This is where you stick random tidbits of information about yourself.
Ég er Kriss og ég er Rokk.
21 maí 2003 Mínus í kladdann.. Sæl aftur,
hér að neðan, í síðustu færslu, má sjá litla bögu sem er tileinkuð dóttur Steina og Sunnu. Hún fæddist á sunnudagskvöldið, vó 18 merkur og var um 55 cm. á hæð. Gradulere.
Stefán Bjartur var mjög ánægður að fá stelpu í hópinn. Hér er skemmtileg mynd af Stefáni sem frændur hans frá Lambastað tóku í partýi á dögunum:
Annars gengur lífið sinn vanagang, Bryndís mín eldaði ilmandi grjónagraut oní karlinn sinn, hann mig, meðan ég gaf SBK grautinn sinn. Ný ríkisstjórn að myndast, málefnasamningur tilbúinn, hann hefur fengið heitið "Stöðugleiki 2003". Ætli þessir fávitar viti hvað stöðugleiki merkir.
Davíð = Halldór
Kúkur = Skítur
Ég vil biðja fréttastjórn sjónvarps vinsamlegast að forðast að hafa Andrés Magnússon á skjánum meðan maður er að borða grautinn sinn. Maður fær óbragð í munninn.
Djöfull held ég að það sé leiðinlegt að vinna á þessari vetnisstöð. Hvað ætli að séu margir vetnisbílar í umferð?
Sæll Haukur og þakka þér fyrir athugasemdina. Jú, vissulega eru atkvæðin mörg á stökustað, t.a.m. í fjórðu braglínu í kvæðinu hér fyrir neðan. Það mú búast við fjölda tilbrigða við hina ýmsu bragarhætti, en almennt er ferskeytlan heppilegt form hér, þegar ég kýs að bregða fyrir mig bundnu máli. Lesendur hafa í aðdáendabréfum sínum verið að óska eftir t.d. sonnetum, fornyrðislagi og hverskyns tegundum á rími s.s. einsog innrími, víxlrími og illrími. En eins og flestir vita er ég mikill áhugamaður um slæmt rím.
Frægikarlgærdaxins: "Ég þekki Hauk gæðaskinn!
Það í mig fauk
er hann vildi ekki öll atkvæðin"