bryndísar&kristjánsbörn
bryndís stefáns
gunnar hjálmars
elín smára
árný gísla
sigrún bjarna
hálfdán hálfdáns
eiríkur hrafns
karl hallgríms
örn guðmunds
birna guðmunds
kristinn hermanns
steingrímur guðmunds
páll páls
smári karls
grímur atla
vidófjölskyldan
bókabúðin mín
hljómsveitin reykjavík!

Bloggið er dautt og internetið líka. Ég las það á netinu, á einhverri bloggsíðunni!


























 
Archives
<< current













 
This is where you stick random tidbits of information about yourself.



























Ég er Kriss og ég er Rokk.
 
05 desember 2009  
Hæ!
Er einhver hérna? Ég er gjörsamlega að gleyma þessari síðu. Ætli einhver sé að fara hingað inn yfirleitt? Er einhver að skoða blogg í dag?

Er einhver að blogga yfirleitt?

Allavega, hér er falleg mynd af dýri og ef þið rýnið í trýnið þá má sjá kunnuglegt andlit frægrar persónu úr kvikmyndunum birtast. Hver er þetta?

5:42 e.h. Ekki vera feiminn

09 maí 2009  
Svör við öllu!



Alveg óborganlegt!

12:19 f.h. Ekki vera feiminn

06 maí 2009  
Flott í framan!

Þegar ég fór út til Berlínar um daginn þá skrifaði ég bréf til allra fjölskyldumeðlima og lagði á rúmin áður en ég fór út á völl. Sagði eitthvað fallegt við Bryndísi, sagði Stefáni að hann yrði að passa heimilið og vera duglegur að hjálpa mömmu sinni, og vera góður í skólanum. Svo sagði ég Fríðu að halda áfram að vera hress og skemmtileg á meðan ég væri úti og sagði henni að hætta að muldra í svefni.

Snillingurinn sonur minn bætti um betur fyrir mína hönd og reit annað bréf til Bryndísar frá mér. Það hljómaði svona:


"Elsku mamma, þú ert rosalega flott í framan. Kveðja pabbi"


Þetta er glæsilegt bréf og því fylgdi prinsessuteikning af Bryndísi.
Aldrei hefði mér dottið þetta í hug. Hann er algjör séntilmaður og flagari í senn. Í jákvæðum skilningi.

12:04 f.h. Ekki vera feiminn

01 maí 2009  
Brissrokk á Íbízafirði og áfram Ísland!

Úff, ég verð að biðja fólk afsökunar á þessari skelfilega smetti (Haarde-skrímslið hér að neðan) sem blasað hefur við lesendum síðunnar alltof lengi! Þetta var þarna á gamla Íslandi, núna erum við á nýja Íslandi og hefur eitthað breyst? Neibb, ekkert!

Nú eru nýliðnar kosningar og þær fóru á þann veg að fólk hafnaði þeirri ríkisstjórn sem hefur verið við lýði síðustu 20 árin tæpu. En stjórnmálamenn hafa ekkert lært, virðist vera, allir með tölu túlka úrslit kosninganna sér í hag og allir eru blindir á allt sem heitir siðferði. Það gildir einu hvað flokkurinn heitir, engum datt í hug að láta flokkdraslið til hliðar og einblína á ástandið í þjóðfélaginu. Neeiii, allir með tölu sýndu fólkinu þá miklu óvirðingu að rífast um hvaða flokkur væri bestur, kepptust við að níða aðra niður til að hefja sig upp.

Það er þekkt staðreynd að oft þarf alvarlegt slys áður en vegurinn er lagaður, vegrið sett upp eða brúin löguð. En hvað ætli þurfi svo að menn fari að hugsa öðruvísi hér á Íslandi. Hér höfum við þurft að líða ógeðfellt siðferði fólks og snarbilað hugarfar. Á endanum varð eitt heljarinnar stórslys. Og hvað, ekkert?! Flokkarnir enn að koma sínu að, skólastjóri ráðinn af því að hann er í rétta flokknum. Djísus. Það liggur við að maður óskaði þess að svínaflensan yrði mannskæð því fólki sem hefur hagað sér svínslega á síðustu árum. En ég ætla ekki að gera það.

