfélaginu á tjörninni! Mér var mikið um og ræddi þetta í kjölinn við Stefán, hann var ekki sammála og hélt áfram að gefa "Bíbí" brauð. Hann Stefán!

Á leiðinni frá tjörninni hittum við Helga Björns, hann var hinn hressasti, nýbúinn með glansandi konsert með Grafík í Austurbæ. Hann er mjög ánægður með Ísfirsku nýbylgjuna í október og staðráðinn í að vera með. Jafnvel að Grafík heddlæni, eða SSSÓL, eða kannski bara að hann verði sérstakur kynnir festivalsins, já eða verndari! Annars á ég eftir að heyra í Ólafi Ragnari! Þessi konsert verður án efa helber snilld, staðfestir skemmtikraftar eru; nine-elevens,
Reykjavík, 701, Mugison, Skúli Þórðar! Miklar vonir eru bundnar við að eftirtaldir bætist í hópinn; Spastískur raunveruleiki, Unaðsdalur og hljómsveit Dr.Gunna. Þetta er ekki tæmandi listi, eitthvað á eftir að bætast við. Þetta kallar kannski á Urmuls-kombakk, eða Dolby!?

Í síðustu viku hringdi í mig vinur Huldu og Hilmars sem heitir Hannes, hann spurði hvort ég hefði áhuga á að leika í auglýsingu fyrir Toyota, ég þyrfti að senda mynd af mér og svo yrði valinn einn úr nokkrum kandídötum. Persónan sem leitað var að var pabbi sem átti að leiða börnin sín þrjú, vá, hvað ég er málið! Ég er geðveikt solid andlit pabbans sem keyrir Toyota! Ekki stóð á mér að senda mynd verandi íbúi á stafrænu margmiðlunarheimili en síðan er ekkert búið að hafa samband við mig!? Ég var mjög hissa en fattaði síðan þegar ég skoðaði myndina að ég gleymdi að klæða mig á sannfærandi hátt, klúðraði þessu algjörlega í Smirnoff fashion bol. Djísus, ég hef litið út eins og drykkfeldur hommi!
(hér átti að fylgja mynd en eitthvað er að klikka hjá mér)


9:12 e.h. Ekki vera feiminn

09 september 2004  
Í bíó með Bunna og co.
Ég fór í bíó í gær og sá aldeilis frábæra mynd. Ég rétt náði í skottið á Indídögum í Háskólabíói og sá Shape of things. Rachel Weichz og Paul Rudd (sem er gaurinn sem lék mann Phoebe í Friends) léku listakonu og njörð sem taka samvistum og úr verður skemmtileg atburðarás. Hún er meinfyndin, biblíuskotin og hefur líka endi, en fjarar ekki bara út eins og margar íslenskar myndir gera. Mér fannst ég verða að segja ykkur frá þessu, en myndin er ekki lengur sýnd í bíóhúsum...

Mikil tímamót urðu á heimilinu í kvöld þegar Stefán öskraði upp; "Bunni"! Við eftirgrennslan kom í ljós að hann sá Gumma í sjónvarpinu og var að kalla á hann. Gummi er einmitt guðfaðir Stefáns og sér um kirkjulegt uppeldi hans. Gummi hefur þrýst verulega á Stefán síðan að hann kom í heiminn að segja Gummi, og eftir tveggja ára stríðni lét hann loks undan þrýstingi, "Ha, Bunni hadna..?"

Strákarnir í Reykjavík eru komnir með síhressa og geðveikt flotta heimasíðu, en þeir munu spila á Airwaves og stórtónleikunum Ísfirska nýbylgjan í október.



10:04 e.h. Ekki vera feiminn

07 september 2004  
,, ..steig niður til heljar, reis á þriðja degi aftur uppfrá dauðum"
Jæja, nú er komin glæný fartölva á heimilið, stafræn myndavél og ilmandi þráðlaust net. Kallar það ekki á endurnýjun lífdaga. Bryndís er byrjuð í kennaraháskólanum, á fullt í fangi með að læra uppá nýtt hvernig maður lærir..! Stefbjartur er rosa ánægður á leikskólanum Sólhlíð, þar er hann frá kl. 08.15 til 16.15. Þar er einnig vinur hans, hann Ómar Smári og sömuleiðis sonur Rúnars Freys og Selmu Björns, Gísli Björn (örugglega skírður í höfuðið á Gísla Marteini og Birni Bjarnasyni)!
Svona líða dagarnir hjá, Bryndís í skólanum, saumar þess á milli, fer svo að skúra eftir að ég er búinn í vinnu, síðan heim að læra. Þegar hún er ekki að skúra á kvöldin þá fer ég á hljómsveitaræfingar. Heilmikið er að gera í vinnunni og allt gengur vel. Við Bryndís reynum hve mest við getum að eiga góða stund með Stefáni, og passa okkur á því að tíminn frá kl.16.00 til 20.000 sé ekki einhver streitutími. Annars ákváðu þær Bryndís og Sigrún María að skiptast á pössunum á börnum okkar, svo bæði ég og Briss, og aftur Sigrún og Gísli ættum reglulega kvöld fyrir okkur. Þá getum við farið í bíó eð eitthvað frábært... !
Vá, hvað ég er kominn úr æfingu.

10:30 e.h. Ekki vera feiminn

13 ágúst 2004  
..þetta er búið!
Nú er of seint að snúa aftur, ég held ég sé búinn að missa það.

12:43 e.h. Ekki vera feiminn

30 júlí 2004  



3:22 e.h. Ekki vera feiminn

13 júlí 2004  
Halló,
ég er staddur á Ísafirði í góðu glensi. Djöfull er maður að hafa það gott. Fór á tónleika með Grafík, spilaði á tónleikum með hljómsveitinni Reykjavík, fylgdi Rabba til hinstu hvílu, labbaði upp að Fossavatni, borðaði sumarsúpu í Dýrafirði og fl., og fl.!

Við munum brenna í bæinn aftur á föstudag, en á laugardaginn tekur við strembinn dagur, þá ætlum við strákarnir að eiga saman Sleggjudag og um kvöldið mun ég reyna mitt besta við að halda uppi fjörinu í þrítugsafmæli Áslaugar sem er vinkona Bryndísar systur minnar.

3:35 e.h. Ekki vera feiminn

30 júní 2004  
Tíminn! Er hann trunta?
Nú styttist í að maður fer í fríið. Það er viðbúið að því ljúki áður en mér tekst að blikka augunum tvisvar. Hver helgi er plönuð í ystu æsar og allt verður þetta voða skemmtilegt.. en hvað gerist þegar maður skemmtir sér, jú, tíminn flýgur! Ég verð helst að reyna koma mér í eitthvað leiðinlegt, skrifa ritgerð, skoða skattaskýrslur eða eiga í fasteignaviðskiptum!

Ég átti afmæli fyrir viku. Varð 29 ára gamall. Freyr Eyjólfsson óskaði mér til hamingju og sagði mér að vera viðbúinn því að kveðja tuttuguog.. og taka á móti þrjátíuog..! Hann sagði að helsti munurinn væri sá að þegar maður er tuttuguog.. þá er manni boðið í partí en þegar maður verður þrjátíuog.. er manni bara boðið í matarboð. Við Briss fórum einmitt út að borða á Austur-Indíafélaginu á afmælisdaginn og borðaði ég harkalega yfir mig. Ég vaknaði um nóttina, í svitabaði og sprengsaddur, og gat ekki sofnað yfir áhyggjum yfir að ég yrði saddur til æviloka. Djöfull var ég svo svangur morguninn eftir.

Rvk.Spirits hélt smá boð á Grandinu síðasta laugardag og höfðu flestir gaman af. Ýmsir reyndu að leggja stein í götu okkar, m.a. EM í fótbolta, en hollendingar og svíar hlupu púng-slappir í hátt á þriðja tíma eftir boltanum, á stótu tjaldi á Grand rokk. Hljómsveitin Týr stóðu í vegi okkar þegar við mættum í sándtékk og endaði með því að ég sá mig tilneyddan að spila á hundljótt plebbasett Týs-trommarans sem leit út eins og sköllóttur Skúli Óskarsson lyftingarkappi. Hann sagði við mig um leið og hann benti á settið; "this is my baby, you know how to treat babies". Já, einmitt, ég ætla að lumbra á því með prikum!!

Um helgina verðu hátíð í Klinki og Banki og mun hljómsveitin Homebreakers spila sitt tangó/köntrí geðklofaprógramm um kl. 17.30 á föstudeginum. Allir eiga að mæta.


