This is where you stick random tidbits of information about yourself.
Ég er Kriss og ég er Rokk.
12 janúar 2004 Explicit lyrics-parental guidance! Þá er maður búinn að finna taktinn aftur! Nú getur maður vaknað fyrir hádegi aftur, orðið saddur þó maður slafri minna í sig en einu hangikjötslæri með lítra af uppstúfi og kartöflum og maður kemst af án sælgætisáts tímunum saman. Það tekur smá tíma að hrista jólin af sér og koma sér í janúarfílinginn, og þá er ég ekki endilega að tala um jólakílóin, þau fara þegar maður kúkar!
Hér kemur brandari: Nýyrðasmiðir í íslenskri tungu hafa fundið Viagra-pillunni stað í okkar ástkæra ylhýra, og heitir pillan nú; Uppstúfur! hahahaha.
Nýtt ár hefur uppá margt að bjóða og í byrjun árs langar mig í;
bíó: LOTR, það væri gaman að sjá hvernig þeir loka hringnum. Hef reyndar heyrt allskonar hommakenningar um myndina, verð bara að bíða og sjá.
tónlist: mig langar að eignast eitthvað nýtt og ferskt, jafnvel nýjustu White stripes, er orðinn geðveikt lélegur í nýju stöffi, af sem áður var.
DVD spilara: eða nýtt vídeó..nei, dvd og nýtt vídeó. Síðan langar mig í heimildarmyndina The kids are allright.
nýja tölvu og adsl: betra blogg?? Ég veit það ekki.
Stóra systir mín, hún Bryndís á afmæli á morgun og verður því enn stærri fyrir vikið. Til hamingju mín kæra....