Hvað er ég svo að hripa þessa pirringsstafi fyrir neðan hið snoppufríða andlit konu minnar?! Þetta er allavega ólíkt fallegri mynd en Haarde-myndin. Þarna er Briss uppí Dagverðardal fyrir ofan Ísafjörð á páskadegi. Það var sjúklega gaman á páskunum og yfirleitt er bara gaman að lifa....bara ef maður hugsar ekki um alla helvítis fávitana, flottræflana og uppskafninga sem eru búnir að eyðileggja Ísland!

3:10 e.h. Ekki vera feiminn

27 janúar 2009  
Æji, plís!
Það er ekki laust við að ég sé núna tekinn að hallast eindregið að því hvort ekki kunni að vera ástæða til að velta alvarlega fyrir sér að huga að því hvort tímabært sé með eindregnum hætti að taka til gaumgæfilegrar skoðunar það sjónarmið að sú staða sé ef til vill í þann veginn að koma upp með einum eða öðrum hætti að það gæti verið ýmislegt sem benti til þess að vert væri að íhuga einhvers konar yfirlýsingu!

Þarna er dregið saman allt sprok ráðamanna upp á síðkastið. Það er sami rassinn undir þeim öllum. Sama flokksdraslið hefur verið við völd síðustu 17 ár og nú þegar gjörsamlega allt er komið í bál og brand þá var það hinum flokknum að kenna að ríkisstjórnin féll. Sjálfstæðismenn segja að kjarkleysi og óeining Samfylkingar hafi riðið þessu að fullu. Hvaða rugl er þetta, í alvöru?! Þetta er hægt að segja eftir að öll þeirra stefna og allt það sem þeir standa fyrir hefur komið landinu í öskustónna. Hversu mikinn hroka geta menn búið yfir, þegar þeir eru nýbúnir að framkvæma hið fullkomna klúður. Eða hinn fullkomna glæp, glæp að gáleysi, kjarkleysi, aðgerðarleysi.

Ég segi nú bara; æjjjii, plís!

Mér finnst það frekt af mönnum að bjóða þjóðinni uppá einhvern kosningaslag og framboðsslag innan flokkana, fimm mínútum eftir stjórnarslit. Hvað er í alvörunni hægt að gera? Eigum við virkilega að þurfa að horfa á landið og þjóðina leka í svaðið meðan ráðamenn plotta um hvað er flokkunum fyrir bestu? Við bíðum við viðtækin meðan menn staulast í gegnum fréttatilkynningar eða yfirlýsingar sem fólki er boðið uppá. "...hann sagði að ég væri leiðinlegur, hún byrjaði, hann vill ekki koma út að leika".

Getum við ekki sammælst um að finna almennilegt fólk til að vinna fyrir okkur þessa vinnu, ekki eitthvað heilaþvegið pakk frá Valhöll eða annars staðar frá? Allavega svo að hægt sé að tryggja að við flest getum lifað sómasamlegu lífi.
Ha?

12:18 f.h. Ekki vera feiminn

21 janúar 2009  
Vitið þér enn, eða hvað?
Ég hef tekið þátt í skemmtilegum músík-klippimynda-getraunum hjá Kalla Hallgríms frá Bolungarvík síðustu misseri. Hann skoraði svo á mig að leika sama leik og hér kemur mitt framlag. Þetta er svona fyrsta tilraun hjá mér; nefnið mennina á myndunum og sömuleiðis leita ég að einu sameiningartákni!

1.
2.

3.

4.


5.


9:36 e.h. Ekki vera feiminn

13 janúar 2009  


Samsæriskenning...?!
Er þetta ekki eina og sama manneskjan?
Ég hef allavega aldrei séð þetta fólk á sama stað á sama tíma?!

10:11 e.h. Ekki vera feiminn

 
This page is powered by Blogger.