10:11 e.h. Ekki vera feiminn

21 júní 2004  
Ætla ég að eiga afmæli við þetta...?
Já, það er nú meira sem það stendur í manni að koma einhverju frá sér hér á síðuna! Þetta er þessi tími ársins. Maður gerir voða lítið að því að sitja fyrir framan tölvuna á heiðbjörtum sumarkvöldum. Þetta er samt skemmtilegur tími og voða mikið að gerast. Svo fer maður að fara í frí í byrjun júlímánaðar. Í sumarfríinu ætlum við fjölskyldan að byrja á því að fara vestur. Þar mun ég vafalaust reyna að hitta á afmælistónleika Grafíkur sem verða í Félagsheimilinu í Hnífsdal ca. 10. júlí! Helgina eftir það hef ég lofað mér í stuðpartí í Reykjavík þar sem ég mun þeyta skífum fram á rauða nótt, og er ég þegar farinn að taka upp demó á spólur og sjá hvernig tempóið er. Næstsíðustu helgina í júlí munum við heimsækja foreldra mína í bústað í Biskupstungum, þangað hef ég aldrei komið og hlakka til, annars mun Jón Þór jafnvel halda uppá komandi stórafmæli í kringum þetta leyti, við reynum að elta það uppi. Síðustu helgi er komið að partíi sumarsins; brúðkaupi Sunnu og Steina Sleggju. Gríðarlegur undirbúningur er í gangi fyrir veisluna og hef ég sem dæmi, hafið hugmyndavinnu og ímyndarsköpun fyrir hljómsveit veislunnar, þar sem ég gegni starfi tónlistarstjóra. Það er nóg um að vera!

Nú um næstu helgi munum við í hljómsveitinni glænýju; Rvk. spirits troða upp á Grand Rokk, ásamt því að skemmta hjá vinalega forsetaframbjóðandanum Baldri, næsta fimmtudag. Hljómsveitin er skipuð mér og Guðmundi (artists formerly known as dr.gunni), Hauki Magnússyni útgáfustjóra og blaðamanni, Bóasi sem gerði garðinn frægan með hljómsveitunum Spitsign og Vígspá og loks Árna sem var einnig um tíma með Vígspá. Nóg að gerast.

Fyrstu helgina í júlí verður svo listahátíð í Klink og Bank, þar munum við finnska tangósveitin Homebreakers koma fram.

Stefán Bjartur biður að heilsa, þarna náðist mynd af honum nýkomnum úr baði hjá ömmu í apríl síðastliðnum! (..þess má geta að hann hefur alveg farið í bað síðan!)

10:39 e.h. Ekki vera feiminn

31 maí 2004  
Tvær stjörnur!
Þetta er nú meira annríkið hjá manni þessa dagana! Ýmis verkefni í vinnunni hafa legið á mínu borði ásamt því að talning fór fram síðastliðinn fimmtudag. Það þarf ávallt mikinn undirbúning fyrir talningu í svona stórri verslun sem Mál og menning er! Það er nú ansi merkilegt, víst ég var að enda við að skrifa ,,Mál og menning", að fjölmargir starfsmenn Pennans m.a. yfirmenn, hafa enn ekki náð að skrifa nafnið rétt eftir að hafa tekið við rekstri búðanna í ágúst á síðasta ári!

Ég fór á Pixies síðasta miðvikudag, það var einfaldlega frábært og kom mér á óvart hversu góðir söngvarar þau voru. (Bryndís, hætt þú að lesa hérna!)Ég stóð sjálfan mig að því að horfa allan tímann á bassaleikarann Kim Deal. Fjárinn, hvað hún er kúl. Ég fantaseraði oft um Kim Deal á fyrri árum og held að eina svona kvennaband sem ég hef virkilega fílað sé Breeders. Ég gekk svo langt í því að fylgjast með Kim að ég hafði oft verulegar áhyggjur af dópneyslu hennar sem ég las um í blöðum, ég keypti allar plötur sem hún kom nálægt m.a. the Amps og meira að segja frekar slappa plötu systur hennar, hennar Kelly; Kelly Deal 6000! Ég var nú alveg búinn að búast við því að Kim kæmi í Mál og menningu eins og allir útlendingar sem heimsækja landið en ekkert varð úr því, kannski eins gott, ég hefði líklega orðið mér til skammar, öskrað eða beðið hana að skrifa nafnið sitt á rassinn á mér...

Helgin var ágæt, Briss og Stephen Kriss fóru vestur og ég fór með félögum mínum í hljómsveitinni... já, við erum soldið í vandræðum með nafn (kannski að sníkjudýr síðunnar geti komið að einhverju gagni hér, honum finnst greinilega gaman að orðum!), við fórum til Snæfellsness, þ.e. á Arnarstapa og tókum nokkur lög ásamt hljómsveitinni the nineelevens! Þetta var fyrsta giggið okkar og í fyrsta laginu eyðilagði ég sparkarann og svo slitnuðu tveir strengir í næstu tveimur lögum. Djöfull sem framtíðin mun brosa við okkur eftir þetta. En ekki var öll nótt úti enn og tími gafst fyrir frekari hrakfarir. Við fórum í fótbolta, allir orðnir frekar slompaðir og í einni sókninni þar sem ég var á fleygiferð með boltann, stökk á mig tröllvaxinn ástralskur fauti sem lenti á hnénu á mér og kannast ég ekki við að hafa upplifað annan eins sársauka. Ég hafði mig ekki mikið frammi eftir þetta og hélt áfram drykkju og saug í mig kraftinn úr Snæfellsjökli um leið!

Þessa nótt gekk ég til rekkju um kl.08.00 og var vaknaður um kl.11.00, þar sem ég gat ekki sofið fyrir sársauka. Ég tognaði illilega í hnénu og veit ekki hvernig ég mun spjara mig næstu daga, m.a. í ræktinni. Það mun taka mig sárast að þurfa að lúffa því, eins dýrt og það er. Allur jökulkrafturinn er uppurinn og viðtók Deep relief mentholkrem með íbúfeni í, lífið er aðeins bærilegra. Ef þú ert að lesa þetta Luke, vona ég að samviskan nagi á þig gat!

Ég ætla að fara að hætta núna, en svona rétt í lokin kynni ég hresssssandi nýjung á síðunni; Stjarna vikunnar! Stjarnan hverju sinni er einhver sem stendur uppúr og hefur hresst mig að einhverju leyti, og nú í þetta fyrsta skiptið eru það tvær: Bassaleikararnir Kim Deal og Hálfdán Bjarki!

11:07 e.h. Ekki vera feiminn

18 maí 2004  
Það sem ég get bullað...
Eins og ég var að segja þá er ég nýkominn frá Jótalandi, Birkir bróðir minn var að láta ferma dóttur sína hana Sissel en fjölskyldan býr í smábænum Toftlund sem liggur snöggt frá landamærum Þýskalands. Ég fór með mömmu og pabba og þurftum við að fljúga til Kaupmannahafnar þar sem ekki var byrjað að fljúga til Billund. Þar tók við lest sem flutti okkar milli eyja og loks til meginlandsins.

Dvölin í Toftlund var unaðsleg, Birkir var í fríi og ferðaðist með okkur í allar áttir m.a. til þýskalands. Við fórum í verslunarferð til Kolding þar sem ég keypti föt á Stefán, fórum á "menningarnótt" í Åbenrå sem er geysifallegur bær og auk þess börðumst við bræður í golfi á hinum geysifallega golfvelli þeirra Toftlendinga. Þess má geta að hann hitti kúluna oftar en ég..enda á heimavelli!

Ekki er hægt að klaga Dani fyrir að kunna ekki að halda veislur. Síðustu ár hef ég upplifað dönsk veisluhöld og hef lært a.m.k tvennt sem ég mun vafalaust tileinka mér; árið 2001 fór ég í afmæli þar sem borðaður var góður matur, sungið, dansað og drukkið en við lok veislunnar, áður en gestir fóru heim, var boðið uppá heitan mat aftur. Mjög góður siður. Fermingarveislan þarsíðustu helgi var ægilega fín, á hádegi hófst veislan með borðhaldi, hjartardýr með öllu tilheyrandi, boðið var uppá öl, hvítt og rautt með matnum, um kl. hálffjögur eftir að gestir höfðu drukkið öl útá palli og sleikt sólina var boðið uppá kaffi og dýrindis kökur. Rétt fyrir kvöldmatarleyti voru svo gestir kvaddir með heitum brauðréttum og voru sumir orðnir ansi slompaðir eftir vellystingar dagsins. Snilldarráð fyrir þá sem eiga jahh...leiðinlegan frænda eða eitthvað, bjóða uppá áfengi og hafa glasið aldrei tómt.

Við foreldrar mínir áttum ansi hreint góða daga og komum svo við í bakaleiðinni í Kaupmannahöfn þar sem allt var rósum stráð í tilefni brúðkaupsins. Ég er alls ekki bloggfær um þessa hluti því ég hef skammarlega lítinn áhuga á royaliteti og efast um að ég hafi vitað nafnið á þessu dvergvaxna danska prins fyrir mánuði síðan. Það er helst að ég spyrji pabba sem fylgdist daglega með útsendingum frá TV DANMARK og TV2 úr höllinni. En við að sjálfsögðu treystum okkur ekki að vera lengur úti vegna látana á Alþingi og svo fr. og drifum okkur heim næstu vél rétt fyrir brullaupið.

Dúndrandi fjör í ræktinni, ég er alveg nýr maður. Búinn að læra að hoppa uppá nýtt, maður var náttúrulega búinn að tapa allri hreyfingargetu. Svo hittir maður fullt af frægum; Jakob Frímann, Jói Vill sem er sonur Villa heitins Vill söngvara, Gunnar Dóra Hermanns, Thor Vilhjálms og fl.!

Lesandi hringdi í mig í dag og lýsti yfir ánægju með endurkomu mína á síðunni, hann hreifst með bjartsýninni og jákvæðni Nýja Kriss og náði þess vegna að klára ritgerð sem hann átti í basli með. Það er gott að engum verði meint af þessum skrifum...! Teljarinn er í 10315!

