Þegar ég fór út til Berlínar um daginn þá skrifaði ég bréf til allra fjölskyldumeðlima og lagði á rúmin áður en ég fór út á völl. Sagði eitthvað fallegt við Bryndísi, sagði Stefáni að hann yrði að passa heimilið og vera duglegur að hjálpa mömmu sinni, og vera góður í skólanum. Svo sagði ég Fríðu að halda áfram að vera hress og skemmtileg á meðan ég væri úti og sagði henni að hætta að muldra í svefni.
Snillingurinn sonur minn bætti um betur fyrir mína hönd og reit annað bréf til Bryndísar frá mér. Það hljómaði svona:
"Elsku mamma, þú ert rosalega flott í framan. Kveðja pabbi"
Þetta er glæsilegt bréf og því fylgdi prinsessuteikning af Bryndísi.
Aldrei hefði mér dottið þetta í hug. Hann er algjör séntilmaður og flagari í senn. Í jákvæðum skilningi.