This is where you stick random tidbits of information about yourself.
Ég er Kriss og ég er Rokk.
01 maí 2003 Bókahomminn fer mikinn á síðu sinni. Hefur greinilega lent í speisuðu spjalli á kaffistofunni, en ég missti af því, heyrði samt að verið var að skrafa um muninn á klæðskiptingum og kynskiptingum. Ég treysti því að Fjalar segi mér frá því síðar.
Prumpukonan hins vegar er kona sem hefur lagt mig í einelti í bókabúðinni. Á tímabili þróuðust mál þannig að ég var einn í deildinni um hálfa klukkustund þegar aðrir voru í mat og birtist hún þá stundvíslega kl.12.30. Fyrst labbaði ég að henni og bauð aðstoð en hún hristi bara hausinn, ég sneri þá aftur að afgreiðsluborðinu, fáir voru á ferli, önnur kona í pels var að líta í Ísland í aldanna rás þegar konan byrjaði að prumpa. Ég leit upp og vissi ekki hvaðan þetta hljóð kom, konan í pelsinum setti upp fyrirlitningarsvip og rauk út. Prumpukonan lét gamminn geisa. Því miður er ég ekki með hljóðkort í tölvunni annars myndi ég reyna að koma þessum óhljóðum til skila. Óþefjan var hinsvegar í lágmarki.
Þetta endurtók sig í nokkur skipti þangað til að bað yfirmenn mína að gera eitthvað í þessu, ég treysti mér ekki til að vera einn. Það varð úr að Fjalar var færður um vakt og hef ég orðið fyrir frekari áreiti æ síðan. Annars hefur konan endurtekið komið inn á þessum tíma, síðast í gær, en séð að ég er ekki einn míns liðs og hlupið út eins og vindurinn. Greyið konan á við vandamál að stríða, vitaskuld mjög erfitt að lifa eðlilegu lífi með hundslappan hringvöðva. Svo er blessuð konan með húrrandi áhuga á heimsbókmenntum, kíkir í bækurnar, byrja þá rymjandi óhljóð úr afturendanum og hún hendist út. Hún hlýtur að geta hringt bara í okkur...
12:53 e.h. Ekki vera feiminn