10:34 e.h. Ekki vera feiminn

16 maí 2004  
JÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆJJJJJJAAAAA,
komið þið sæl.. ef einhver er að lesa þetta yfirleitt!? Nú eru langflestir lesenda búnir að missa trúna á mér og hafði ég stórkostlegar fyrirætlanir um magnþrungið bloggkombakk en hvað gerist...blogger.com er komið með nýtt lúkk og ég er sleginn út af laginu. Ég kann ekki neitt, ég þarf að leita ráða hjá hinum fersku pennum s.s eins og þeim á Nönnukaffi eða Kristni Hermannssyni!

Fooooooccck hvað tíminn líður hratt! Síðasta skrifelsi mitt er frá 28.apríl, þar sem ég var að telja niður lífdaga gungunnar/druslunnar og ég hygg að fleiri séu að telja í dag. Ekki ætla ég að dvelja hér við fjölmiðlaandvarpið, ég læt aðra um það.

Margt hefur breyst í mínu lífi síðustu vikur. Ég hef fært mig um set í vinnunni, aðstoða núna við verslunarstjórn og fæst við sölur til erlendra viðskiptavina þ.e. háskóla og bókasafna. Ég er byrjaður í líkamsrækt í Laugum og er jafnvel að spá í að kaupa mér hvíta sokka. Svo er ég búinn að kaupa mér glænýtt hjól. Það er allt annar Kriss sem talar hér í dag, gamli Kriss söng sitt síðasta í apríl. Nýi Kriss er jákvæðari útí lífið, markvissari og beittari. Nýi Kriss drekkur Smirnoff Ice, hlustar á Noruh Jones og les Brian Tracy! Ég veit ekki hvort ég vilji breyta um útlit síðunnar, þó það eigi kannski við hvað, en hvað finnst ykkur?

Ég hef að sjálfsögðu gert margt skemmtilegt síðan þið heyrðu frá mér síðast, spilaði með Violent femmes, æft með nýrri og hressilegri hljómsveit, farið til Danmerkur og á útskriftarsýningu nema úr LHÍ. Ég veit svona sirka hvar ég á að byrja en ég held ég geri það ekki í kvöld, þetta er nóg í fyrstu gusu. Ég verð að leyfa mönnum að jafna sig, er til dæmis búinn að skilyrða lesandann Eirík Örn Norðdahl sem hlýtur nú að vera alveg ruglaður eftir þetta útspil..! Ég kem aftur..nýi Kriss kemur oftar!

Í dag eru 122 dagar í 15.september.
Teljarinn er í 10242!

11:00 e.h. Ekki vera feiminn

28 apríl 2004  
Í dag eru 140 dagar í 15. september!

11:16 e.h. Ekki vera feiminn

21 apríl 2004  
Við höldum áfram þar sem frá var horfið í síðustu frásögn en þar var Kriss á leiðinni á rokktónleika...!
Ég er náttúrulega soldið búinn að missa það, að fara skrifa um þessa tónleika núna. Old news. Flestir aðrir fjölmiðlar nema ég hafa greint frá fjörinu. Annars var þessi rokkhátíð til háborinnar fyrirmyndar í alla staði. Skemmtilegast fannst mér að sjá alla bæjarbúa mæta og inntaka hið góða framtak. Tónlistin höfðaði vitaskuld ekki til allra en menn voru ekki að leggja það fyrir sig. Ég held að uppgjörið hafi litið svona út; hetjan=dóri hermanns, skúrkurinn=gus gus. Menn voru orðnir ansi rokkþyrstir undir lokin og varð því frábær stemning þegar hljómsveitirnar the nine-elevens, dr.gunni og trabant skemmtu í endann. Random lænoppið endaði sem fínasta buildup.

Ég held að það sé alltaf erfitt fyrir hinar ýmsu týpur úr Reykjavík að fara útá land. Enginn Kaffibar eða Sirkus. Fólk er bara núll og nix og næsti maður veit ekki endilega að aðkomumaðurinn er í hljómsveit eða í fjöllistahópi.. já, eða í gjörningaklúbbi. Maður hefur horft uppá þetta vesalings fólk svo ráðvillt að það veit ekki í hvora löppina þau eiga að stíga. Ein stúlka úr föruneytinu átti í mestu vandræðum í smá partíi á Pólgötu eftir hátíðina, þar settist hún á gólfið, glotti einkennilega og sagði ekki neitt, og á útleiðinni fór hún undir gardínu og stóð þar í nokkurn tíma. Sjálfur þurfti ég endilega að stríða henni smá og tók hárbursta og greiddi henni örlítið eitt. Henni brá ofsalega og fór algjörlega úr jafnvægi, kvartaði síðan við kærastann sinn að allir innfæddir væru svo dónalegir!? Ég man líka eftir skemmtilegu dæmi fyrir nokkrum árum þegar hópur frá Reykjavík kom og skemmti í MÍ, í partíi á eftir stóð upp ung stúlka, sem fylgdi hópnum, hún heitir Hrönn Sveinsdóttir, og sagði hún okkur útálandipakkinu að við kynnum alls ekki að skemmta okkur. Og tónlistin sem við hlustuðum á, hún væri svo "yesterday". Hún bauðst til þess að koma seinna og kenna okkur. Aldrei kom hún vestur...!

Á morgun erum við í hljómsveit Dr.Gunna að fara að hita upp fyrir erlenda skemmtikrafta, hljómsveitina Violent femmes. Söngvarinn, Gordon Gano, kom í Bókabúð Máls og menningar (..hvað annað) í dag og keypti fyrir um 20,000 kr. íslenskar, m.a. íslenska lýrik. Ég sagði honum að ég væri í bandinu sem spilaði með þeim annað kvöld, hann var ansi glaður með það og voða áhugasamur og spurði mikið um bandið. Ég tjáði honum að Gunnar væri legend í íslensku rokki síðustu 20 ára, og þá spurði konan hans (sem var blökkukona) hvort ég væri búinn að vera í bransanum jafn lengi! Brást þá Gordon (eins og ég kalla hann) illa við og sagði henni að ég væri alltof ungur til þess. Æjii, hann Gordon, hann er alveg frábær!

Teljarinn er í 9578!

11:40 e.h. Ekki vera feiminn

14 apríl 2004  
Pílagrímsferð!
Eftir ýmsar hótanir útá götu og slæm augnatillit hysja ég hér uppum mig og reyni að pára á síðuna auma stafi. Síðasta færsla er frá 28.mars og hef ég reynt í millitíðinni að setjast niður en ekkert gengið. Nú ætla ég mér að setja á mig pressu og merkja við hverja færslu, stöðuna á teljaranum. Þá getum við saman, ég og þið lesendur góðir, útbúið einhverskonar refsistig ef "X" margir eru búnir að koma í heimsókn og þurft að lesa sama gamla bullið. Þannig getum við í sameiningu haldið síðunni örlítið gagnvirkari, sem minnir mig einnig á það að ég þarf að setja upp svona athugasemdaglugga!

Þetta var jú sérdeilis hressandi reisa til Ísafjarðar um páskahátíðina. Ég flaug á skírdag og koma aftur nú á mánudaginn. Það var augljóslega margt um manninn í bænum og náði ég, að kvöldi skírdags, að upplifa í fyrsta skipti á Ísafirði (eftir að hafa búið þar í 23 ár) að standa í biðröð!! Langi Mangi orðinn 33% meiri (eins og Homeblest) eftir breytingar og viti menn; fokkings biðröð! Ég, fyrrum bæjarfulltrúi Ísafjarðarbæjar mátti gjöra svo vel og standa úti í nagandi kuldanum meðan einhverjir helv.. leppalúðar úr Reykjavík; Rassi Kúkur, Mjúkison og vinir þeirra sátu inni og sötruðu öl!! En ég þurfti ekki að upplifa sömu niðurlægingu fyrr um daginn, þegar ég komst inn á listasýningu í Slunkaríki.

Á föstudaginn langa fórum við í skemmtilegan bíltúr með Pílagrími og fjölskyldu. Kíktum rétt inní Bolungarvík, aðeins fyrir kurteisissakir, fórum reyndar helst til of glannalega í gegnum unaðsemdir Hnifsdals og héldum á leið til Súðavíkur. Þar fengum við leiðsögn um gamla þorpið frá meistara Sleggju, þareftir sögulegt ágrip frá frænku Grims henni Rönku (en hún er einmitt tengdamóðir Karítasar systur minnar) og síðan brunuðum við í Arndælu til Jónínu, þar sem Sunna tengdadóttir hennar var búin að útbúa dýrðlegar kræsingar. Um kvöldmatarleytið vorum við mætt á Valseyri í botni Dýrafjarðar, nánar tiltekið á þann stað sem Gísli og Þorkell Súrssynir ætluðu sér að ganga í fóstbræðralag með mágum Gísla, þeim Vésteini og Þorgrími en allir vita hvernig sú saga endar. Þar lentum við í þvílíkri veislu; hangiket og uppstúf, sviðakjammar og soðnar sviðalappir með rófustöppu. Þar á eftir fylgdi rjómaís, harðfiskur með smjeri og rúgbrauð með skötu fyrir þá sem vildu. Síðast þegar ég heyrði af Grími sat hann á klósettinu, en það er allt önnur saga...! Deginum lukum við í týpupartíi í tjöruhúsi, þar sem fólk kepptust um athyglina, eftir það féllu öll vötn útí Hnífsdal vitanlega þar sem Írafár var mætt. Ég tók reyndar ekki eftir þeim að neinu leyti, nema að veskið mitt var þynnra...

Þar sem ég get rétt ímyndað mér að helmingar lesenda sé búinn að missa athyglina þá dettur mér í hug að skipta þessari frásögn minni í tvennt; annar hluti kemur þá innan skamms og mun ég þá segja frá rokkhátíðinni, reykvískum vesalingum með minnimáttarkennd og fleiru. Ekki fara langt...

Ég skora á ykkur að kíkja í kaffi til Nönnu á meðan þið bíðið.
Teljarinn er í 9350 þegar þetta er skrifað!

11:56 e.h. Ekki vera feiminn

28 mars 2004  
Flashback!
..ég er staddur í þriggja dyra húðlitaðri Mözdu 323, sit afturí ásamt Gumma. URI situr við stýrið, enda eini sem kominn er með bílpróf, Þór situr við hliðina á honum. Við erum nýkomnir af Frábæ, þar sem URI fékk sér pítu með K. (þ.e. kjúkling), afgreiðslumaðurinn á Frábæ skrifar alltaf á pöntunina "Píta með K.", eins og URI er farinn að kannast heldur betur við og hafði þessvegna, í sínu einstaka skopskyni, tekið með sér stafinn "K" úr Scrabble og troðið inní pítuna. Okkur hinum brá örlítið þegar URI hóstaði uppúr sér K-inu með harmkvælum og öskraði á afgreiðslumanninn, "..þjónn, það er K í pítunni minni!". Við erum á rúntinum, snúum á höfninni og aftur á sjúkrahúsplaninu, URI ropar og sönglar; "Óje, óje, night of cheese, hey Gummi og Kristján! Finnið fyrir mig Gumsið, það er gul plata, hún á að vera þarna afturí glugga". "Við bara finnum hana ekki, æji getur verið að hún sé týnd" segjum við Gummi í kór.

Við fórum í heimsókn til De Vidos í dag og Siggi gaf mér afrit af nokkrum plötum, þ.á.m Gumsinu og hinni stórkostlegu Faith no more plötu Angel dust. Nú sit ég fyrir framan skjáinn, með músíkina í botni, og minningarnar hrannast upp (oooh, græni subaruinn). Ég gæti skrifað í alla nótt...

Helvíti fín helgi annars! Fórum með þeim Lambastaðabræðrum uppí Borgarfjörð á aðfaranótt laugardags, nema að Bjartur fór í heimsókn til frænku á meðan. Frábært að komast úr bænum og í annan takt. Snakk, nammi og hressandi drykkir utan í borðköntum en á borðinu, útflatt landnemaspilið "Cataan" (borið fram að hætti Jóns), teningunum er kastað og maður vinnur ellefu kindur, tvo leira, einn rekavið og ryðfrítt stál. Bissnissinn hefst, kaupa, selja. Maður finnur sjálfan sig, og spyr um leið spurninga sem reyna á sambandið. Þessi ferð okkar var dálítið eins og námskeiðið í "..and Björk of course", ef einhver var að horfa á það.

Við erum búin að vera bíllaus um helgina, der Volswagen hefur verið í viðgerð hjá Halla í Hafnarfirði, það varð víst meira að en búist var við. Ekki veit ég hvernig okkur hefur tekist að fara svona illa með hann, hann var víst alveg útkeyrður þegar hann var lagður inn. Finnst ykkur skammarlegt að vita ekki mikið um bíla? Ég verð að játa það að ég er ekki alla daga með nefið oní húddinu, tékkandi á kertastjökunum, mæla hvað er heitt á olíukönnunni og kanna hvort lyftureimin sé nógu strekkt..! Ég er bara að fást við annað! Ég ætti ekki að vera að rausa þetta, tengdó verður ekki ánægður með þetta! Annars grunar mig að sonur minn fari brátt að tala um hásingar og spindilkúlur, svo mikill er bílaáhuginn. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft..?

11:42 e.h. Ekki vera feiminn

21 mars 2004  
(Hér á að vera einhver voða sniðug fyrirsögn)
Komið þið sæl, helgin er flogin og það án slysa..að minni hálfu. Ég mætti galvaskur í vinnu á laugardag þrátt fyrir þokkalega þynnku, eftir að hafa verið á John Daniels kvöldi í Gauki á stöng. Það gekk ágætlega í vinnunni, mikið um viðskiptavini í fermingargjafainnkaupum og góða gesti m.a. þau Huldu og Hilmar sem komu í atferliskönnun uppá Súfista. Flestir ættu nú að vita að stórmerkilegur hópur, sem kallaður er Gáfumannafélagið, hreiðrar um sig á kaffihúsinu strax uppúr kl.10.00 á laugardagsmorgnum. Þar eru m.a. Jónsteinn fyrrum bóksali, Sverir Hermannsson fyrrum bankastjóri, Páll Bergþórsson fyrrum veðurfréttamaður og fleira fyrrum fólk. En núna virðist það vera þannig að hópurinn hefur tvístrast í sundur og seinna holl mætir um kl.12.30, þar eru Vigdís Finnbogadóttir fyrrum sómi, sverð og skjöldur, Guðný Ýr ekkja Sigfúsar Daðasonar, Árni og Lena Bergmann fyrrum rússar og að sjálfsögðu Anna okkar Einars sem hefur m.a. fengið Fálkaorðuna (leiðinlegt að handhafar orðunnar skuli aldrei ganga með hana um hálsinn, ég myndi gera það að lögum)! Þetta folk sem er hér upptalið er fólk með puttana á púlsinum, og verður gaman að heyra frá rannsóknum þeirra Huldu og Hilmars næstu laugardagsmorgna.

Ég horfði að sjálfsögðu mikið á sjónvarp um helgina, tók laugardagsþristinn sem klikkar ekki; Gísli Marteinn, Spaugstofan og Popppunktur. Ótrúlega skrýtinn þátturinn hjá Gísla, ægileg uppgerð. Gunnar stóð sig vel. Merkilegur þessi misskilningur hjá fólki að halda því fram að Gunnar sé lélegur söngvari, hann er alls ekki lélegur söngvari það er bara röddin sem ekki er silkimjuk. Sjálfur líkti hann rödd sinni við taugaveiklaða kind með hálsbólgu eða eitthvað... hann er svo sem enginn Robertino, en hann kann að syngja. Vá, hvað Jónsi er flaaaaaming gay (ég má taka svona til orða, því ég er útskrifaður úr gay-fræðum og hef réttindi)! Fyndið annars hvað hann kallast á við Birgittu Haukdal, hann er nú í vinsælasta poppfroðubandinu, auglýsir súkkulaði, er á leiðinni í Eurovision, hann á bara eftir að skilja við konuna og byrja með trommuleikaranum.

Popppunktur með Skuff og Bje var ágætur, allavega fram að því þegar Felix byrjaði á "áfram KR" veilunni. Hvað er þetta með helv.. KR-inga, þurfa þeir að æpa upp um allt? Enginn annar þjóðflokkur gerir þetta. Ég man eftir ferðum mínum með Geirfuglum þegar Freysi var sífellt að æla þessu út úr sér, jafnvel þó við værum að spila í brúðkaupi á Stykkishólmi! "Kæru brúðhjón, til hamingju með daginn og áfram KR". Þetta er bara heilaþvottur af verstu gerð! KR og Sjálfstæðisflokkurinn! Geðveila.

Spaugstofan var viðbjóður, helv..geirfuglinn þarna sem var pönslænið í öllum bröndurunum, ojjbara. Besta íslenska grínið í dag er tvímælalaust Dóri Gylfa með ævintýrin í Stundinni okkar. Og svo er Baggalútur fínn...

Hljómsveit Dr.Gunna er á leiðinni á Ísafjörð um páskana. Grímur Atlason, hinn týndi sonur Súðavíkur, ætlar með fjölskyldu sína vestur á firði og okkur vantar fyrir þau mannabústað yfir páskana. Ef ykkur dettur eitthvað í hug, kæru lesendur, látið mig vita..!

11:22 e.h. Ekki vera feiminn

18 mars 2004  
Það er fátt um fína drætti hér þessa dagana. Það er búið að vera mikið að gera, fór annars á mjög skemmtilega árshátíð á laugardaginn þar sem m.a. hljómsveitin Hraun! skemmti. Hún var skemmtileg.

Stefán er kominn heim úr uppherðslunni fyrir vestan, það var mjög gaman að sjá hann aftur frá því á laugardeginum. Ég er í vinnunni núna svo það er ljóst að ég skrifa ekki meira í þetta skiptið.

Hljómsveit dr.Gunna verður á Stöð 2 í kvöld, í fréttatímanum Íslandi í dag...

8:49 f.h. Ekki vera feiminn

15 mars 2004  
...það er kominn nýr dagur! Svo fólk þarf ekki að örvænta.

4:31 e.h. Ekki vera feiminn

10 mars 2004  
Þetta er ekki góður dagur. Menn haga sér einkennilega. Mér skilst að skýringin sé sú að það er lágþrýstingur. Vonandi kemur nýr dagur...

1:23 e.h. Ekki vera feiminn

09 mars 2004  
Við Bryndís erum að fara á árshátíðir nú um komandi helgi og höfum við ákveðið að senda Stefán Bjart í sveit á meðan. Það þarf að herða hann upp. Ef þið vitið um einhvern sem er að fara vestur á Ísafjörð á föstudaginn með flugi, látið vita..!

8:50 f.h. Ekki vera feiminn

07 mars 2004  
K&B, MSC og PPPP
Í gær var opnunarhátíð Klink og Bank, þar var mikið um dýrðir! Fór ásamt stelpunum í Homebreakers á opnunarfest um kvöldið þar sem allir aðstandendur borðuðu saman og dönsuðu, maturinn var stórgóður, barinn helvíti fínn og ódýr og varð þetta hin besta skemmtan. Reyndar skildi ég engan veginn skemmtiatriði gjörningaklúbbsins og ragnars kjartanssonar, þar sem þær voru í hempum og sulluðu í freyðivíni og á meðan baulaði ragnar allsber, en þetta eru náttúrulega myndlistarmenn og ég hef sjálfur ekki þann þroska né skilning sem þarf til að túlka verkið. Það er á svona dögum sem ég er feginn að vera ekki myndlistarmaður..

Áhrifameiri var gjörningurinn sem tók við eftir klink og bank, þegar þeir Lambastaðabræður dróu mig í öndergránd leðurhommaklúbb í miðbænum. Þar var engin uppgerð á ferðinni og við þetta rann hressilega af mér. Á leiðinni heim kom ég við á Ölstofunni, til að ná áttum og hitti þar Helga Björns og Brynju hans Bubba. Já, ég þekki þau.

Ég missti af Popppunkti í gær og er þetta eini þátturinn sem ég hef misst af. Þetta verður jafnframt eini þátturinn sem ég missi af af ásettu ráði en ég get ekki fyrirgefið þeim PPPP mönnum að fá Atómstöðina í þáttinn. Svo væri það náttúrulega eftir öllu að þeir hafi unnið og komi aftur, ég vil ekki vita það...

11:16 e.h. Ekki vera feiminn

03 mars 2004  
Muuuuu..!
Jú, komið þið sæl! Ég sit hér heima og get ekki annað. Uppskar hálsbólgu og kvefpest úr tónleikaferð okkar í norðurlandskjördæmi eystra. Reyndar held ég að ég sé að erfa þetta frá honum Guðmundi, sem hafði verið ansi langt leiddur í hálsbólgunni á tímabili. Ég man eftir því á leiðinni upp Öxnadalsheiði að Guðmundur stökk út og smalaði nokkrum hrossum af þjóðveginum innum girðinguna og á meðan þá hélt ég á bjórnum hans, auk þess að halda á mínum. Síðan hef ég náð að rugla þeim saman. Er kynvilla smitandi..? Nei, djók!

Annars var virkilega gaman að fara norður, áttum fína spilamennsku á Akureyri og Húsavík en mætingin hefði getað orðið meiri. Mikið af unglingum í Sjallanum, þar sem við spiluðum með Skyttunum og Hvanndalsbræðrum, en á Húsavík var meira okkar crowd ef svo mætti segja. Hittum bassafautann úr Mínus, hann var ansi hress í Sjallanum, náttúrulega löngu hættur í dópinu eins og hann sagði alþjóð í þættinum hjá Jóni Ársæli á dögunum. Fanturinn náði víst að gelta út fimm bjóra á barnum og skrifa þá á okkur í bandinu. Það kom okkur ekki við. Skemmtilegast var að hitta hinn mikla meistara; Rögnvald gáfaða en hann er með fyndnari mönnum. Kíktum í kaffi til hans og í Pínkuponsulitlu plötubúðina. Með Rögnvaldi rifjuðum við upp gamla sögu af öðrum snillingi að norðan; gaur sem kallaður er Lími (hann borðaði svo mikið af hörðnuðu lími þegar hann var yngri)! Lími var fullur með strákunum á fleygiferð í Eyjafirðinum, akandi um á Chevrolet Van. Lími sá þá belju í vegkantinum og langaði að gera gott djók og rassskella beljuna. Hann bað bílstjórann um að hægja lítillega á bílnum, opnaði hann þá rúðuna og lét vaða á aftari enda beljunnar. Blessuð beljan var lítið var við það sem átti sér stað og sagði bara MUUUUUU! Lími hinsvegar þríhandleggsbrotnaði...!

Ég ætla að halda áfram að vera veikur, horfa á vídeó og svoleiðis. Gestabókinni tróð ég þarna efst á kunnuglegar slóðir, farið svo að láta í ykkur heyra, Bekks talar út í tómið. Og hlustar á Who, ekki slæmt.

1:01 e.h. Ekki vera feiminn

25 febrúar 2004  
Já, svei mér þá. Jújú, við í Dr.Gunna erum á fleygiferð þessa dagana og nóg er hægt að skrafa um það. Best að vera ekki að tala mikið um það, Gunnar var skammaður í bak og fyrir af lesendum hversu mikið hann skrifaði um sjálfan sig og athafnir sínar. Við stefnum jafnframt á leikför um landið á næstu vikum og svo í víking í endaðan apríl til Kaupmannahafnar, þar sem við munum m.a. spila á þessum stað! Fengum dóm
hér! Engin skömm að þessu.

Við Stefbjartur fórum í blómabúð á sunnudag og keyptum fyrir dísina okkar orkídeu, höfðum fengið boð um áður að henni langaði kannski í svoleiðis plöntu. Ég labbaði sposkur að afgreiðsluborðinu um leið og ég hugsaði hversu mikið af orkídeum ég ætti að kaupa. Tvímælalaust einhverja oddatölu, þrjár, sjö eða kannski bara tylft. Afgreiðslustelpan tjáði mér svo að þær væru allar búnar, en mér til ánægju fann hún eina! Eina ferska orkídeu! Í potti. Ég keypti hana, ágætlega glaður í bragði en blessuð plantan var eitthvað óhress að sjá. Hún var ægilega niðurlút og fölbleik. Á leiðinni út romsaði afgreiðslustúlkan út úr sér eftirfarandi; "..já, vökva bara einn bolla á viku, hún vill helst regnvatn, takið hana með í sturtu, hún má ekki vera í of mikilli birtu en samt einhverri, eftir nokkra mánuði leggst hún í dvala þá setjið hana í geymslu í mánuð eða svo og takið hana svo út." Já, þannig að núna erum við orðin fjögurra manna fjölskylda, þar sem orkídean þarfnast mestrar umhyggju. Þetta er miklu meira vesen en með Stefán, það þarf ekki að safna regnvatni fyrir hann.

Kiddý bað mig um að athuga hvort tímaritið Lopi og band væri til ennþá. Það var nú ekki svo, og enginn vissi um tildrög blaðsins. En best þykir mér þetta nafn; Lopi og band. Flott nafn á hljómsveit. Hljómar eins og notalegur og bangsalegur söngvari ásamt undirleikurum.

Endilega lítið inn til Fjalars, þar er skemmtileg lesning um fólk sem "misskilur sjálft sig", eins og einhver sagði forðum.

11:18 e.h. Ekki vera feiminn

 
Komandi upp..næst!
Sveiattan! Það gefst bara engin griðarstund í þessari viku, svo mikið er annríkið. Ég hugsa að ég setjist samt niður í kvöld og skifi um hinn ljómandi hversdagsleika síðustu daga. Þar mun koma fram m.a.: Lopi og band, Orkídea, Stengade, Gamli Baukur og fl.

Únglingarnir í Hljómsveit Dr.Gunna verða í Menntaskólanum í Hamrahlíð í hádeginu og Únglingaþættinum At í kvöld, auk þess er platan Stóri hvellur plata vikunnar á Rás 2, þar sem spilað er eitt lag á klukkutíma...!

8:40 f.h. Ekki vera feiminn

19 febrúar 2004  
Hvar er skinna!
Vá, hvað ég er duglegur! Ég er búinn að henda út gestabókinni, eða þ.e.a.s. tenglinum þarna uppi til hægri. Jæja, ég get þá kannski sett annan link, ég verð að reyna það í kvöld. Annars verð ég bara að fara með gestabókina mína og selja hana til einhvers útgefanda útaf öllum smalafræðunum sem birtust þar á dögunum. Kannski bændasamtökin kaupi þetta...ég hefði hringt í Ara Teits en hann er bara hættur. Hér er annars Mjúkinskinna.

Ég fór með Smára Spect í bíó í gær, á Lost in translation. Ykkur er alveg óhætt að fara á hana líka, hún er enginn viðbjóður.

8:49 f.h. Ekki vera feiminn

18 febrúar 2004  
Umhleypingar!
Nú er vor í lofti. Það fara fram umhleypingar í hausnum á manni. Maður lekur í og úr vinnu. Við Bryndís fórum út á laugardaginn, m.a. í afmæli til Hauks frænda, það var skemmtilegt og fórum við svo á 22 og tókum léttan snúning fyrir háttinn. Þetta var allt ferlega næs. Stefán Bjartur fór í heimsókn til Bryndísar frænku á meðan, og Halldórs og Bárðar Bryndísarsona, hann fílar það einstaklega vel. Á sunnudagsmorgninum fengum við svo tækifæri til að sofa út, en geðsjúklingurinn ég gerði það alls ekki. Málið var að í partíinu kvöldið áður var Elín Smára með vinkonu sinni, sem sagðist vera dóttir Birgis Sigurðssonar en samt ekki rithöfundarins. Þetta er svo sem ekki í frásögur færandi nema að þetta fékk mig til að hugsa voðalega mikið hvað bók Birgis Sigurðssonar frá árinu 2000 héti! Ég vaknaði kl.09.00 með harmkvælum eftir nokkurra stunda martröð, veltandi fyrir mér nafni bókarinnar, hélt því svo áfram vakandi fram til kl.10.53, þegar ég fattaði loks að helv.. bókin heitir Ljósið í vatninu. Þá sofnaði ég aftur um stund..

Ég er einstaklega ánægður með endurkomu Frasier-þáttana! Ég hætti nefnilega að horfa fyrir tæpum tíu þáttum síðan en þá var Niles að fá fyrir hjartað eða eitthvað. Ég hélt að þetta væru gamanþættir og maður ætti að hafa gaman að þeim, en þarna var ég að sjálfsögðu líka að fá hjartaáfall, eins og tilhneigingin er með mig. Ég má nefnilega ekki einu sinni lesa um einhvern sjúkdóm þá er ég kominn með hann. Síðustu þrír þættir hafa verið ansi hreint góðir, fyrst kom Elvis Costello, svo Dr.Phil og nú síðast einhver kall sem var blanda af Frasier og Niles...

Oj bara! Smáborgaralegasta snobb í heimi er vafalaust Sunnukórinn!

Það er ekki nóg með að Bryndís systir hafi verið svo góð að passa litla Bjart á laugardagskvöldið, þegar hún kom með hann á sunnudeginum fengum við kaupauka; nýja spólu í bílinn, nýbakaða upptöku af White Stripes og safn af Johnny Cash. Frábært.

9:25 e.h. Ekki vera feiminn

17 febrúar 2004  
Umhleypingar!
Nú er vor í lofti. Það fara fram umhleypingar í hausnum á manni. Maður lekur í og úr vinnu. Við Bryndís fórum út á laugardaginn, m.a. í afmæli til Hauks frænda, það var skemmtilegt og fórum við svo á 22 og tókum léttan snúning fyrir háttinn. Þetta var allt ferlega næs. Stefán Bjartur fór í heimsókn til Bryndísar frænku á meðan, og Halldórs og Bárðar Bryndísarsona, hann fílar það einstaklega vel. Á sunnudagsmorgninum fengum við svo tækifæri til að sofa út, en geðsjúklingurinn ég gerði það alls ekki. Málið var að í partíinu kvöldið áður var Elín Smára með vinkonu sinni, sem sagðist vera dóttir Birgis Sigurðssonar en samt ekki rithöfundarins. Þetta er svo sem ekki í frásögur færandi nema að þetta fékk mig til að hugsa voðalega mikið hvað bók Birgis Sigurðssonar frá árinu 2000 héti! Ég vaknaði kl.09.00 með harmkvælum eftir nokkurra stunda martröð, veltandi fyrir mér nafni bókarinnar, hélt því svo áfram vakandi fram til kl.10.53, þegar ég fattaði loks að helv.. bókin heitir Ljósið í vatninu. Þá sofnaði ég aftur um stund..

Ég er einstaklega ánægður með endurkomu Frasier-þáttana! Ég hætti nefnilega að horfa fyrir tæpum tíu þáttum síðan en þá var Niles að fá fyrir hjartað eða eitthvað. Ég hélt að þetta væru gamanþættir og maður ætti að hafa gaman að þeim, en þarna var ég að sjálfsögðu líka að fá hjartaáfall, eins og tilhneigingin er með mig. Ég má nefnilega ekki einu sinni lesa um einhvern sjúkdóm þá er ég kominn með hann. Síðustu þrír þættir hafa verið ansi hreint góðir, fyrst kom Elvis Costello, svo Dr.Phil og nú síðast einhver kall sem var blanda af Frasier og Niles...

Oj bara! Smáborgaralegasta snobb í heimi er vafalaust Sunnukórinn!

Það er ekki nóg með að Bryndís systur hafi verið svo góð að passa litla Bjart á laugardagskvöldið, þegar hún kom með hann á sunnudeginum fengum við kaupauka; nýja spólu í bílinn, nýbakaða upptöku af White Stripes og safn af Johnny Cash. Frábært.


10:40 e.h. Ekki vera feiminn

14 febrúar 2004  
Hinn heimurinn!
Ég varð fyrir áfalli á miðvikudaginn. Þannig er að ég hef staðið í þeirri trú að margt af þessu fólki sem er alltaf í fjölmiðlum, sjónvarpinu, séð og heyrt og svoleiðis væri bara hreinlega ekki til í raunveruleikanum. Sveppi og Auddi...það heitir enginn svoleiðis! Ég í mínum einfaldleika ferðast að heiman úr hlíðunum, beint í Mál og menningu, þaðan í Lóuhreiður og aftur heim. Þetta er heimurinn minn. Hinn heimurinn; Popp tíví, FM 95,7, Vetrargarðurinn, Hverfisbarinn, Astro og það allt hef ég bara einfaldlega séð í sjónvarpinu. Á miðvikudaginn fór ég ásamt Gunnari og Guðmundi akandi í Smáralind, og í fyrsta skipti á veitingastaðinn Thank God It´s Friday og borðuðum við þar fínustu máltíð. Eftir matinn hinsvegar sá ég alltíeinu ljóslifandi fyrir framan mig Ædoldroppátið Tinnu Sardínu eða hvað hún heitir...hún var púandi Salem og svolgrandi öl. Eftir þetta sjokk opnuðust flóðgáttirnar frá Vetrargarðinum og komu þau streymandi inn og í opið geðið á mér; strákarnir í Svörtum fötum, Þröstur þrjúþúsund, Karó á FM, Á móti sól, Doddi litli, Einar Bárðar, Svali, Kiddi bigfoot og svo mætti lengi telja....! Ég var á svipstundu kominn inní sjónvarpið, var kominn með hlutverk í Hinum heiminum. En það átti ekki eftir að standa lengi yfir, okkur var gefið illt auga úr öllum áttum og við náðum skilaboðunum og snáfuðum á brott.

Á Laugavegsgöngu minni um daginn hitti ég Jón Ólafsson, "couple of times" sagði hann og óskaði mér gleðilegs nýs árs. Ég fagnaði honum sem hetju, frelsishetju, "Jón, þú hefur komið "góða stráknum" aftur á kortið, til lukku með titilinn". Hann þakkaði mér fyrir og tók undir mín orð og sagði mér jafnframt að Dóri Gylfa hafi hringt í sig, og taldi hann sjálfan sig afar líklegan sem næsta kandídat í Kynþokka ársins 2005! Ég upplýsti Jón um æskuminningu mína sem rifjaðist upp fyrir mér á dögunum; ég sat í eldhúsinu hjá Maju systur í Hnífsdal, árið 1985 og las Vikuna, þar var viðtal við Bítlavinafélagið, hverra ég var mikill aðdáandi þá dagana. Þar höfðu menn ýmislegt að segja og sagði þá Jón m.a.; "ég er kannski ekki fallegasti maður í heimi, en ef þú horfir á mig í 24 klukkustundir samfleytt, þá byrjar þú að elska mig"! Þetta eru dagar góðu strákana. "Getum við ekki bara verið vinir?...heyrir sögunni til!

12:34 f.h. Ekki vera feiminn

08 febrúar 2004  
Aaaarghhhh!..ég var búinn að gefa skýrslu eftir helgina, búinn að útskýra fyrir ykkur kæru lesendur hina einkennilegu þörf á sunnudagskvöldi að hripa niður helstu tíðindi helgarinnar en hvað gerist þá? Ég vað að hlusta á músik í headphones þegar ég trommaði á ESC takkann og allt hvarf.

Helgin var engu að síður í rólegri kantinum og ekki frá mörgu að segja! Vinnuhelgi hjá mér. Stefán er búinn að vera veikur síðustu daga og fjölskyldan hefur lítið sofið. Mikið er búið að horfa á sjónvarp og hef ég komist að því að:
*Ævintýrahornið í Stundinni okkar, sem er í túlkun Dóra Gylfa, er með því skemmtilegasta í íslenskri dagskrárgerð þessa dagana!
* Ólafur Elíasson hlýtur að hafa leikið Brjánsa í Sódómu Reykjavík.
* Ég á tvær plötur með Bjartmari Guðlaugssyni heima á Ísafirði, og fékk ég hjá honum eiginhandaráritun á Ísafjarðarflugvelli árið 1987.

Hljómsveitin Homebreakers fékk inn hjá Klink og Bank í gamla Fréttablaðshúsinu og getur nú framið list sína við hlið alræmdra listaspíra, við erum í sama rými og Lab-Loki, leikarar og dansarar og munum þaðan koma að dæma lifendur og dauða...nei, djók! Þar verður framinn tangó.


10:25 e.h. Ekki vera feiminn

05 febrúar 2004  
Ljúfsárar...
Klukkan er 20 mínútur í 11.00 fyrir hádegi og ég er að blogga. Ég sit heima með kvefuðum syni mínum og er að leika við hann, eða svona þannig. Hann kann bara ekkert að blogga!

Heimsóknum hefur gjörsamlega rignt inn á gestabókina síðustu daga; Denni kominn vestur í sæluna og er örugglega að hlusta á Bubba í þessum töluðu orðum. Hann ætlar svo að troða upp hér í Reykjavík í næsta mánuði með félaga sínum Jóni Sigurðssyni Ædol-keppanda, þar sem Jón mun spila á gítar og syngja og Denni lætur smella í eyrunum auk þess að vera með kústskaft á nefinu.
Það er gaman að rifja upp gamlar fundargerðir frá árunum 1996-1998 hjá Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar. Hægt er að skoða þær inná slóðinni isafjordur.is og svo líka með því að fara inná google.com og slá inn leitarorðinu funklistinn, eða nöfnunum; Kristinn Hermannsson, Hilmar Magnússon eða Kristján Freyr Halldórsson.

Það var margt mjög áhugavert gert undir merkjum Funklistans á þessum tíma; Funklistinn lagði til að Guðbergur Bergsson færi í forsetaframboð og yrði fyrsti samkynhneigði forsetinn, við þáðum fjáraðstoð frá Ástþóri Magnússyni, lögðum til að bæjarskrifstofan yrði opin í hádeginu, lögðum til að elgir yrðu fluttir inn til landsins til að lífga uppá dýraflóruna og að sjálfsögðu splúndruðum meirihlutanum, sem vildi að bærinn keypti úrelt fiskvinnsluhús við sjóinn og notað yrði undir skólahúsnæði og var það þá til þess að bæjarstjórinn var hrakinn til sinna heimahaga aftur þar sem hann situr nú við völd og er að hafa mikil áhrif á fiskvinnsluna þar í bæ.

Við þyrftum að fá skrásetjara í að skrá sögu Funklistans í bráð áður en einhver óæskilegur kemst í öll gögnin, og það þarf þá að vera maður sem kann að nota "gæsalappir"!

Ég vil minna á hljómsveitina the nine-elevens sem treður upp á Grand rokk í kvöld kl. 22.00.


11:12 f.h. Ekki vera feiminn

01 febrúar 2004  
Djöfull er gaman!
Já, svei mér þetta var nú fínasta helgi. Djöfuls þorrinn blótaður í gær í góðra vina hópi. Allir voru í sínu fínasta, með uppfullt trogið af kræsingum og skemmtiatriði í vasanum. Verðlaun voru veitt fyrir besta skemmtiatriðið og kenndi þar ýmissa grasa; ljóðabálkar voru lesnir, leikþættir fluttir, lesið úr bréfum Steinólfs úr Fagradal, töfrabrögð, ádeilur, gjörningar, krummavísur og frumsamdar rokkóperur fluttar svo fátt eitt sé nefnt. Á endanum fór það nú svo að Háli Slikk sigraði með sínum einlæga flutningi flókinna töfrabragða og hlaut vegleg verðlaun; Stiklur Ómars Ragnarssonar þar sem hann var á ferð um Selárdal, og Grænlenskar þjóðsögur. Páll Einarsson hlaut annað sætið fyrir tregafulla túlkun sína á öðrum þætti frumsaminnar rokkóperu og bar þátturinn nafnið "Söngur krypplingsins", Bryndís Stefáns og Guðmundur Halldórs deildu með sér þriðja sætinu, Bryndís fyrir Krummavísu útsetta fyrir þverflautu og hetjutenór og Guðmundur fyrir harðan áróður fluttan á rafmagnsgítar. Djöfull var gaman.

Nú fer hljómsveit Dr.Gunna að vakna til lífsins aftur og mun gera víðreist á vormánuðum. Allir erum við eldhressir, Gunnar hættur að leika við Sigurjón og hefur hresstst mikið við það. Þótt hann sé kannski gamall, vitlaus og sköllóttur þá er hann þó hress! Grímur er á fullu að umbast, bókar okkur í hvert krummaskuð og sendir okkur jafnvel út fyrir landssteina. Grímur lætur hluti gerast.

Mánudagur á morgun, mér finnst mánudagar fínir! Steikt ýsa í rassi..nei, ég meina í raspi á Lóuhreiðri. Enter heimsótti mig í bókabúðina í síðustu viku og sagði mér þá meðal annars að Baggalútur væri á leiðinni í útvarpið, þ.e. Rás 2, þeir byrja á morgun eftir 17.00 fréttir. Sem þýðir þá að ég næ aldrei að hlusta... þetta hlýtur að verða endurtekið, örugglega eftir 19.00 fréttir. Vonum það!

Denni og fjölskylda bara flutt vestur! Ræturnar kalla! Við sn?um öll aftur. Roots bloody roots! Við höfum ekki mikið hist á þessum Rvk. kafla, hittumst kannski oftar framvegis! Það hljómar kannski frekar eigingjarnt en ég er bara ánægður með kallinn að flytja vestur, gott að vita af góðum þar og fær maður þá vonandi sjóðheita Ísafjarðarpistla með morgunkaffinu. Denni minn, hjálpaðu svo félaga mínum og þínum æskuvini með "dagbók lögreglu"!

Jæja, greiðendur afnotagjalda athugið, best að drífa sig til að missa ekki af popppunkti endursýndum. Alltaf ókeypis! Asnalegt af RÚV að vilja ekki sýna Skjás 1 auglýsinguna, RÚVarar telja Skjá 1 hafa sig að háði með orðalaginu! Hver man ekki eftir auglysingu RÚV til auglýsenda; lítur auglýsingin þín svona út (öll rugluð), þar er komið fínt fordæmi fyrir háði!
Jæja, pppp!

10:51 e.h. Ekki vera feiminn

28 janúar 2004  
Ljóð dagsins
Dagbjört og Rúna,
hvar eru þær núna?
Elska þær kannski einn mann?
Hver í fjáranum er hann?
Vinnur hann kannski á lyftara,
í miðri Ankara?
Fyrir hvern er hann þá að vinna?
Kannski Kolbein og Tinna.
En þeir eru bara djók
sem lifa í ævintýrabók.
Þetta vandamál ég ekki skil
því Dagbjört og Rúna eru ekki til!

8:41 f.h. Ekki vera feiminn

26 janúar 2004  
Mánudagur, hvað ertu að gera....
Ég er nú bara voða feginn þegar mánudagur kemur upp og vinnuvika hefst. Það er svo margt sem mér leiðist við helgar, maður liggur heiladauður fyrir framan sjónvarpið í staðinn fyrir að gera eitthvað kreatíft, auk þess er dagskráin alltaf viðbjóður. Svo þarf maður að fara í Bónus að versla inn fyrir vikuna. Svo bætir það ekki úr skák að ég er með frístundaveiki, fæ strax höfuðverk, vöðvabólgu og kvef um leið og ég stimpla mig út úr vinnunni. Mánudagar, komið fagnandi!

Síðasta helgi var nú samt ágæt, seldi fullt af bókum á laugardeginum, horfði á Gangs of New York um kvöldið, sem var frekar slöpp, fór á fínan hljómsveitarfund og í sólarkaffi til Smára, Siggu og Gunnars, fínt kaffi og íðilfagrar pönnukökur, allt til háborinnar fyrirmyndar.


Á daglegum ferðum mínum um Laugaveginn sé ég alltaf eitthvað skemmtilegt og forvitnilegt. Ég hef oft séð tvo grunsamlega gamla karla með skjalatöskur og óstjórnlegt glott, labba milli búða. Mér hefur ekki tekist að finna út hverjir þeir eru eða fyrir hverja þeir vinna. Kannski eru þetta fyrstu handrukkararnir ennþá við störf. Mér finnst samt gaman að ímynda mér að þeir séu gaurarnir sem eiga Laugaveginn og séu að innheimta leiguna í öllum búðunum. Annað sem er svo fjandi skemmtilegt er nýr veitingastaður sem mun opna á næstunni á þeim stað sem eldur mikill kom upp í fyrra eða hittífyrra. Og hvað skildi staðurinn heita; jú ROSSOPOMODORO! Nema hvað. Ímyndið ykkur þegar þið hringið og pantið borð; ROSSOPOMODORO, Sossa get ég aðstoðað! Hvað er með þessar nafngiftir á veitingarstöðum og verslunum hér á landi á? Hvers vegna getur fólk ekki drullast til að skíra staðina sína á íslensku? Er það af því að það er svo önkúl, af hverju heitir golfarabúðin Hole in one ekki Hola í höggi, af hverju heitir XL fatabúðin High and mighty en ekki Hlunkarnir? Eru þetta kannski allt keðjur? Og er þá ROSSOPOMODORO keðja líka? Eru til víðs vegar í heiminum ROSSOPOMODORO aðdáendur sem safna derhúfum, handklæðum, sængurverum og tannstönglum merktum ROSSOPOMODORO lógóinu?

10:49 e.h. Ekki vera feiminn

22 janúar 2004  
...djöfulsins massa-útsala er á bæði erlendum og íslenskum bókum í Bókabúð Máls og menningar á Laugavegi 18! Tja sei sei! Og þetta eru sko ekki neinar skræður, nei aldeilis ekki, bara nýlegar bækur! Nú er ég gáttaður.

4:09 e.h. Ekki vera feiminn

19 janúar 2004  
Kalli, kúkur og kafald...
..einkenndu helgina sem leið. Við fórum í heimsókn til Írisar frænku en hún býr í Hafnarfirði, þ.e. uppá efsta hól í Áslandshverfi. Í stofunni sat ég við gluggann og horfði meira á hríðina úti heldur en á Idol-dótið. Stefán Bjartur var að hefja ægilega tanntökuhrinu og kúkaði þrisvar í partíinu og þar á meðal öll fötin sín í gegn. Við þurftum að fá lánaðan alklæðnað hjá Einari Árna Sigrúnar- og Gíslasyni, en hann er ári yngri en Stefán en borðar sem betur fer hraðar en Stefán og gátum við því troðið honum í sokkabuxurnar hans. Það fer ekki hver sem er í sokkabuxurnar hans Einars.

Ædolið var ferlega langdregið og næstum alltaf þegar ég leit á skjáinn voru Simmi og Jói að segja eitthvað frábært. Þegar ég sá einhvern þáttinn fyrir vikum síðan taldi ég víst að Anna Katrín ynni þetta, hún væri með ómþýðustu röddina, rödd sem færi ekki í pirrurnar á manni (nema í R&B söng). Kalli truflaði mig ekkert endilega sem söngvari, sjóaratýpan ætti að höfða til manns frekar en hitt, en mér fannst hann frekar óspennandi í alla staði. Jón Sigurðsson hafði ekki röddina með sér, en heppnina hafði hann. Röddin er alls ekki allra, en hann býður af sér mikinn þokka, ferlega geðugur piltur. Ég hélt með honum á endanum. Svo þekkir hann Denna...! Magnað hversu þátturinn fékk mikinn áhuga fólks, allir eru að tala um þetta, og ég að eyða bloggi í þetta rusl. Ég hef aldrei séð annara landa Idol og er ekki með Stöð 2, en ég horfði á nokkra íslenska í ruglaðri útsendingu og ég myndi aldrei þekkja neinn úr þessum þáttum nema kannski í hríðarkófi og slæmu útsýni.

Áttum draumakvöld á laugardeginum. Borðuðum RAFMAX, folaldakjöt úr Nóatúni, drukkum ástralskt rauðvín og spiluðum JENGA.

Sunnudagurinn var slappur. Laugardagskvöldið minning ein sem olli höfðinu þunga. Engar vöfflur...

11:19 e.h. Ekki vera feiminn

12 janúar 2004  
Explicit lyrics-parental guidance!
Þá er maður búinn að finna taktinn aftur! Nú getur maður vaknað fyrir hádegi aftur, orðið saddur þó maður slafri minna í sig en einu hangikjötslæri með lítra af uppstúfi og kartöflum og maður kemst af án sælgætisáts tímunum saman. Það tekur smá tíma að hrista jólin af sér og koma sér í janúarfílinginn, og þá er ég ekki endilega að tala um jólakílóin, þau fara þegar maður kúkar!

Hér kemur brandari: Nýyrðasmiðir í íslenskri tungu hafa fundið Viagra-pillunni stað í okkar ástkæra ylhýra, og heitir pillan nú; Uppstúfur! hahahaha.

Nýtt ár hefur uppá margt að bjóða og í byrjun árs langar mig í;
bíó: LOTR, það væri gaman að sjá hvernig þeir loka hringnum. Hef reyndar heyrt allskonar hommakenningar um myndina, verð bara að bíða og sjá.
tónlist: mig langar að eignast eitthvað nýtt og ferskt, jafnvel nýjustu White stripes, er orðinn geðveikt lélegur í nýju stöffi, af sem áður var.
DVD spilara: eða nýtt vídeó..nei, dvd og nýtt vídeó. Síðan langar mig í heimildarmyndina The kids are allright.
nýja tölvu og adsl: betra blogg?? Ég veit það ekki.

Stóra systir mín, hún Bryndís á afmæli á morgun og verður því enn stærri fyrir vikið. Til hamingju mín kæra....


10:57 e.h. Ekki vera feiminn

04 janúar 2004  
Raunveruleikinn bítur.
Þá hefur maður snúið sér aftur að raunveruleikanum, kominn til Reykjavíkur. Hversdagsleikinn glennir sig framan í mann, enginn salernispappír, engin mjólk né brauð til á heimilinu. Þetta er ægilegt, svo er það helvítis vinnan...

Þegar nýtt ár renndi í hlað fylltist ég einhverri einkennilegri tilfinningu, mér fannst ég vera óstjórnlega bjartsýnn í garð hins nýja árs. Nýir möguleikar tækju á móti manni, ný sóknarfæri, tími til kominn að opnu augun og horfa í aðrar áttir. Þessi bjartsýni getur nú varla verið slæm og ætti nú bara að boða eitthvað gott, og óþarfi að líða einkennilega vegna hennar. Nú er málið reyndar þannig að nær allir þeir sem ég hef rætt við eru verulega jákvæðir úti hið nýja ár og einhvers staðar stóð í fjölmiðlum að árið yrði nú sérdeilis frábært.
Þetta veldur því að ég er orðinn logandi hræddur og þori varla að mæta árinu 2004, langar miklu frekar að loka mig inní skel.

Miklar og skemmtilegar umræður um Opinberun Hannesar í öllum miðlum, myndin virðist fá háðslega útreið alls staðar annars staðar en í Morgunblaðinu..en Morgunblaðið er nú varla að ljúga þegar það gefur myndinni þrjár stjörnur. Önnur merkileg staðreynd er sú að myndin Kaldaljós fékk hálfri stjörnu meira en sú fyrrnefnda í sama blaði. Þá spyr maður sjálfan sig; er það þess virði að hlaupa eftir hálfri stjörnu?
Opinberun Hannesar + hálf stjarna = ekkiséns!

Horfði annars einmitt á íslenska mynd í gær, víst við erum byrjuð að tala um þær, sú heitir Nói Albinói og mér hundleiddist hún. Ekki endilega var hún slæm eða illa gerð, ég get sjálfum mér um kennt að sjá hana svo seint, öll atriðin hafa verið sýnd í sjónvarpinu má segja svo ég átti ekki eftir að sjá mikið en því miður olli hún mér verulegum vonbrigðum.

10:25 e.h. Ekki vera feiminn

02 janúar 2004  
Nýtt ár...sama ruglið!
Komið þið sæl á ný! Ég vil nú byrja á því að óska ykkur til hamingju með nýtt ár, það var gott að losna við það gamla það var orðið eitthvað svo langdregið þarna síðasta daginn. Vitaskuld sveik ég loforð mitt um síðasta blogg gamla ársins enda er ég bloggari af síðustu sort, en eitt af fjölmörgum áramótaheitum er að standa mig betur í þessu þ.e. að standa betur við loforð. Ég var annars búinn að sjá fyrir mér gamlársdag í formi kaffibolla og bloggræpu þar sem ég myndi fara yfir árið og fremja á þvi málefnalega krufningu, en nei....ég sveik sjálfan mig. Það er nú ekkert nýtt, stundum fer ég svo illa með sjálfan mig að ég græt undan mér og eineltinu í minn garð. En ég þarf ekki að örvænta því eitt af mínum fjölmörgu áramótaheitum er að fara betur með sjálfan mig.

Í pásunni sem myndaðist við þessi greinaskil hugsaði ég lengi vel hvað mér fyndist minnistætt við nýliðið ár, ég get ekki hugsað skýrt, bölvaðir fréttaannálarnir sitja svo í mér að ég væri vís með að skrifa um kosningarnar eða kaupauka eða eitthvað þaðan að verra. Annállinn verður bara að koma seinna ( jæja, byrjaður að lofa uppí ermina )!

Áður en ég byrjaði þessi skrif fór ég hinn vanalega vef-rúnt, kíkti til Gunnars, Gríms og Fjalars meðal annarra og tók eftir því að mörgum var Áramótaskaupið og Opinberun Hannesar ofarlega í huga. Ég hef svo sem ekki miklu við þetta að bæta annað en að Áramótaskaupið var hreinræktaður viðbjóður, verra en skítflöt spaugstofa í sunnudagsþynnku og Opinberun Hannesar var bara hreinlega ekki mönnum bjóðandi. Ég vil varla eyða í þessa mynd lýsingarorðum, það yrði blessuðum lýsingarorðunum til minnkunar að verða nefnd í sömu setningu og þessi mynd. Ég hreinlega óska þess heitar en nokkuð annað að Davíð Oddsson verði áfram í forystu í íslenskum stjórnmálum svo honum gefist minni tími í handritasmíð sem þessa....djók. Ein helstu áhrif sem myndin hafði á mig var sú að ég varð ægilega pirraður í löppunum, eins og ég þyrfti að sparka í eitthvað.

Ég mun líka á næstu dögum segja ykkur frá þeim ótalmörgu áramótaheitum sem ég strengdi á gamlárskvöld; ég ætla að hreyfa mig meira, borða hollari mat, verða skemmtilegri, betri vinnufélagi, betri vinur vina minna, meiri óvinur óvina minna, brosa breiðar og fleira og fleira....
Ég get því miður ekki haft þetta lengra í bili, þangað til næst!

6:37 e.h. Ekki vera feiminn

 
This page is powered by Blogger.